Náttúrufræðingurinn - 2014, Qupperneq 22
Náttúrufræðingurinn
22
meðaltali á ári samanborið við 0,7
árin 1943–1975. Hafa ber í huga
að fjöldi frétta á mismunandi
tímabilum segir ekki endilega til
um heildarfjölda gróðurelda, enda
fréttamiðlar misjafnlega margir sem
og gagnagrunnar frá hverjum tíma,
og sinubrunar þóttu oft og tíðum
ekki fréttnæmir.
Áhugaverðast er að skoða tíðni
elda eftir árstíma (5. mynd). Við
skiptum tímabilinu í tvennt, fyrir og
eftir árið 2000. Fara verður varlega
í túlkun á muninum milli þessara
tímabila í ljósi stærðar útkallsgagna-
grunnsins, fjölda fréttamiðla og frétt-
næmis gróðurelda. Almennt er stóra
myndin svipuð: flestir gróðureldar
verða að vori til, í apríl og maí. Ef
túlka má breytingar milli þessara
tímabila virðist helst sem fleiri eldar
verði í mars eftir 2000 og einnig
verða fleiri eldar yfir sumartímann, í
júní–ágúst og fram í september (júlí
og september utan staðalfrávika
hvors tímabils). Gróðureldatímabilið
virðist því hafa lengst; það byrjar
fyrr og stendur mun lengur. Einnig
er algengt að eldar kvikni kringum
áramót.
6. mynd. Fjöldi gróðurelda stærri en 1 ha á árunum 2006–2013 eftir mánuði. – Number of
wildfires larger than 1 ha in the years 2006–2013.
Íkveikja
72%
Annað
9%
Ókunnar
orsakir
8%
Reykingar
Leikur
barna
3%
5%
2%
Flugeldar Varðeldur
1%
Sjálfs-
íkveikja
Elding
0%
0%
7. mynd. Orsakir gróðurelda (A) og ástæða útkalls (B) vegna elda þar sem gróður brann árin 2007 og 2008. Gögn fyrir 287 gróðurelda
úr gagnagrunni MVS. – Ignition of 287 wildfires (A) and reason of dispatch (B) where vegetation was involved in the fire; from the
MVS database for 2007–2008.
0
1
2
3
Mars Apríl Maí Júní Júlí Ágúst
Fj
öl
di
e
ld
a
(#
)
–
#
fir
es
Bíll
5%
Annar
gróður
4% Jarðvegur
2%
Mosi +
6%
Rusl
12%
Sina +
60%
Bygging
3%
Trjágróður
+
8%
öll útköll slökkviliða á landinu þar
sem gróður kemur við sögu.
Fjöldi gróðurelda
Í fréttum frá því fyrir 1976 fundust
alls 24 fréttir af eldum, mest fjórar
fréttir 1965, en engar fundust um
elda á 18 ára tímabili milli 1943
og 1976 (4. mynd). Leitað var með
leitarorðunum sinueldur, sinubruni,
gróðureldur, gróðurbruni, kjarreldur,
kjarrbruni, skógareldur og skógar-
bruni. Sinubruni og sinueldur gáfu
flestar niðurstöður.
Á árunum 1976 til og með 2002
fundust fréttir af 152 gróðureldum,
mest 21 frétt árið 2000, eða 5,6 að
nokkurn tíma fyrir slökkviliðin að
venjast nýjum gagnagrunni, þannig
að lítið var um færslur í upphafi.
Árið 2003 eru skráðir 67 gróðureldar
í gagnagrunninn og þar er að finna
alla þá gróðurelda sem fundust við
leit í fréttum; það sama á við um hin
árin (2004–2010) sem gögn í útkalls-
gagnagrunninum eru aðgengileg.
Útkallsgagnagrunnur MVS sem við
höfðum aðgang að náði út árið 2010.
Fjöldi skráðra gróðurelda fer
því að verulegu leyti eftir þeim
heimildum sem tiltækar eru hverju
sinni. Á tímabilinu sem útkallsgagna-
grunnur MVS nær yfir eru margfalt
fleiri gróðureldar skráðir en bæði
fyrir það og eftir, enda eru þar skráð
A) B)