Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2014, Blaðsíða 30

Náttúrufræðingurinn - 2014, Blaðsíða 30
Náttúrufræðingurinn 30 3. mynd. Kolefnisgreiningar á tveimur kýr- beinum úr Surtshelli.13 Myndin sýnir leið- réttan aldur (Calib 7.0, Stuvier & Reimer © 1986–2014). Greiningarnar gefa svipaðar niðurstöður. Ef gjóskulagagreining Hauks Jóhannessonar11 væri ekki fyrir hendi væri eðlilegast að álykta sem svo að dýrin, sem beinin eru úr, hafi verið felld á 8. eða 9. öld. – Two radiocarbon dates of cattle bones sam- pled in Surtshellir.13 They indicate a prehis- toric age of the remains as the most likely age.11 sinni, með skýringum Þórhalls að mestu óbreyttum, en með útlegg- ingum sínum og þar var margt nýstárlegt og frumlegt, eins og vænta mátti úr þeirri átt. Hann horfir á kvæðið með augum nátt- úrufræðings og finnur ýmislegt í umhverfislýsingum þess sem fellur vel að staðháttum á slóðum Hall- mundarhrauns. Hann endurmetur einnig aldur kviðunnar og færir rök að því að hún hafi verið ort á 10. öld, hugsanlega af sjónarvotti eldsum- brota og hraun rennslis. Páll bendir á að heiðin trúarbrögð og nátt- úrusýn fornmanna hafi verið mjög samtvinnuð og túlkar kvæðið í því ljósi (1., 4. og 5. mynd). Þannig telur hann að menn hafi séð fyrir sér jötna og goð í gosmekkinum og túlkað kynjamyndir í hrauninu á sama hátt sem alskyns vætti. Þótt Páll nefni það ekki berum orðum er augljóst að hann hugsar sér kviðuna miklu eldri en lausamálið í Bergbúaþætti. Þórhallur Vilmundarson telur einnig að svo sé en aðrir norrænufræðingar sem fjallað hafa um Bergbúaþátt gera það ekki. Það nýjasta sem ritað hefur verið um Hallmundarkviðu er grein Heimis Pálssonar í Skírni 2013.16 Hann skýrir kvæðið frá goðfræði- legum sjónarhóli og í því ljósi að það kunni að vera frá heiðnum tíma. Þar koma fram margar athyglis- verðar nýjungar til skilnings á hinum fora texta. Leiðréttur aldur (e.Kr.) – Calibrated date (AD) AAR-7413 1197±36 BP Surt-S2 AAR-7412 1214±41 BP Surt-S1 500 600 700 800 900 1000 árið 1948 og sendi það síðar til rann- sókna og aldursgreininga í Svíþjóð. Það reyndist vera úr smávaxinni kú og kolefnisgreining gaf ártalið 940±100 ár. Þessi greining er ekki nákvæm og skekkjumörkin það víð að ástæðulaust er að styðjast við hana eftir að nýrri og nákvæmari greiningar komu til. Þjóðminjasafnið stóð fyrir rannsóknum á beinaleifum og fleiri minjum í Surtshelli árið 2004, bein voru aldursgreind með nýjustu tækni og þá fékkst aldur sem spannaði árabilið 700–950 e.Kr.13 Greiningarnar voru tvær og bar vel saman (1. tafla, 3. mynd). Eðlilegasta túlkunin á þeim er sú að beinin séu af dýrum sem slátrað var af hellismönnum og þau etin í hell- inum einhverntíma milli 800 og 900. Greiningarnar útiloka samt ekki að þetta kunni að hafa gerst á 10. öld þótt líkurnar séu sáralitlar (eða innan við 5% miðað við 95,4% líkindi) sam- kvæmt skýrslu Þjóðminjasafnsins. Hér ber aldursgreiningum illa saman, öskulagagreining bendir til sögulegs aldurs, kolefnisgreiningar benda fremur til forsögulegs aldurs og því virðast ýmsir trúa því sem fullyrt er á ferðamanna skiltum við Hraunfossa að hraunið hafi runnið fyrir landnám. Páll Bergþórsson veðurfræðingur skrifaði grein um Hallmundarkviðu og Hallmundarhraun í Lesbók Morgun blaðsins 2006 og tekur þar undir kenningu Þórhalls Vilmundar- sonar.16 Páll birti kviðuna í grein hrauninu og efnagreindi gjóskukorn. Niðurstaða hans varð sú að land- námsgjóskulagið liggi rétt undir hrauninu og að hraunið hefði runnið á fyrstu áratugum tíundu aldar (2. mynd).11 Aldur landnáms lagsins hefur verið skilgreindur mjög ná- kvæmlega með með greiningum á gjósku í íslögum Grænlandsjökuls. Það er talið hafa fallið 871±2 e.Kr.12 Þar með mátti ljóst vera að eldar Hallmundarhrauns hefðu verið með fyrstu gosum sem nýbúar Íslands urðu vitni að. Þórhallur endurmetur þó ekki aldur Hallmundarkviðu í þessu ljósi sem þó virðist liggja beint við að gera. Kolefnisgreiningar á fornum beinum úr Surtshelli stinga nokkuð í stúf við vitnisburð öskulaga. Almennt hafa menn talið að beinin séu til vitnis um búsetu manna í hell- inum og hafa tengt þau við Hellis- menn þá sem Landnáma greinir frá að hafi stundað ránsskap á þessum slóðum um eða upp úr landnáms- tíð.13 Hafa ber í huga að menn hafa ekki getað sest að í hellum Hall- mundarhrauns strax eftir að þeir mynduðust. Fyrst í stað hefur verið óverandi þar fyrir hita. Það hafa því vafalítið liðið allnokkur ár frá gos- lokum og þar til hraunið kólnaði nægjanlega svo menn gætu þolað við í hellunum. Aldur beinanna ætti því að vera nokkru lægri en aldur hraunsins. Halldór Laxness14 tók með sér bein úr beinahrúgunni í Vígishellinum þegar hann kom þar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.