Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.06.2016, Síða 25
Eygló leggur mikið uppúr því að hafa hluti sem hún tengir við á heimilinu og þá skipta útlit, þægindi og notagildi höfuðmáli.
Litríkt og og fallega innréttað svefnherbergi.
Eygló Ingólfsdóttir fagstjóri.
Fallegir litir og notalegt yfirbragð í
stofunni.
Eygló segist í heildina hrifin af einföldum
og stílhreinum húsgögnum og hlutum.
Smekklega innréttað og bjart baðherbergi.
Hjónin Eygló Ingólfsdóttir og Karl Magnús Karls-
son búa ásamt börnum sínum tveimur og hefðar-
kettinum Sunnu í einbýlishúsi innst á Völlunum í
Hafnarfirði. Húsið er sérhannað utan um fjöl-
skylduna en Karl Magnús teiknaði húsið sem
staðsett er rétt við Hvaleyrarvatn með útsýni yfir
óspillta náttúru og hraun í bakgarðinum.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
Heimili með
sál og sögu
Eygló Ingólfsdóttir, fagstjóristarfsbrautar fyrir einhverfanemendur í MK og ein-
hverfuráðgjafi hjá Specialisterne á
Íslandi, og Karl Magnús Karlsson,
arkitekt hjá VA arkitektum, fluttu,
ásamt börnum sínum, í húsið á Völl-
unum árið 2008. Hjónin segjast fá
innblástur héðan og þaðan, úr dag-
legu lífi og frá vinum og fjölskyldu,
þegar kemur að innréttingu heimilis-
ins.
„Stíllinn á heimilinu er blandaður
og persónulegur. Mér finnst gott að
hafa hluti og húsgögn með „sögu“ í
kringum mig. Húsgögn og ýmsir
nytjahlutir koma úr okkar fjöl-
skyldum,“ útskýrir Eygló sem segist
þó í heildina hrifin af einföldum og
stílhreinum húsgögnum og hlutum.
Fjölskyldan missti alla búslóðina
ásamt bílnum í Vikartindi árið 1997
og segir Eygló það eflaust hafa áhrif
á viðhorf sitt gagnvart verðmætum
og til þess hvað sér þyki mikilvægt
við innréttingu heimilisins.
„Við höfðum búið í Berlín í 10 ár en
þar vorum við í námi og störfuðum
við okkar fög að námi loknu og flutt-
um heim í febrúar 1997 og misstum
allt okkar.
Ég vil hafa bjart og rúmgott í
kringum mig. Legg uppúr því að hafa
hluti sem ég tengi við og þá skiptir
útlit, þægindi og notagildi höfuðmáli
fyrir mig. Ég forðast að hafa of mikið
af húsgögnum og öðru dóti en líður
best með að hafa persónulega hluti
með sál í kringum mig t.d. verk eftir
börnin okkar og vini. Á veggjunum
eru t.d. myndir eftir börnin okkar
síðan þau voru í grunn- og leikskóla,
ljósmyndir eftir Þóru Hrönn Njáls-
dóttur ljósmyndara og listaverk
Doro Berg á veggjunum, en báðar
eru þær góðar vinkonur okkar,“ seg-
ir Eygló og bætir jafnframt við að
verðmætið liggi í að búa notalega
umgjörð fyrir fjölskylduna til að vera
saman.
Aðspurð hvar hjónin kaupi helst
inn á heimilið segir Eygló IKEA hafa
verið í uppáhaldi í gegnum tíðna.
„Ég hef nefnilega þörf fyrir að
breyta og bæta reglulega og þá er
gott að geta keypt flott hannaða hluti
á góðu verði.
Penninn og Casa eru verslanir
með fallega og klassíska hönnun, þar
er ýmislegt sem mig dreymir um.“
Eins og áður hefur komið fram þá
er hún hrifin af hlutum og hús-
gögnum með sögu og þá kemur „Góði
hirðirinn“ sterkur inn.
„Þar hef ég til dæmis keypt 2 stóla
sem við pússuðum upp og glærlökk-
uðum ásamt ýmsum smáhlutum.
Það er gaman að skoða þar og rifja
upp gamlar minningar í leiðinni.“
Hang it all-snaginn frá Eames í
ljósum litum.
26.6. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25
LOKAHELGIN
Verð og vöruupplýsingar í auglýsingunni eru birtar með
fyrirvara um prentvillur. Yfirstrikað verð sýnir fullt verð vöru.
UMBRIA
Hornsófi með tungu. Hægri
eða vinstri tunga. Grátt
eða dökkgrátt áklæði.
Stærð: 330 × 265 × 78 cm.
Aukahlutur á mynd: Hnakkapúði.
335.990 kr. 419.990 kr.
AFSLÁTTUR
20%
EM-TILBOÐ