Jólakver - 01.12.1928, Side 5
JÓLAKVER 1928
3
EN'GUM
AURUM
er betur varið en þeim,
sem þjer bætið við
krónuna til þess að geta
fengið T E O F A N I
eins og ungar í hreiðri. Hjá rúminu lá móðir þeirra á
hnjánum, grúfði andlitið í sængina og bað til guðs.
Hún var alein hjá börnunum. Úti fyrir öskraði
stormurinn, og brimhljóðið var eins og þrumur, er hvít-
fextar öldurnar brotnuðu á klöppunum fyrir neðan kof-
ann. Hafið var í vígamóði, og úti á því var maðurinn
hennar.
Hann hafði verið sjómaður frá blautu barnsbeini.
Það mátti segja, að líf hans hafi verið óslitin barátta
við kaldlynt hafið. Hann varð að afla börnunum bjargar,
enda reri hann á hverjum degi, hvort sem gott var eða
ilt í sjó. Og meðan hann var á sjónum, annaðist konan
heimilið; hún gætti barnanna, bætti seglin og netin og
bjó til matinn. Þegar börnin hennar fimm voru sofnuð
á kvöldin, lagðist hún á hnjen og bað fyrir manninum