Jólakver - 01.12.1928, Qupperneq 43
JÓLAKVER 1928
41
hugsaði baróninn með sjer, og með því að hann hafði
gaman af hræðslu skipstjórans, þá svaraði hann: „Jú,
þær eru þar allar ennþá og verða yður samferða til
Dover. En jeg lofa yður því, að þar skulu þær fara af
skipinu".
Nú komu samferðamennirnir til þeirra, og heyrðu
allir hvað um var að vera.
„Trúið þjer mjer máske ekki til þess?“ sagði
Ðonatin.
„Jú, það gerum við“, sagði Poliver greifi, „jeg sá
fyrir skemstu alla draugahersinguna niðri í lyftingunni,
og það gladdi mig, því þá var jeg viss um að vera í
flokki hinna greindu“.
„Nú sjáum við Dover“, sagði nú skipstjóri. „Jeg
verð að biðja herrana að gera svo vel og berga mjer
fargjaldið“.
Þeir sem œtla að gleðja
vini og kunningja á jól-
unum œttu að hafa hug-
fast, að góð bók er oft
heppilegasta jólagjöfin.
GLATAÐI SONURINN
eftir Hall Caine er góð
bók og vel valin jólagjöf
handa ungum og göml-
um. Fœst hjá bóksölum,
heft og í fallegu bandi.