Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.06.2016, Qupperneq 45
26.6. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 45
ROKK Menn hætta í hljómsveitum af ýmsum ástæðum; vegna
listræns ágreinings, ofneyslu áfengis eða fíkniefna, egó-
árekstra eða hreinlega leiðinda. Tom DeLonge, fyrrverandi
söngvari og gítarleikari pönkrokksveitarinnar Blink-182, er
væntanlega nokkuð sér á parti en hann upplýsti í viðtali við
vefmiðilinn Mic.com fyrir skemmstu að hann hefði sagt skilið
við hljómsveitina á síðasta ári til að sinna helsta áhugamáli
sínu – fljúgandi furðuhlutum. „Ég hef alltaf verið heillaður
af geimnum og framtíðinni,“ segir hinn fertugi DeLonge
sem kveðst vera að fást við verkefni sem varði þjóð-
aröryggi. Undir slíkum kringumstæðum sé galið að
ætla sér að túra í níu mánuði á ári með vinsælu rokk-
bandi. Þess má til gamans geta að DeLonge býr að
syninum, Jonas Rocket, eða Jónasi Eldflaug.
Heillaður af geimnum
Tom DeLonge.
FRÆGÐ Bandaríski kvikmyndaleikarinn
Charlie Sheen þótti komast ágætlega frá við-
tali sem fjölmiðlamaðurinn Piers Morgan átti
við hann að viðstöddum gestum á leiksviði í
Lundúnum á dögunum. Í samtalinu leit
Sheen um öxl en hann hefur marga fjöruna
sopið gegnum tíðina. Hann viðurkenndi með-
al annars fyrir Morgan að hafa misst svein-
dóminn hjá ónefndri vændiskonu og að hann
hefði greitt fyrir blíðuna með kreditkorti
föður síns, leikarans Martins Sheen. Charlie
Sheen reynir nú að snúa frá villu síns vegar,
sjálfs sín og ekki síst barna sinna vegna, að
því er kom fram í spjallinu.
Greiddi fyrir blíðuna með korti pabba
Charlie gamli Sheen er farinn að brosa á ný.
AFP
Hún var öguð, hún var hörð, hún
var hortug, hún var sexí. Hver
man ekki eftir Margaret „Hot
Lips“ Houlihan, eða „Kossvöru“,
eins og hún var kölluð upp á ís-
lensku, í Spítalalífi eða M*A*S*H,
einhverjum vinsælustu sjónvarps-
þáttum sem um getur?
„Hot Lips“ var ein af aðalper-
sónunum í þáttunum sem gengu í
hvorki meira né minna en ellefu
ár, frá 1972-1983. M*A*S*H
byggðist á samnefndri skáldsögu
eftir Richard Hooker og kvikmynd
eftir Robert Altman frá árinu
1970 og hermdi frá læknum og
öðrum heilbrigðisstarfsmönnum
á bandarískum spítala í Kóreu
meðan stríðið geisaði. Þessar
grafalvarlegu aðstæður voru væg-
ast sagt skoðaðar í kómísku ljósi.
„Hot Lips“ var yfirhjúkrunar-
fræðingurinn á staðnum; grjót-
hörð og fylgin sér en um leið löðr-
andi í kynþokka. Hún var
fjölþreifin til karla og átti á
löngum köflum í ástarsambandi
við Frank Burns majór. Samband
hennar við aðalsöguhetjuna, Benj-
amin Franklin „Hawkeye“ Pierce
höfuðsmann var á hinn bóginn
stormasamt. Mildaðist þó með ár-
ununum.
„Kysstu mínar
sjóðheitu varir!“
Viðurnefnið hlaut „Hot Lips“ eftir
að þau Burns majór höfðu verið í
ástaratlotum á laun. Er henni svall
móður mælti hjúkrunarfræðing-
urinn: „Kysstu mínar sjóðheitu
varir!“ Það sem hún vissi ekki á
því augnabliki var að æringjar
höfðu falið hljóðnema á staðnum
sem útvarpaði hverju orði um
herbúðirnar.
Það var Loretta Swit sem fór
með hlutverk „Hot Lips“ í öllum
þáttaröðunum ellefu. Hún er af
pólsku bergi brotin en fæddist í
Passaic, New Jersey, árið 1937 og
verður því 79 ára í haust.
Swit nam leiklist í New York og
hóf ferilinn í leikhúsi. Hélt raunar
áfram að koma fram á Broadway
og víðar eftir að hún hafði slegið í
gegn í M*A*S*H. Swit hlaut mikið
lof fyrir túlkun sína á „Hot Lips“
Houlihan og vann meðal annars til
tveggja Emmy-verðlauna.
