Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2014, Blaðsíða 48

Náttúrufræðingurinn - 2014, Blaðsíða 48
Náttúrufræðingurinn 48 Þakkir Páll Reynisson Hafrannsóknastofnun hafði umsjón með tæknilegum hluta fjölgeislamælinga og tók þátt í úrvinnslu gagna. Áhöfn á rannsóknaskipinu Árna Friðrikssyni er þakkað fyrir gott samstarf. Loks þökkum við Sjómælingasviði Landhelgisgæslunnar fyrir heimild til notkunar á sjókorti við gerð 3. myndar. Heimildir 1. . Ottesen, D., Dowdeswell, J.A. & Rise, L. 2005. Submarine landforms and the reconstruction of fast-flowing ice streams within a large Quaternary ice sheet: The 2500-km-long Norwegian-Svalbard margin (57–80°). GSA Bulletin 117, no. 7/8. 1033–1050. 2. Leó Kristjánsson & Geirfinnur Jónsson 1996. Aeromagnetic surveys off South and West Iceland in 1990–1992. Skýrsla RH-06-96. Raunvísinda- stofnun Háskólans, Reykjavík. 31. bls. 3. Clark, C.D., Tulaczyk, S.M., Stokes, C. & Canals, M. 2003. A groove- ploughing theory for the production of mega-scale glacial lineations, and implications for ice-stream mechanics. Journal of Glaciology 49. 240–256. um höfundana Kjartan Thors (f. 1945) lauk B.Sc.(Hons.)-prófi í jarð- fræði frá Háskólanum í Manchester 1969 og Ph.D.-prófi 1974. Hann starfaði sem sérfræðingur á Hafrannsókna- stofnun 1974–1995, og var stundakennari við Háskóla Íslands 1974–1998. Ritstjóri Náttúrufræðingsins 1976– 1980. Frá 1995 til 2013 rak Kjartan eigin jarðfræðistofu, sem nú hefur verið sameinuð Köfunarþjónustunni ehf. Guðrún Helgadóttir (f. 1953) lauk B.Sc.-prófi í jarð- fræði frá Háskóla Íslands 1979 og cand.scient-prófi í jarðfræði frá Háskólanum í Osló 1985. Hún hefur starfað á Hafrannsóknastofnun frá 1985, lengst af sem sérfræðingur. Póst- og netföng höfunda/Authors’ addresses Kjartan Thors Jarðfræðistofa Kjartans Thors/Köfunarþjónustan ehf Héðinsgötu 1–3 IS-105 Reykjavík thors.kjartan@gmail.com Guðrún Helgadóttir Hafrannsóknastofnun Skúlagötu 4 IS-101 Reykjavík gudrun@hafro.is skarpa brún landgrunnsins í mynni Lónsdjúps. Hér hefur fremsti hluti landgrunnsins gefið sig og eftir stendur brotsár, sem veldur því að landgrunnshlíðin er mun brattari en beggja vegna við djúpið. Sjá má fyrir sér að ísinn hafi hlaðið upp seti við landgrunnsbrún. Tiltölulega hröð upphleðsla setsins hafi valdið óstöðugleika þess, og því hafi það hrunið undan eigin þunga. Á 6. mynd má sjá ýmis atriði, sem við teljum rekja uppruna sinn til íss í ytri hluta Lónsdjúps og vera yngstu ummerki íss á svæðinu. Þverhrygg- irnir sjást greinilega, en þarna koma yngri myndanir auk þess í ljós þegar þessari tækni er beitt, þ.e. að nota svarthvíta mynd með lýsingu úr norðaustri. Mest eru þar áberandi langir ásar, sem eru samsíða langás Lónsdjúps, og liggja því hornrétt á þverhryggina. Þessir ásar eru 2–8 metra háir og bil á milli ása er 300–600 metrar. Meðfram austur- hlíð Lónsdjúps koma einnig fram um 5 km langar rákir og grópir sem mynda sveig samsíða hlíðinni. Bil milli þessara grópa er um 100 metrar og dýpt þeirra um 2 metrar. Myndanir af þessu tagi (þ.e. bæði ásar og grópir) hafa til dæmis verið kortlagðar í stórum stíl á landgrunni Noregs, alla leið til Svalbarða og eru nefndar á ensku megascale glacial lin- eations og eru taldar einkenna hrað- skreiða ísstrauma.1 Um er að ræða mishæðir í seti myndaðar undir ís á hreyfingu og þær fylgja stefnu hans.3 Þessar myndanir geta verið frá nokkur hundruð metrum upp í tugi kílómetra að lengd. Breytileg stærð þeirra ræðst meðal annars af undirlaginu sem ísstraumurinn fer yfir. Þannig hafa myndast tiltölu- lega stórir ásar þar sem ísinn gróf sig niður í þverhryggina í utan- verðu Lónsdjúpi. Meðfram austur- hlíð Lónsdjúps nær ísinn ekki niður í þverhryggina og skilur einungis eftir sig tiltölulega lága ása, grópir og rákir. Af myndinni má ráða að ísstraumurinn hefur greinst upp í nokkrar tungur í utanverðu Lóns- djúpi, og er leitast við að benda á þær á 6. mynd. Stærsta tungan er að vestanverðu og tvær minni að austanverðu. Þessar síðastnefndu mynda tungulaga garða við fram- enda sína eins og sjá má á myndinni. Summary Transverse ridges in Lónsdjúp Transverse ridges in the outer part of the Lónsdjúp trough on the SE-Iceland shelf revealed by a 2004 multibeam survey give rise to questions of their origin. The ridges, 8–11 in number, range in width from 100 to 500 metres, and rise above the surrounding floor by 30–40 metres. Their observable lengths are of the order of 9 km. We consider a morainic origin for the ridges, but favour the idea that they were formed as ice carved through topset sediment layers into foresets, where coarse sediments provided greater resistance to erosion. We also point out a broad ridge on the shelf edge, forming a threshold at the seaward end of Lónsdjúp. The southern part of this ridge has been trimmed by a fault scarp where the shelf edge has slipped into deeper water.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.