Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.06.2016, Page 32
Mæðgurnar Fríða Bryndís Jóns-dóttir og Elín Ólafsdóttir stofnuðufyrirtækið Rå oils árið 2013 eftir
að Fríða var búin að fá nóg af því að prófa
hinar ýmsu lausnir til þess að losna við ból-
ur eða svokallað „acne“ og örin sem þeim
fylgja, sem höfðu plagað hana í meira en 10
ár.
Elín, sem er snyrtifræðingur að mennt,
hafði grúskað mikið í mætti ilmkjarnaolía og
var sannfærð um að þær gætu hjálpað dótt-
ur hennar í þessari baráttu í stað sterkra
lyfja og krema. Hún hóf nám í ilmkjarna-
fræði og að því loknu hófst hún handa við að
þróa olíu sem gæti hjálpað Fríðu í barátt-
unni. Markmiðið var að olían væri algjörlega
náttúruleg, vegan, án allra rotvarnar- og
annarra aukaefna og olíurnar sem notaðar
væru, væru ekki prófaðar á dýrum.
Elín gerði margar mismunandi blöndur
sem voru prófaðar þar til rétta blandan
fannst.
„Á þessum 10 árum hafði ég eytt háum
fjárhæðum í hinar ýmsu húðvörur og húð-
lækna, bæði á Íslandi og í London, ásamt
því að gangast undir tvær mjög erfiðar og
sársaukafullar meðferðir með lyfinu Roac-
cutane, og neitað mér um allan mat sem að
hinir ýmsu grasalæknar sögðu að gæti esp-
að upp „acne“, úskýrir Fríða sem þrátt fyrir
þetta, losnaði aldrei við bólurnar, og erfiðu
lyfjameðferðirnar skildu hana eftir með djúp
ör.
Sameina styrkleika sína
„Fyrsta olían okkar, Acne therapy, var upp-
haflega eingöngu þróuð fyrir Fríðu. Vinkon-
ur og vinir fóru að taka eftir breytingunni á
húð Fríðu og vildu vita hvað hún hefði
gert,“ segir Elín.
Í kjölfarið fór boltinn smám saman að
rúlla, Elín fór að þróa olíu til að hjálpa vin-
konu með psoriasis, og þá fæddist Skin
therapy-olían.
Fyrir sjálfa sig vildi hún finna olíu sem
væri hrein og náttúruleg, og þá leit Anti ag-
ing-olían dagsins ljós.
Mæðgurnar eru búsettar hvor í sínu land-
inu, Elín á Íslandi en Fríða í Bretlandi.
„Okkur gengur alveg ótrúlega vel að
vinna saman, þrátt fyrir fjarlægðina. Við er-
um mjög heppnar að því leyti að við erum
með okkar styrkleika og náum að sameina
þá mjög vel. Fríða er t.d. algörlega þessi
„business“-manneskja og sér um allar við-
skiptaáætlanir, fjárhagsáætlanir, stefnu og
þess háttar á meðan ég er skapandi, er sér-
fræðingurinn um olíurnar, og sé alfarið um
alla vöruþróun og auðvitað að blanda olíurn-
ar,“ útskýrir Elín.
Íslensk framleiðsla
Olíurnar eru allar hand-blandaðar af Elínu á
Íslandi í litlum skömmtum. „Við blöndum ol-
íurnar eftir pöntunum til þess að koma í veg
fyrir að olíurnar standi í lengri tíma áður en
að þær komast í hendur viðskiptavina til
þess að tryggja ferskleika og hámarks
virkni,“ segir Elín.
Allar olíurnar og rósavatnið er sett í EP
(Epoxy Phenolic)-húðaðar álflöskur, sem að
útiloka ljós algjörlega og veita nauðsynlega
vörn gegn sveiflum á hitastigi.
„Þetta er nauðsynlegt til þess að viðhalda
gæðum og virkni olía, en bæði ljós og sveifl-
ur í hitastigi brjóta niður eiginleika olía og
gerir það að verkum að notandinn er ekki
að fá fulla virkni úr olíunum,“ útskýrir
Fríða og bætir við að EP-húðunin komi
einnig í veg fyrir að olíurnar komist í beina
snertingu við álið, og tryggir þannig að við-
skiptavinirnir fái olíurnar í óskertum gæð-
um.
„Flöskurnar okkar flokkast einnig undir
hæsta endurvinnslustig, og eru að fullu end-
urvinnanlegar á lágu hitastigi.
Akkúrat núna erum við að vinna að því að
koma vörunum okkar í fleiri verslanir á
bæði Norðurlöndunum og í Bretlandi, en við
höfum hingað til einbeitt okkur meira að
netversluninni erlendis en vörurnar eru
einnig fáanlegar í verslun Alena á Íslandi.“
Tvær nýjar vörur væntanlegar
Aðspurðar hvað sé á döfinni segjast mæðg-
urnar með ýmsa pop-up-viðburði í bígerð
eftir sumarið í þeim löndum sem olíurnar
seljast mest, t.d. Bretlandi.
„Elín er líka alltaf í stanslausri vöruþróun
og í dag erum við með tvær vörur í sköp-
unarferlinu og hlökkum til að koma út með
þær síðar.
Síðan erum við líka bara að njóta þess að
fá að vinna við þetta, þróa nýjar vörur og fá
að heyra hvernig þær hjálpa öðrum. Þetta
er ótrúlega skemmtilegt og gefandi ferðalag
og við hlökkum til að fá að vinna með Rå
oils vonandi til frambúðar,“ segir Fríða að
lokum.
Mæðgurnar Elín
Ólafsdóttir og Fríða
Bryndís Jónsdóttir.
Mikill er máttur
ilmkjarnaolía
Mæðgurnar Fríða Bryndís Jónsdóttir og Elín Ólafsdóttir
reka fyrirtækið Rå oils. Árið 2013 hófu þær að þróa olíu
sem hjálpaði Fríðu að takast á við húðvandamál og síðan
þá hafa tvær olíur og rósavatn bæst við. Olíurnar, sem
eru framleiddar á Íslandi, eru náttúrulegar, vegan, án
allra rotvarnar- og annarra aukaefna.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
Skin therapy olían er róandi og græðandi, en
hún er ætluð húð sem að þjáist af miklum
þurrki, kláða, rósroða, exemi og psoriasis.
Acne therapy-olían sem var upphaflega ætluð
Fríðu, er sérstaklega ætluð fyrir feita húð og
húð sem að þjáist af „acne“ sýkingu og örum.
’Við erum mjög heppnar að því leyti að við erum með okkar styrkleika og náum að sameina þá mjög vel.
Rósavatns andlitsspreyið er hreint
lífrænt rósavatn unnið úr Búlg-
örsku rósinni (rosa damscena).
Spreyið á að gefa raka og næringu.
Anti-aging olían er ætluð fyrir eldri húð. Olían
bætir teygjanleika húðarinnar, gefur raka, nærir,
og dregur úr fínum línum og hrukkum.
TÍSKA
32 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26.6. 2016
Í sýningarrými í anddyri Norræna hússins stendur nú innsetning frá þeim Dainius
Bendika, fatahönnuði, og Guðmundi Jörundssyni, fatahönnuði JÖR. Innsetningin
prýðir anddyrið í tilefni af Listahátíð en síðasti sýningardagur er 26. júní.
Jör – Innsetning