Morgunblaðið - 16.06.2016, Side 4

Morgunblaðið - 16.06.2016, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JÚNÍ 2016 Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Fjölgun bandarískra ferðamanna til Íslands hefur nokkuð að segja um aukna kortaveltu ferðamanna hér á landi, en hún hefur aukist mjög frá fyrra ári. Korta- velta ferðamanna nam um 14,6 milljörðum í apríl sl. en 9,3 milljörð- um í sama mánuði árið 2015 og jókst því um 57%. Í jan- úar nam hún 60%, 65% í febrúar og 53% í mars. Fjölgun er- lendra ferðamanna nam aftur á móti 34,7% í janúar til apríl, samanborið við árið 2015. Haft skal í huga að hluti veltunnar endurspeglar þó ekki veru ferðamanna hér á landi og er tilkominn vegna flugferða íslenskra flugfélaga milli flughafna erlendis, en þeim fjölgaði mjög í byrjun árs. Taka styttri og dýrari frí Ásgeir Jónsson, deildarforseti hagfræðideildar HÍ, segir margar ástæður liggja að baki. Aukinn fjöldi bandarískra ferðamanna sé einn þeirra þátta sem hafi haft áhrif, en þeim fjölgaði um 67,5% milli áranna 2015 og 2016. „Það hefur verið mikil aukning í komu Bandaríkjamanna og þeir eru þekktir fyrir að eyða miklu. Aukn- ingin er líklega vegna þess að doll- arinn er tiltölulega hár og af því að þetta er markaður sem Bandaríkja- menn virðast fyrst nú hafa verið að uppgötva,“ segir hann og bætir við að Bandaríkjamenn taki sér oft stutt frí þar sem þeir vilji upplifa sem mest og eyði þar af leiðandi meiru. Áfram mikil velta Ásgeir segir að að því gefnu að sama mynstur haldist milli háanna og láganna í ferðaþjónustu megi bú- ast við meiri greiðslukortaveltu nú í sumar en á síðasta ári. „Eins og fyrstu mánuðirnir á þessu ári hafa verið, þá er þetta gríð- arleg aukning. Ef við sjáum sama mynstur milli háanna og láganna í ferðaþjónustunni, þá erum við að sjá mikla aukningu núna yfir sumarið,“ segir hann, en bætir þó við að lítið framboð af gistiplássi hamli frekari vexti ferðaþjónustunnar almennt. „Það er orðið ódýrara að koma til Íslands en áður þar sem áfangastöð- um frá Íslandi hefur verið að fjölga verulega. Til dæmis eru Bandaríkin á við heila heimsálfu og um leið og ný borg tengist Íslandi með flugi eru þar milljónir manna sem verða mögulegir viðskiptavinir,“ segir Ás- geir. Bandaríkjamenn sækja til Íslands  Greiðslukortavelta erlendra ferðamanna jókst mjög á fyrstu mánuðum ársins  Bandarískum ferða- mönnum fjölgaði um 67,5% milli ára  Hagstætt gengi og stutt frí þeirra hafa nokkur áhrif á veltuna Morgunblaðið/Ómar Vöxtur Kortavelta ferðamanna jókst um 57% á 12 mánuðum. Velta erlendra greiðslukorta innanlands Heimild: Hagstofa Íslands 2013 2014 2015 2016 Janúar 4.353 5.490 7.277 11.657 Febrúar 4.564 5.728 7.968 13.151 Mars 5.488 6.869 9.789 15.044 Apríl 5.204 6.725 9.309 14.613 Maí 7.093 9.063 13.193 Júní 11.348 14.055 18.385 Júlí 15.446 18.507 24.046 Ágúst 14.235 17.035 22.146 September 7.495 9.366 13.639 Október 5.699 7.181 10.448 Nóvember 4.945 6.500 9.150 Desember 5.206 6.534 9.445 Ásgeir Jónsson Benedikt Bóas benedikt@mbl.is Nýverið fékkst vilyrði fyrir því að opna tvö barnahús að íslenskri fyr- irmynd í Bretlandi. Annað verður í Lundúnum en hitt í Durham. Mikill áhugi er víða í Evrópu á að opna barnahús eins og þekkist hér á landi og sitja nú um 40 manns frá 13 ríkjum tveggja daga ráðstefnu um málefnið á vegum Barnaverndarstofu. „Það er gríðarlegur áhugi í allri Evrópu að taka upp þetta fyrirkomu- lag,“ segir Bragi Guðbrandsson, for- stjóri Barnaverndarstofu. Norðurlöndin hafa alls opnað 48 barnahús, Svíar 30, Noregur 10 og átta eru í Danmörku. Þá opnaði Bragi eitt slíkt hús í Vilnius í Litháen fyrir skemmstu. „Kýpur mun opna hús í lok árs og ég er búinn að fara tvisvar þangað að halda fyrirlestra og nám- skeið. Núna ætla Bretar að opna tvö og fleiri lönd eru með svona hús í píp- unum.“ Nýverið komu starfsmenn breska ríkisútvarpsins BBC hingað til lands til að fræðast um stofnunina. Verður fréttaskýringarþáttur sýndur á stöð- inni en útvarpsteymi frá stöðinni var einnig með í för. „Englendingar hafa í nokkurn tíma haft áhuga á þessu fyr- irkomulagi sem við höfum hér á landi. Þeir komu hingað fyrst fyrir um 18 mánuðum og í framhaldi var gerð skýrsla þar sem tillögur voru settar fram. Eitt leiddi af öðru og fyrir um mánuði kom hingað sendinefnd, skip- uð fulltrúum frá fimm ráðuneytum í Bretlandi og í síðustu viku kom BBC til að gera fréttaskýringaþátt.