Náttúrufræðingurinn - 2014, Side 11
11
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
lögum (0–50 m) í júlí 2006, en yfirleitt
mestur í kalda sjónum í vestanverðu
hafinu og á einni stöð norðaustan
Íslands (6. mynd c). Í ágúst 2007 og
2008 var útbreiðsla átu austlægari.
Greining árstíðabreytinga ofan-
greindra þátta er byggð á gögnum
sem safnað var á sniðum á 68° og
69°N tímabilið 2006–2008. Dýra-
svifsýnum var safnað á tveimur
stöðvum á 69°N og tveimur á 68°N
(7. mynd). Magn nítrats (köfnunar-
efnis) eftir vetrarblöndun var um
10 µmól l-1 um mánaðarmótin apríl/
maí. Frumframleiðni svifþörunga
fór vaxandi frá þeim tíma og hámark
vorblómans var seint í maí (> 1 g C
m-2 dagur-1) en þá hafði gengið hratt
á magn nítrats og kísill var uppurinn.
Í júlí hafði frumframleiðni lækkað
um helming frá vorblómanum í
maí og í ágúst var hún enn lægri.
Á sama tíma hafði styrkur nítrats
í yfirborðslögum lækkað mikið og
voru lægstu gildi nítrats 1,8 µmól l-1
í júlí og ágúst. Árstíðabreytileiki í
átumagni (heildarfjöldi dýra) ein-
kenndist af lágum vetrargildum
(~30.000 dýr m-2), hærri gildum að
vorlagi (~70.000–90.000 í maí) og
einu meginhámarki í júlí og ágúst
(~350.000–370.000). Í nóvember
hafði dýrum fækkað á ný (~60.000).
Loðnulirfur veiddust sunnan
lands og vestan í apríl 2007. Í maí
2007 var útbreiðsla þeirra sam-
felld með norðurströndinni, en
blettótt fyrir sunnan. Í ágúst 2007
veiddust loðnuseiði á litlu svæði í
sunnanverðu Íslandshafi og á einni
stöð úti fyrir Norðausturlandi.
Bergmálsmælingar sýndu á hinn
bóginn meiri útbreiðslu einkum
til vesturs og norðurs (8. mynd a).
Sumarútbreiðslu eins árs ungloðnu
og fullvaxta loðnu (tveggja ára og
eldri) 2006–2008 má skipta í þrjá
flokka: (1) Í júlí 2006 fannst tveggja
ára loðna einkum á grænlenska
landgrunninu sunnan Grænlands-
sunds. (2) Öll þrjú árin fundust
dreifðir flekkir, mest eins árs loðna,
við norðurjaðar íslenska land-
grunnsins. (3) Í ágúst 2007 og 2008
fundust flekkir tveggja ára og eins
árs loðnu með útkanti grænlenska
landgrunnsins í vestanverðu Ís-
landshafi (8. mynd b). Síld (mest
norsk-íslensk vorgotssíld) fannst
aðallega í miðju Íslandshafi í ágúst
2007 og í minna magni í ágúst 2008
austan lands. Kolmunni fannst helst
með utanverðu landgrunni Græn-
lands og austan Íslands í júlí 2006 og
í miðju og austanverðu Íslandshafi í
ágúst 2007 (8. mynd c). Í ágúst 2007
fundust þorsk- og ýsuseiði helst
með landgrunnsbrúninni norðan
lands og í sunnanverðu Íslandshafi
við Kolbeinseyjarhrygg (8. mynd d).
Nýklaktar loðnulirfur á norð-
vesturmiðum í apríl 2007 (9.
mynd b) fundust ekki aftur í
maíleiðangrinum (9. mynd d).
Loðnulirfur, sem safnað var í maí,
klöktust marktækt seinna út á norð-
vesturmiðum en á suðvesturmiðum
(9. mynd c–d). Lirfur á norðaustur-
miðum klöktust jafnvel enn seinna
út (ekki sýnt). Loðnuseiði, sem
veiddust í ágúst, höfðu flest (~80%)
klakist út í fjórðu viku apríl eða
seinna (9. mynd e) og dreifðust á
mun fleiri klakdaga en lirfur í apríl
og maí (9. mynd a–d). Loðnulirfur
frá suðvestursvæðinu klöktust að
mestu út í apríl og hafa því skilað
0
10
20
30
%
0
10
20
30
%
0
10
20
30
%
0
10
20
30
%
Aprílsýni
Norðvesturland
0
10
20
30
%
Maísýni
Norðvesturland
Ágústsýni
Íslandshaf
Maísýni
Suðvesturland
Aprílsýni
Suðvesturland
(a)
(b)
(c)
(d)
(e)
Mars Apríl Maí Júní
H
lu
tfa
lls
le
gu
r
fjö
ld
i -
R
e
la
tiv
e
p
ro
p
o
rt
io
n
Klakdagar - Hatching days
9. mynd. Tíðnidreifing klakdaga loðnulirfa 2007. (a) Suðvestan lands í apríl, (b) norð-
vestan lands í apríl, (c) suðvestan lands í maí, (d) norðvestan lands í maí, (e) í Íslandshafi
í ágúst. – Hatch date frequency distributions of capelin larvae. (a) Off the south west
coast of Iceland in April, (b) off the northwest coast in April, (c) off the south west coast
in May, (d) off the northwest coast in May, and (e) in Iceland Sea in August.