Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2014, Blaðsíða 4

Náttúrufræðingurinn - 2014, Blaðsíða 4
Náttúrufræðingurinn 4 Ritrýnd grein / Peer reviewed Meginþættir í vistkerfi Íslandshafs og breytingar á lífsháttum loðnu Sérstöku verkefni til rannsókna á vistkerfi Íslandshafs var hleypt af stokkunum árið 2006 í þeim tilgangi að greina helstu vistfræðilega þætti þessa hafsvæðis, með áherslu á stofnvistfræði loðnu. Umhverfis- og líf- fræðigögnum var safnað í tíu rannsóknaleiðöngrum árin 2006 til 2008 og sjófræðilegar mælingar tímabilsins 1970 til 2011 voru skoðaðar. Lang- tímamælingar sýna vaxandi hita í yfirborðslögum og millisjó Íslandshafs síðustu ár. Kísilþörungar fundust aðallega að vorlagi, en skoruþörungar og smáir þörungar frá vori til hausts. Dýrasvifið einkenndist af fáum ríkjandi tegundum og fisktegundir voru fáar. Fæðuvefur uppsjávarins síðsumars náði yfir um fjögur fæðuþrep að fuglum og spendýrum frátöldum. Á neðsta þrepi voru krabbaflærnar rauðáta, póláta og Metridia longa (fæðuþrep 2–2,4) en á því efsta loðna og kolmunni (~3,6). Calanus-tegundir eru mikilvæg fæða hjá flestum þeirra tegunda sem rannsakaðar voru. Aukið mikilvægi kaldsjávarmarflóarinnar Themisto libellula í fæðu fullorðinnar loðnu í Ís- landshafi í ágúst 2007 og 2008 gæti skýrst af breyttu búsvæði loðnunnar til vesturs. Styrkur næringarefna, frumframleiðslu og átu sýndi greinilega árstíðasveiflu með vorblóma seinni hluta maímánaðar og átuhámarki í júlí til ágúst. Útbreiðsla næringarefna, svifþörunga og dýrasvifs var keimlík að sumarlagi árin 2006–2008 og mótaðist einkum af sjógerðum hafsvæðisins, þ.e. Atlantssjó, pólsjó og svalsjó. Áhrif umhverfisþátta á samfélagsgerð dýrasvifs var kannað með RDA-greiningu. Skýribreyturnar selta, árið 2008, botndýpi, hitastig og blaðgræna skýrðu um 29% af heildarbreyti- leika í samfélagsgerð milliátu. Greiningin leiddi í ljós þrjár meginsam- félagsgerðir eða hópa, atlantískt samfélag í austanverðu Íslandshafi, þar sem rauðáta (Calanus finmarchicus) var algeng, norrænt (arktískt) samfélag norðvestantil þar sem póláta (C. hyperboreus) var áberandi og samfélag sunnantil í hafinu, með tengsl við landgrunnssvæðin, þar sem mikið var af strandsjávarátutegundum. Algengustu fiskar í efri lögum sjávar voru fullvaxta síld, kolmunni og loðna og breytilegt magn fisklirfa og fiskseiða. Útbreiðsla loðnu síðustu ár einkenndist af tilfærslu (hliðrun) til norðurs og vesturs hjá seiðum og til vesturs hjá eldri loðnu, miðað við fyrri ár. Þessar breytingar eru raktar til þess að við hlýnun sjávar hafi skilin milli hlýsjávar og pólsjávar færst norðar og vestar og búsvæði eldri loðnu hafi fylgt þeim. Árslífmassi var metinn 5,3 milljónir tonna af svifþörungum, ~29 milljónir tonna af átu og 1,0 milljón tonn af fiski. Náttúrufræðingurinn 84 (1–2), bls. 4–18, 2014 Ólafur K. Pálsson, Ástþór Gíslason, Björn Gunnarsson, Hafsteinn G. Guðfinnsson, Héðinn Valdimarsson, Hildur Pétursdóttir, Konráð Þórisson, Sólveig R. Ólafsdóttir og Sveinn Sveinbjörnsson Inngangur Hafsvæðið sem yfirleitt er skil- greint sem Íslandshaf afmarkast af Grænlandi til vesturs, Jan Mayen og brotabelti þess til norðurs, Jan Mayen hryggnum til austurs og Grænlandssundi og landgrunns- brúninni norðan Íslands til suðurs (1. mynd). Íslandshaf er yfirleitt 500– 2000 m að dýpt, en grynnra á land- grunni Austur-Grænlands og norðan Íslands, og er því fremur grunnt í samanburði við nálæg norræn höf, þ.e. Noregshaf og Norður-Græn- landshaf. Kolbeinseyjarhryggur liggur eftir endilöngu Íslandshafi um það bil í suðvestur-norðaustur stefnu og nær frá meira en 1000 m dýpi upp á 500 m dýpi á nokkrum stöðum. Hryggurinn skiptir Íslands- hafi í vestur- og austurhluta, þ.e. Blosseville-djúp (Blosseville Basin) og Íslandssléttu (Iceland Plateau). Íslandshaf hefur ekki verið vett- vangur viðamikilla rannsókna hingað til. Fyrri rannsóknir hafa aðallega beinst að eðlis- og efnafræði hafsins, svo sem lýsingum á helstu straumum, sem og myndun, eigin- leikum og dreifingu sjógerða, meðal annars í tengslum við flæði djúp- sjávar um Grænlandssund.1–6 Þá hefur styrkur næringarefna og ólíf- ræns kolefnis í sunnanverðu Ís-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.