“ Allir vinna saman Barnahús var sett á laggirnar hér á landi árið 1998. Þar vinna stofnanir, sem bera ábyrgð á rannsókn og með- ferð vegna kynferðisofbeldis gegn börnum, saman undir einu þaki. „Í rauninni er þetta dómsathöfn og ef það kemur til ákæru þá einfaldlega eru til upptökur þannig að barnið þarf aldrei að mæta fyrir dóm. Þetta hafa löndin á Norðurlöndum tekið upp þó það sé ekki dómsathöfn eins og hér. En það er þó sama fyrirkomulagið.“ Barnahús opn- uð í Bretlandi  Fulltrúar 13 landa sóttu fyrirlestur um fyrirkomulag Barnahúss Morgunblaðið/Árni Sæberg Ráðstefna Um 40 manns frá 13 löndum voru samankomin á Grand Hótel til að hlusta á fyrirlestur Braga. Barnahús er orðið að alþjóðlegri fyrirmynd. Volvo Penta á Íslandi | Brimborg • Bíldshöfða 6 • Sími 515 7070 • volvopenta.is ÞÚ ERT Í ÖRUGGUM HÖNDUM hjá volvo penta á íslandi Öflug Volvo Penta þjónusta Hjá Volvo Penta á Íslandi | Brimborg starfar framúrskarandi teymi sem samanstendur af öflugum fagmönnum Brimborgar og samstarfsaðilum um land allt. Komdu í dag og ræddu við ráðgjafa. HAFÐU SAMBAND Í DAG • Sími: 515 7070 • Netfang: volvopenta@brimborg.is • Ný heimasíða: volvopenta.is Kauptu bestu varahlutina Volvo Penta á Íslandi | Brimborg er með gott úrval varahluta á lager og á mjög hagstæðu verði. Varahlutasérfræðingar okkar veita þér fyrirtaksþjónustu og ráðgjöf við kaup. Innanríkisráðuneytið hefur unnið drög að frumvarpi sem felur í sér verulegar breytingar á gildandi lög- um um mannanöfn. Segir frá þessu á vef ráðuneytisins, en þar má einnig nálgast frumvarpsdrögin og er til- gangur birtingarinnar sá að hvetja til áframhaldandi umræðu um málið. Drögin fela í sér að gildandi lög um mannanöfn verði felld á brott, en í lögum um þjóðskrá og almanna- skráningu verði færð tiltekin ákvæði um nöfn og skráningu þeirra í þjóð- skrá. Á brott myndu meðal annars falla eftirtalin atriði: „Ákvæði um hámarksfjölda nafna. Ákvæði um að eiginnafn skuli geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli, megi ekki brjóta í bága við ís- lenskt málkerfi og skuli ritað í sam- ræmi við almennar ritreglur ís- lensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess. Einu kröfurnar sem gerðar yrðu til eiginnafna væru að þau skyldu vera nafnorð, auð- kennd með stórum upphafsstaf og án greinis. Væri eiginnafn af íslensk- um uppruna skyldi það falla að ís- lensku beygingarkerfi en sú krafa væri ekki gerð ef um viðurkennt er- lent nafn væri að ræða,“ segir í drögum ráðuneytisins, en þar segir einnig að ákvæði um að stúlku skuli gefa kvenmannsnafn og dreng karl- mannsnafn myndi líka falla út. Ný ættarnöfn yrðu leyfð Þá segir jafnframt í áðurnefndum drögum innanríkisráðuneytisins að ákvæði um að eiginnöfn megi ekki vera þannig að þau geti orðið nafn- bera til ama myndi falla út. Auk þess myndu eftirtalin atriði falla á brott: „Ákvæði um ættarnöfn, engar takmarkanir yrðu á notkun ætt- arnafna og því félli bæði á brott vernd eldri ættarnafna og bann við nýjum. Ákvæði um takmarkanir á notkun erlendra nafna en kveðið yrði á um að nöfn skuli rita í þjóð- skrá með bókstöfum íslenska staf- rófsins. Ákvæði um mannanafna- nefnd og hlutverk hennar, sem og ákvæði um mannanafnaskrá,“ segir í drögunum. khj@mbl.is Sérstök kven- og karl- mannsnöfn gætu fallið út  Verulegar breytingar á gildandi lögum um mannanöfn Morgunblaðið/Eggert Krakkar Drögin fela í sér verulegar breytingar á lögum um nöfn fólks. „Ég get lítið annað sagt um þetta mál en að við ræddum saman á fundi í dag [í gær] og munum hitt- ast aftur á fundi á mánudaginn sem boðaður er eftir hádegi,“ segir Sig- urjón Jónasson, formaður Félags íslenskra flugumferðarstjóra (FÍF). Vísar hann í máli sínu til þess að samninganefndir FÍF og Samtaka atvinnulífsins (SA), fyrir hönd Isavia, hittust á árangurslausum fundi hjá ríkissáttasemjara. Kjaradeila flugumferðarstjóra komst á dögunum á annað stig þeg- ar stjórnvöld settu lög á aðgerðir þeirra, en þá var félagsmönnum FÍF gert að hætta aðgerðum sín- um þegar í stað. Takist ekki að semja nýjan kjarasamning fyrir 24. júní nk. mun innanríkisráðherra skipa þrjá aðila í gerðardóm sem ákveður kaup og kjör félagsmanna FÍF. Hittast næst eftir helgina

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.