Orð og tunga - 01.06.2006, Blaðsíða 160
158
Orð og tunga
áætluninni. Valdís Ólafsdóttir, meistaranemi í tungutækni, var ráðin
til að leggja drög að safninu og vann hún við það um þriggja mán-
aða skeið (í 75% starfi). Verkið var unnið í samvinnu við Orðabanka
íslenskrar málstöðvar, og var íðorðasafnið opnað sem hluti bankans 1.
september.
Þegar tungutækniáætlun menntamálaráðuneytisins lauk og verk-
efnisstjórn í tungutækni var lögð niður um áramótin 2004-5 yfirtók
upplýsingasetrið vef hennar, www.tungutaekni.is. Til að halda utan um
og ýta undir starfsemi á sviði íslenskrar tungutækni var ákveðið að
stofna Tungutæknisetur, sem er samstarfsverkefni Orðabókarinnar,
Málvísindastofnimar Háskóla íslands og tækni- og verkfræðideildar
Háskólans í Reykjavík. í stjórninni situr einn fulltrúi frá hverjum sam-
starfsaðila, og er Sigrún Helgadóttir fulltrúi Orðabókarinnar. Meðal
markmiða setursins er að halda árlega ráðstefnu um íslenska tungu-
tækni, og verður sú fyrsta haldin nú í maí.
Norræna nýsköpunarmiðstöðin (Nordisk Innovationscenter) og
Norræna rannsóknamiðstöðin (NordForsk) veittu norrænum upplýs-
ingasetrum um tungutækni og samtökum iðnaðarins á Norðurlönd-
um styrk til forverkefnis sem nefnt var NLTNet. Styrknum var varið
til að halda sameiginlegan fund í Kaupmannahöfn þar sem rædd-
ar voru forsendur fyrir samvinnu um kynningu og eflingu tungu-
tækni á Norðurlöndum. Þar var samþykkt að stefna að áframhald-
andi samstarfi, og var gefin út skýrsla um niðurstöður fundarins -
sjá www.nltnet.org. Snemma árs 2006 sendi sami hópur svo umsókn til
Norrænu nýsköpunarmiðstöðvarinnar um nýtt tveggja ára verkefni,
Nordic ICT and Language, þar sem ætlunin er að fylgja eftir þeirri stefnu
sem mörkuð var í forverkefninu. Þegar þetta er ritað er ekki komið í
Ijós hvort styrkur fæst til þessa verkefnis.
Orðabókin og Háskóli íslands tóku þátt í Nordisk Netordbog, sam-
starfsneti um rannsóknir og þróun í tungutækni, einkum margmála
leit á netinu og í gagnabönkum. Aðrir þátttakendur í verkefninu eru
Háskólinn í Bergen, Kungliga tekniska högskolan (KTH) í Stokkhólmi,
Háskólinn í Helsinki og Center for sprogteknologi (CST) í Kaupmanna-
höfn, sem stýrir verkefninu (verkefnisstjóri Bente Maegaard). Nor-
ræna ráðherranefndin átti frumkvæði að þessu verki og hefur veitt fé
til þess, ásamt Málráði Norðurlanda. Vinnan í verkefninu á árinu fólst
einkum í því að afla ýmissa tví- eða margmála orðalista til að nýta
í margmála leit. Þrír fundir hafa verið haldnir í verkefninu og hefur