Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.04.2016, Qupperneq 43

Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.04.2016, Qupperneq 43
24.4. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 43 Ég er núna að lesa Raddir frá Tsjernobyl eftir Svetlönu Alexi- evich frá Hvíta- Rússlandi, sem fékk Nóbelsverðlaunin í bókmenntum. Hún heitir Voices from Chernobyl í enskri þýðingu. Í bókinni eru mjög sterkar og átakanlegar lýsingar fólks sem upplifði slysið og einnig mjög áhugavert viðbragðaleysi stjórn- valda þá, en enn í dag er verið að breiða yfir slysið. Alexievich gefur fólkinu rödd og það segir okkur frá nánum ættingjum og vinum sem dóu rétt eftir slysið. Það er líka áhugavert að það býr enn fólk á svæðum þar sem geislavirkni er mjög mikil. Oft er það fólk sem hef- ur laumað sér inn á hættusvæði og vill búa þar, en mikið af þessu svæði verður óíbúðarhæft og beinlínis stór- hættulegt í tugþús- undir ára. Þetta er mjög áhrifarík bók og væri gaman að sjá hana í ís- lenskri þýðingu. Svo hlakka ég mikið til að lesa bók númer tvö í Napólí- fjórleik Elenu Ferrante í þýðingu Brynju Cortes Andrésdóttur, Sögu af nýju ættarnafni. Ég las Fram- úrskarandi vinkonu í fyrra og var mjög hrifin af henni og hef heyrt að þær verði bara betri og betri. María Rán Guðjónsdóttir Níunda sporið segir frá ungum piltum sem eru hart leiknir og það dregur dilk á eftir sér. Morgunblaðið/Eggert BÓKSALA 13.-19.APRÍL Listinn er tekinn saman af Eymundsson. 1 JárnblóðLiza Marklund 2 VonarstjarnaNora Roberts 3 Kryddjurtarækt fyrirbyrjendur Auður Rafnsdóttir 4 Hælið Sankta PsykoJohan Theorin 5 Saga tónlistarinnarÁrni Heimir Ingólfsson 6 VinkonurRagna Sigurðardóttir 7 SmámyndasmiðurinnnJessie Burton 8 Taktu til í lífi þínuMarie Kondo 9 Aðeins ein nóttSimona Ahrnstedt 10 MömmubitarAníta Briem/ Sólveig Eiríksdóttir 1 JárnblóðLiza Marklund 2 VonarstjarnaNora Roberts 3 Hælið Sankta PsykoJohan Theorin 4 VinkonurRagna Sigurðardóttir 5 SmámyndasmiðurinnnJessie Burton 6 Aðeins ein nóttSimona Ahrnstedt 7 Meira blóðJo Nesbø 8 Saga af nýju ættarnafniElena Ferrante 9 Í hita leiksinsViveca Sten 10 MerktEmelie Schepp Allar bækur Íslenskar kiljur MIG LANGAR AÐ LESA Bandarísk-víetnamski rithöfund- urinn Viet Thanh Nguyen hlaut Pulitzer-verðlaunin fyrir skáldsögu sína The Sympathizer. Nguyen er prófessor í bókmenntafræði við há- skóla í Kaliforníu, en hann kom til Bandaríkjanna fjögurra ára gamall 1975 með fjölskyldu sinni á flótta undan herjum kommúnista. Skáld- saga hans gerist einmitt þetta ör- lagaríka ár, en Saigon féll í hendur kommúnista 1975. Bókin hefst þar sem herforingi í her Suður-Víetnams situr að sumbli með undirmanni sínum og leggur á ráðin með hverjir fái að fljúga með síðustu flugvélunum áður en fug- völlurinn í Saigon lokast. Í ljós kemur að undirmaðurinn er flugu- maður kommúnista og honum er ætlað að fylgja herforingjanum til Bandaríkjanna og njósna um hann og félaga hans þar. The Sympathizer var vel tekið og var á fjölda lista yfir bestu bækur ársins, þar á meðal hjá Guardian, New York Times, Wall Street Jo- urnal og Amazon. Viet Thanh Nguyen flúði frá Víetnam með fjölskyldu sinni skömmu áður en Saigon féll og kommúnistar náðu þar völdum. Ljósmynd/Viet Thanh Nguyen/Anna Min Víetnamskur flugumaður PULITZER-VERÐLAUNIN ÍSLANDSMÓTIÐ PEPSÍ-DEILD KARLA Í KNATTSPYRNU 2016 PÖNTUN AUGLÝSINGA: Fyrir kl. 16, mánud. 25. apríl. NÁNARI UPPLÝSINGAR: Katrín Theódórsdóttir kata@mbl.is | Sími: 569-1105 SÉRBLAÐ –– Meira fyrir lesendur 29. apríl gefurMorgunblaðið út glæsilegt sérblað um Íslandsmótið í Pepsí-deild karla í knattspyrnu sumarið 2016.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.