Swit hefur farið með gesta-
hlutverk í ýmsum öðrum sjón-
varpsþáttum gegnum tíðina, svo
sem Bonanza, The Love Boat,
Gunsmoke og Prúðuleikurunum,
auk þess að leika í allnokkrum
kvikmyndum. Hún kann þó best
við sig á sviðinu og er ennþá virk
leikkona. Meðal verkefna sem hún
hefur tekið þátt í á seinni árum
eru Píkusögur eftir Eve Ensler og
Amorous Crossings eftir Mark
Miller.
Swit giftist leikaranum Dennis
Holahan árið 1983 en þau skildu
tólf árum síðar. Hún hefur ekki
gifst aftur og á engin börn.
Swit er mikil áhugakona um út-
saum og hefur ritað bók um efnið.
Hún er einnig forfallinn Ms. Pac
Man-sjúklingur og er að sjálfsögðu
með slíka græju á heimili sínu. Þá
er Loretta Swit mikill dýravinur
og ötull talsmaður fyrir réttindum
málleysingja. orri@mbl.is
Hjúkrunarfræðingurinn tápmikli Margaret „Hot Lips“ Houlihan. Hún var ein af
aðalpersónunum í hinum geysivinsælu bandarísku sjónvarpsþáttum M*A*S*H .
HVAÐ VARÐ UM „HOT LIPS“ HOULIHAN?
Sjóðheitar varir
Loretta Swit eins og hún lítur út í
dag. Varirnar hafa lítið kólnað.
„Þetta er bara eins og stóri bróðir. Maður má sig
hvergi hræra,“ sagði króatíski knattspyrnuþjálfarinn
Slaven Bilić sposkur á svip þegar Mark Pougatch,
Þorsteinn Joð ITV-sjónvarpsstöðvarinnar í Bretlandi,
sýndi upptöku af honum stökkva upp á borð í
miðjum leik á Evrópumeistaramótinu í Frakklandi.
Tilefnið var mark sem Dimitri Payet, lærisveinn
Bilić hjá West Ham United, skoraði fyrir Frakka
gegn Albönum. Hjartað í Króatanum slær greinilega
alveg jafnört í sjónvarpssal og á vellinum sjálfum.
Bilić er einn af fjölmörgum sparkskýr-
endum sem ITV teflir fram á EM. Af öðr-
um má nefna Ian Wright, Lee Dixon,
Christian Karembeu, Glenn Hoddle og
Norman gamla Whiteside, sem
gerði garðinn frægan með Man-
chester United og norður-írska
landsliðinu. Sjaldséður gestur á
skjánum. Lothar Matthäus
dúkkar upp í leikjum Þýska-
lands en mætti að ósekju slípa
enskuna sína aðeins til.
Ríkissjónvarpið, BBC, deilir
sýningarréttinum með ITV í
Bretlandi og teflir ekki fram
ómerkilegra liði. Nema síð-
ur sé. Gamli markakóng-
urinn Gary Lineker hefur umsjón
með spjallinu í kringum leikina
og lét sér meira að segja vaxa
skegg af þessu tilefni. Lineker
hefur sér til halds og trausts
kappa á borð við Thierry
Henry, Alan Shearer, Rio
Ferdinand og Vincent Komp-
any sem vakið hefur mikla at-
hygli fyrir skelegga framsetn-
ingu á sínu máli. Greinilega
kominn með djobb þegar
hann hættir að spyrna sjálfur.
Vart má á milli sjá hvor
sveitin hefur betur þegar
kemur að leikgreiningu og al-
mennu skemmtigildi. Víta-
spyrnukeppni gæti þurft til að
greina þar á milli.
AFP
SKELEGGIR SPARKSKÝRENDUR
„Bara eins og
stóri bróðir“
Kolbeinn Sig-
þórsson og
Gylfi Þór Sig-
urðsson fagna
á EM.
Slaven Bilić er með skemmtilegustu mönnum í sjónvarpi.
AFP
Skemmtilegir og lifandi þættir um fólk sem
gegnir fjölbreyttum störfum í iðnaði og
hefur skapað sér gott líf með forvitnilegum
áhugamálum utan vinnu.
Mbl.is stendur að þáttunum
í samstarfi við Samtök iðnaðarins.
mbl.is/fagfolkid
Fjölbreytt störf og
forvitnileg áhugamál