Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.06.2016, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.06.2016, Blaðsíða 2
Í FÓKUS 2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26.6. 2016 Ritstjórn Árni Matthíasson arnim@mbl.is Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Gunnþórunn Jónsdóttir gunnthorunn@mbl.is Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is Ágætur vinnufélagi minn fór út að viðra hundinn síðdegis á miðviku-daginn. Sól skein í heiði og vinnufélaginn undraði sig á því hversu fá-ir voru á ferli. Eiginlega ekki hræða. Vinnufélaginn kunni því svo sem ágætlega og naut útivistarinnar í botn – þar til óvæntir atburðir áttu sér stað. Heilu íbúðablokkirnar byrjuðu skyndilega að hljóða á hann. Það var engu líkara en þær ætluðu að liðast í sundur. Vinnufélaganum varð ekki um sel. Hvað þá hundinum. „Húsin hreinlega öskruðu á mig,“ trúði hann okkur fyrir morguninn eftir. Og var augljóslega ekki enn búinn að jafna sig að fullu. Á allt öðrum stað í höfuðborginni hrökk annar ágætur vinnufélagi minn upp úr hugsunum sínum heima í stofu þegar húsin í grenndinni byrjuðu skyndilega að leika á reiði- skjálfi. Vinnufélaginn spratt á fætur til að kveikja á sjónvarpinu. Hvað var eiginlega á seyði? Var brostið á með Suðurlandsskjálfta? Nei. Var Hekla byrjuð að gjósa? Nei. Var Ástþór Magnússon að ausa úr skál- um reiði sinnar yfir fjölmiðla? Nei. Það var einfaldlega mark. Nýja þjóðhetjan, Arnór Ingvi Traustason, var að tryggja íslenska karlalands- liðinu í knattspyrnu sigur á Austurríki í uppbótartíma á EM í Frakklandi. Þeim er þetta ritar er til efs að íslenska þjóðin hafi í annan tíma komist í eins mikið uppnám á sama augnablikinu – eins og hún leggur sig. Tja, fyrir utan þessa tvo ágætu vinnufélaga mína. Þeir missa ógjarnan svefn út af fótbolta. Sáu þó endursýningu á marki Arnórs, alla vega annar, jafnvel báðir, og þótti það huggulegt. Já, ekki er um að villast. Sparkæði er runnið á íslensku þjóðina. Ótrúleg- asta fólk er byrjað að fylgjast með knattspyrnu sem er í senn göfugust og vinsælust allra íþrótta í þessum heimi. Er það vel! Eflaust hefur þetta eitthvað með samkennd og þjóðarstolt að gera. Þessi þjóð hefur jú gengið í gegnum erfiða tíma. En fyrst og fremst er það samt fegurðin í leiknum. Hvað jafnast á við að sjá víking eins og Birki Bjarnason renna sitt skúlaskeið á lokaandartökum gríðarlega erfiðs og krefjandi leiks? Með faxið beinstíft út í loftið. Eins og sjálft lífið væri í húfi. Og næst er það England. Sem er á harða kani út úr Evrópu(mótinu)! AFP Þar sem húsin hljóða! Pistill Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is ’Þeim er þetta ritar ertil efs að íslenska þjóð-in hafi í annan tíma kom-ist í eins mikið uppnám á sama augnablikinu – eins og hún leggur sig. Jón Arnar Jónsson Ef ég fæ að ráða fer nautalund á grillið. Hvítlauksristaður humar eða sveittur borgari klikkar heldur aldrei. SPURNING DAGSINS Hvað er best á grillið? Frans Garðarsson Grísalund með heimatilbúinni bar- becue sósu og svo að sjálfsögðu nautalundin. Rannveig Eva Snorradóttir Fyllt kjúklingabringa með pipar- og mexíkóosti er það besta sem ég fæ. Ásamt grilluðum sveppum fylltum með camembertosti. Arnór Hafsteinsson Nautalundin sem pabbi grillar. Svo er það skötuselurinn og lúðan sem er afbragð á grillið og klikkar aldrei. Ritstjóri Davíð Oddsson Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal Umsjón Eyrún Magnúsdóttir, eyrun@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Útgáfufélag Árvakur hf., Reykjavík. Morgunblaðið/RAX SIGNÝ EINARSDÓTTIR SITUR FYRIR SVÖRUM Jóga í Reynisfjöru Forsíðumyndina tók Ómar Óskarsson Jógaiðkunin fer fram dagana 24.-26. júní nk. Jógatímar eru í boði tvisvar á dag, kl. 8:00 að morgni og 18:15 síðdegis. Á þessum tíma er náttúran öll í hámarki og skemmtileg orka myndast sem auðvelt er að tengja við. Af hverju ertu með jógatíma í Reynisfjöru? Ég er fædd og uppalin í Reynishverfi. Staðurinn er mér einstaklega kær og hentar skínandi vel til jógaiðk- unar. Fyrir framan þig ertu með jörðina, vatnið, eld- inn og loftið. Undirlagið er dásamlegt og gefur ilj- unum nudd og ef þig vantar stuðning þá klappar þú bara saman jarðefnunum og býrð til púða. Betri en nokkur jógasalur. Ég trúi að það að iðka á þessum stað, þó það sé ekki annað en að setjast niður og anda, veki okkur til vitundar um skynfæri okkar og um- hverfið. Í hefðbundnum jógasal ómar falleg tónlist en þarna er það tónlist náttúrunnar. Ég er t.d. alltaf fyrst spurð um veðrið eftir þessar helgar en margir eiga erfitt með að sjá fyrir sér jóga í rigningu og roki en það er líka hægt. Hvort sem sólin skín eða ekki þá er þetta hressandi og endurnærandi og gott að finna fyrir sínum innri krafti. Hvers konar jóga býður þú upp á? Ég er með hefðbundið Hatha-jóga í bland við annað sem mér finnst gott. Ég legg áherslu á meðvitað jóga og að tengja við himin og jörð. Hentar fyrir alla byrjendur og lengra komna. Tímarnir eru um klukkustundar langir og í lokin leggjumst við niður í slökun. Nú hefur Reynisfjara mikið verið í fréttum. Er eitthvað sem fólk þarf að varast þegar það mætir í tímana hjá þér? Það verða flögg sem vísa fólki rétta leið. Fjaran er stór en við verðum á öruggum stað. Ekki ofan í flæðarmálinu og ná- lægt ferðamönnunum þótt við sjáum þá tilsýndar. Hafa tímarnir verið vinsælir meðal ferðamanna eða eru það heimamenn sem mæta í þá? Þetta er 5 árið í röð sem ég býð uppá jóga í Reynisfjöru. Fyrstu tvö skiptin var aðsóknin dræm, en svo hefur aðsóknin aukist ár frá ári. Alls konar fólk kemur í tímana, Íslendingar og útlend- ingar, börn og gamalmenni. Eitthvað óvænt sem hefur komið upp á þau ár sem þú hefur verið með jóga í fjörunni? Það er ekkert fyrirséð í jógatímunum og margt sem fyrir augu og eyru ber. Eitt atvik er mér minnisstætt. Allir voru í jógastöðu með útsýni á haf út. Fyrir framan okkur blöstu við tveir háhyrn- ingar sem þreyttu hrefnu. Þegar svona gerist þá stoppar maður til að njóta og þakkar fyrir.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.