Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.04.2016, Side 48

Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.04.2016, Side 48
SUNNUDAGUR 24. APRÍL 2016 Fyrir sirkusáhugafólk er Æsku- sirkusinn með sirkussýninguna Hvar er ljónið? á sunnudag klukkan 16 og 18 á litla sviði Borgarleik- hússins. Hópurinn sem sýnir samanstendur af 29 hressum sirkuskrökkum á aldrinum 8-15 ára, frá öllu höfuðborgarsvæðinu. Nem- endurnir sjá sjálfir um sýninguna og hafa samið öll atriðin sjálf. Klukkan 13, 14 og 15 á laugardag í Þjóðleikhúsinu tekur brúðu- listamaðurinn snjalli Bernd Ogrod- nik vel á móti fólki, en hann vinnur nú að nýrri sýningu sem verður frumsýnd á Brúðuloftinu í haust. Hann býður fólki að heimsækja Brúðuloftið og kynnast því ferli sem það er að setja upp heila brúðuleiksýningu. Nauðsynlegt er að tryggja sér miða klukkustund fyrir sýningu en aðgangur er ókeypis. Fjölmargt annað er í boði fyrir alla aldurshópa en dagskrána má finna á barnamenningarhatid.is. asdis@mbl.is Æskuskirkusinn sýnir sirkusatriði á sýningunni Hvar er ljónið? Síðustu dagar barnamenningar Brúðulistamaðurinn Bernd Ogrodnik sýnir fólki hvernig brúðuleikhús verð- ur til á laugardaginn í Þjóðleikhúsinu. Enn er tími til að skemmta sér saman á barnamenn- ingarhátíðinni, en henni lýkur nú um helgina Alls voru 75 erlend veiðiskip á Ís- landsmiðum í gær, þar af voru 53 brezkir togarar og hafa ekki ver- ið fleiri í langan tíma. Þannig hófst frétt í Morgun- blaðinu fyrir nákvæmlega 40 ár- um, 24. apríl 1976. Þriðja og síðasta Þorskastríðið stóð þá sem hæst, eftir að Íslend- ingar færðu landhelgi sína út í 200 sjómílur haustið áður. Bretar mótmælu mjög og samþykktu ekki útfærsluna enda voru miklir hagsmunir þarlendra sjómanna í húfi. „Að undanförnu hefur lítið borið til tíðinda á miðunum, en í fyrrakvöld tókst varðskipinu Tý að klippa á veiðarfæri 3 brezkra togara, sem voru að veiðum um 43 sjómílur ANA af Bjarnarey. Varðskipin Ægir og Óðinn voru einnig á þessum slóðum, gerðu þau mikinn usla meðal togar- anna, þótt ekki tækist þeim að klippa á togvíra,“ sagði í blaðinu. „Klippur“ Landhelgisgæsl- unnar komu sér vel; græja sem menn þar á bæ létu smíða og var fyrst notuð haustið 1972, í raun fjórir hnífar sem voru dregnir þvert yfir togvíra bresku togar- anna og skáru vírana í sundur. GAMLA FRÉTTIN Þorskastríð í hámarki Freigátan Leander kemur öslandi upp að bakborðssíðu varðskipsins Þórs á Íslandsmiðum árið 1976, þegar þriðja og síðasta Þorskastríðið stóð yfir. Ljósmynd/Friðgeir Olgeirsson ÞRÍFARAR VIKUNNAR ILVA Korputorgi, s: 522 4500 www.ILVA.is laugardaga 10-18, sunnudaga 12-18, mán. - fös. 11-18:30 Svartur leðursófi. L 212 cm.299.900kr. Nú224.900kr. Taranto-þriggja sæta Grátt áklæði. H93 cm. 99.900kr. Nú74.900kr. Chantal-hægindastóll Fallegt grátt áklæði. L 232 cm. 239.900kr. Nú179.900kr. Verðflokkur A2. Þennan sófa er hægt að fá ímismunandi áklæðum. Kingston-þriggja sæta sófi Grátt áklæði og eikarfætur. L 257 xD287cm. 229.900kr. Nú169.900kr. Lissabon-hornsófi Fallegt dökkgrátt áklæði. H95 cm. 149.900kr. Nú109.900kr. Albi-hægindastóll Legubekkur +1½ sæta. Sandlitað áklæði. L 205 xD161cm. 219.900kr. 164.900kr. Þennansófa er hægt að fá ímismunandi áklæðum. Kingston city-sófi *Gildir ekki um vörur á áður niðursettu verði og vörum merktum ”Everyday Low Price”. 169.900 SPARAÐU 60.000 224.900 SPARAÐU 75.000 164.900 SPARAÐU 45.000 SÓFADAGAR 25% AFSLÁTTUR AF ÖLLUM* SÓFUM & HÆGINDASTÓLUM SÓFI MEÐ ENDALAUSA MÖGULEIKA Houston 217.425 SPARAÐU 72.475 74.900 SPARAÐU 25.000 179.900 SPARAÐU 60.000 109.900 SPARAÐU 40.000 Fallegur þriggja sæta sófimeð legubekk. L286 xD200cm. 289.900kr. Nú217.425kr. Þennansófa er hægt að fá ímismunandi áklæðum. Verðflokkur A2. Houston-sófi

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.