Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.06.2016, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.06.2016, Blaðsíða 41
við höfðum samið eitthvað,“ segir hann en Hal David sá um að smíða texta við mörg hver af lög- um Bacharach. „Því meira sem ég sá hana gera í stúdíóinu, hversu mögnuð rödd hennar var og hversu víðu sviði hún bjó yfir, þá áttaði ég mig bet- ur og betur á því hversu mikið við gátum komist upp með við laga- smíðarnar. Hún er klárlega ein af þessum stóru ásamt söngvurum á borð við Gladys Knight, Arethu Franklin og Dusty Springfield,“ segir hann. Semur kvikmyndatónlist Tónskáldið kveðst lengi hafa viljað koma til Íslands og stefnir hann á að taka sér nokkra daga að tón- leikum loknum til þess að skoða náttúru landsins. „Yfirleitt á þessum tónleika- ferðalögum þá leggur maður land undir fót dag- inn eftir að tón- leikunum er lokið. Við skipulögðum þennan túr minn aftur á móti þannig að tónleikarnir á Íslandi yrðu þeir síðustu í röðinni. Ég er með nokkra fjölskyldu- meðlimi með mér og við ætl- um að ferðast aðeins um landið. Ég hef aldrei komið til Íslands áð- ur en mér hefur verið tjáð af vin- um og vandamönnum að þar sé stórkostlegt um að lítast svo ég er mjög spenntur,“ segir hann. Þrátt fyrir að um síðustu tónleika Bach- arachs í bili sé að ræða, þá er nóg um að vera hjá skáldinu og er hann meðal annars í óða önn að taka upp tónlist fyrir kvikmyndina Po sem er í leikstjórn John Asher. „Ég tók upp lag fyrir þá mynd í síðustu viku. Po er lítil og sjálf- stæð mynd sem segir sögu föður sem er að ala upp einhverfan son sinn. Rosalega margir þeirra sem koma að gerð myndarinnar eru tengdir einhverfu á einn eða ann- an hátt. Ég á til að mynda ein- hverfa dóttur og leikstjórinn á einhverfan son,“ segir hann en með myndinni vilja aðstandendur hennar vekja athygli á einhverfu. Bacharach er eldri en tvævetur þegar kemur að kvikmyndatónlist en hann samdi meðal annars tón- listina fyrir kvikmyndirnar Casino Royale frá árinu 1967 og stórvirk- ið Butch Cassidy and the Sun- dance Kid frá árinu 1969 en Bach- arach hlaut meðal annars tvenn Óskarsverðlaun fyrir aðkomu sína að þeirri síðari. „Það er allt öðruvísi að búa til tónlist fyrir kvikmyndir heldur en að semja dæg- urlög. Maður er meira að ein- beita sér að því að tónlistin þjóni því sem er að gerast á skjánum frekar en að búa til metsöluplötur,“ segir hann og bætir því við að lokum að það að vinna Óskarsverðlaunin hafi mögulega verið hátindur ferils síns. Þess má einnig til gamans geta að Bacharach hefur einnig fiktað við leiklistina á síðari árum og farið með lítil hlutverk í kvik- myndum á borð við Analyze This og Austin Powers-þríleiknum. Tónleikarnir þann 12. júlí koma til með að hefjast klukkan átta og má nálgast miða á vefsíðu Hörpu. 26.6. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 41 Independence Day var frum- sýnd í gær í Smárabíói, Háskólabíói, Laugarásbíói, Sambíóunum Egils- höll og Borgarbíói, Akureyri. Geimverurnar eru komnar til að drepa allt líf og eyða jörðinni. Í Akranesvita er menningar- dagskrá um helgina. Hilmar Sigvaldason stendur fyrir tónleikum á laugardaginn þar sem atvinnu- menn í tónlist munu koma fram og hefst dag- skráin klukkan 23:45. Nú stendur yfir í Listasafni ASÍ sýn- ing á verkum listamannanna Hreins Friðfinnssonar og John Zurier. Sýningin stendur til 30. júní og er safnið opið alla daga nema mánu- daga frá kl. 13 til 17. Alþjóðlega orgelsumarið er byrjað í Hallgrímskirkju en það stendur yfir frá 18. júní til 21. ágúst. Frumflutningur á orgelverki eftir Hreiðar Inga Þorsteinsson verður hápunkturinn á tónleikunum. Á Kammertónleikum á Kirkju- bæjarklaustri verða í boði þrennir tónleikar og ókeypis tónlistarsmiðja fyrir 2ja til 12 ára börn helgina 24.- 26. júní. Hátíðinni lýkur með fjöl- skyldutónleikum þann 26. júní. MÆLT MEÐ þegar þú vilt kvarts stein á borðið Blettaábyrgð Viðhaldsfrítt yfirborð Slitsterkt Bakteríuvörn Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | www.rein.is By Cosentino VALS TÓMATSÓSA ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA Burt Bacharach samdi mörg lög fyrir stórsöngkonuna Dionne Warwick og segir hann samstarf þeirra tveggja standa upp úr á tónsmíðaferli sínum. Morgunblaðið/Ómar ’ Ég mun, ásamt sveit-inni og söngvurunum,drepa víða niður fæti hvaðtónlistarferil minn varðar. Ég mun þar að auki leika á píanó, sjá um tónlistar- stjórn og mögulega syngja eilítið með. Ég mun þó ein- ungis leggja í hið síðast- nefnda ef áhorfendur verða mér hliðhollir.“

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.