Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.06.2016, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.06.2016, Blaðsíða 20
VIÐTAL 20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26.6. 2016 E ftir að Veigar Margeirs- son flutti heim fyrir tveimur árum hefur hann oft verið spurður að því hvort hann hafi verið búinn að fá nóg af Bandaríkj- unum eftir tveggja áratuga búsetu vestra. Svo er ekki. Þvert á móti leið honum ljómandi vel í Los Angeles, var hlaðinn verkefnum, stefndi á ríkisborgararétt og átti ekkert frek- ar von á því að búa aftur á Íslandi. Þá gerðist það, fyrir fjórum árum, að Ragnhildur, átján ára gömul dóttir Veigars og eiginkonu hans, Sigríðar Rögnu Jónasdóttur (alltaf kölluð Sirrý), ákvað að flytja heim til Íslands. „Þetta kom flatt upp á okkur foreldrana enda hafði Ragn- hildur alltaf verið svona „California girl“,“ segir Veigar. „Á móti kemur að hún hafði alltaf haldið tungumálinu vel við og vildi prófa að búa eitt ár á Íslandi, áður en það yrði um seinan.“ Til að gera langa sögu stutta kol- féll Ragnhildur fyrir Íslandi og sýndi ekki á sér neitt fararsnið eftir ársdvölina. Eftir að hafa lokið stúd- entsprófi frá MH ritaðist hún inn í skapandi tónlistarmiðlun í Listahá- skóla Íslands og nýtur sín í botn. Það var svo árið 2014 að Veigar og Sirrý fóru að hugsa sér til hreyf- ings, ásamt syni sínum, Viktori Árna, sem nú er þrettán ára. „Fyrst vorum við raunar að hugsa um að færa okkur um set innan Los Angel- es. Það var svo yfir kaffibolla einn morguninn að ég varpaði fram þess- ari hugmynd; að flytja heim til Ís- lands. Frúin tók strax vel í það. „Þú sagðir það. Ég tek þig á orðinu!“ Þar með var það ákveðið. Útlendingar í eigin landi Veigar viðurkennir að það hafi verið mikil viðbrigði að koma heim. „Það tók tíma að lenda á Íslandi og fyrsta árið leið okkur á köflum eins og út- lendingum í eigin landi. Þetta var líka versti veturinn í langan tíma og þótt ég sé enginn sóldýrkandi spurði ég mig oft hvað ég væri að pæla þegar húsið lék á reiðiskjálfi í vetrarlægðunum. Við bjuggum of- arlega í fallegu fjölbýlishúsi nálægt Elliðavatni þar sem suðaustan- vindarnir blésu óvenju kröftuglega.“ Hann hlær. En öllum lægðum fylgja hæðir og smám saman lagaði fjölskyldan sig að gamla landinu. „Okkur líður mjög vel núna og sjáum ekki eftir neinu. Ísland er á margan hátt frá- bært samfélag og ég nefni í því sam- bandi heilbrigðis- og menntakerfið. Í Bandaríkjunum er ekki sjálfgefið að þú hafir aðgang að þessum kerf- um. Möguleikarnir í námi eru ótrú- lega margir hérna og fólki standa allar dyr opnar. Ég sé það bara á minni fjölskyldu; konan mín er í fjarnámi í sálfræði við Háskólann á Akureyri, dóttirin í LHÍ og sonur minn var að komast inn í Tónlistar- skóla FÍH, en hann spilar á raf- bassa.“ Hann segir framfarir hafa verið miklar undanfarin tuttugu ár; Ís- land sé mun meira í takt við tímann í dag. „Ég man hvað mér fannst ég vera einangraður hérna þegar ég var um tvítugt; að möguleikarnir væru ekki miklir. Þessu finn ég ekki fyrir lengur. Það er allt til alls á Ís- landi og fólk farið að hugsa miklu stærra.“ Það á meðal annars við um sam- göngur, en margar flugferðir eru á dag til Bandaríkjanna, svo dæmi sé tekið. Það tengist sprengingu í komu ferðamanna til landsins og Veigar hefur ekki farið varhluta af því, frekar en aðrir landsmenn. „Ís- land er „hot spot“ þegar kemur að ferðamennsku. Það fer ekkert á milli mála. Það besta sem gat fyrir okkur komið í þessu sambandi var gosið í Eyjafjallajökli. Bandaríkja- menn vita að minnsta kosti upp til hópa miklu meira um landið eftir gosið.“ Enda þótt Veigar hafi ekki upp- lifað öryggisleysi vestra kveðst hann að sjálfsögðu vera mun örugg- ari hér heima, ekki síst um börnin sín. „Ég missti einu sinni sjónar á stráknum mínum í dýragarði í LA þegar hann var fjögurra ára. Það voru bara 45 sekúndur en þær voru eins og hálftími. Ég varð reglulega skelkaður. Mér hefði ekki liðið eins illa í Húsdýragarðinum í Laug- ardalnum.“ Túraði með Mezzoforte Veigar fæddist árið 1972 og ólst upp í Keflavík. Hann lauk burtfararprófi í trompetleik frá Tónlistarskóla Keflavíkur 1992 og ritaðist þá inn í Tónlistarskóla FÍH. Ekki stóð á verkefnum enda sár vöntun á trompetleikurum sem spiluðu djass. Viðar Alfreðsson hafði lengi sinnt þeim verkefnum en eftir að hann lagði hljóðfærið á hilluna myndaðist gat. Eitt eftirminnilegasta verkefnið var að túra með Mezzoforte í nokkr- ar vikur í Asíu, þar sem Veigar lék bæði á trompet og píanó. „Eins skemmtilegt og það ævintýri var fann ég að ég væri ekki túrandi tón- listarmaður. Minn metnaður stóð meira til þess að semja tónlist og vera í stúdíóinu,“ segir Veigar. Haustið 1993 lá leiðin til Boston ásamt unnustunni, þar sem Veigar stundaði nám í eitt ár við Berklee. Veturinn 1994-95 bjuggu þau Sirrý hins vegar á Íslandi; hafði þá Veigar misst föður sinn úr krabbameini, auk þess sem unga parið eignaðist sitt fyrsta barn haustið 1994. Meðan Veigar bjó á Íslandi spilaði hann meðal annars með Millj- ónamæringunum. Sumarið 1995 giftu þau sig og svo lá leiðin aftur út. Veigar fékk þá svokallaðan Fellowship-styrk gegn- um fyrrverandi sendiherra Banda- ríkjanna á Íslandi, Charles Cobb, til náms í djasstrompetleik og útsetn- ingum við Háskólann í Miami. Þar Tók tíma að lenda á Íslandi Veigar Margeirsson, tónlistarmaður og tónskáld, er fluttur heim eftir tuttugu ár í Bandaríkjunum. Hann starfar þó mest vestra, þar sem hann á og rekur fyrirtæki sem sérhæfir sig í tónlist fyrir kvikmyndastiklur. Hann segir íslenskt samfélag hafa breyst nokkuð mikið á þessum tíma og finnur ekki lengur fyrir einangrun. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Það var fyrir algera tilviljun að Veigar Margeirsson fór að starfa við það fyrir tæpum tveimur áratugum að semja tónlist fyrir kvikmyndastiklur. Morgunblaðið/RAX

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.