Náttúrufræðingurinn - 2014, Page 31
31
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
Hallmundarkviða með
skýringum
Hér á eftir verður farið yfir textann
í Hallmundarkviðu með svipaðri
nálgun og gert er í grein Páls Berg-
þórssonar. Kviðan er birt í heild
sinni með skýringum Þórhalls
Vilmundarsonar og viðbótum Páls.
Síðan er reynt að ráða í innihald
hverrar vísu fyrir sig. Það skal strax
viðurkennt að skilningurinn er víða
nálægt túlkun Páls. Einnig gætir
áhrifa frá Heimi Pálssyni. Ýmsu er
þó bætt við og annað skýrt nánar.
Eldsumbrotin samkvæmt
lýsingu Hallmundarkviðu
Hallmundarkviða lýsir eldgosi
og náttúruhamförum sem verða
samfara því. Svo virðist sem höf-
undurinn hugsi sér að þær stafi
af átökum reginafla, þ.e. jötna og
ása. Goðmögn eldsins takast á og
þar fara fremstir í flokki þrumu-
guðinn Þór og eldjötuninn Surtur.
Hallmundur er einnig fyrirferðar-
mikill í kvæðinu enda er hann ljóð-
mælandinn og segir frá atburðum í
fyrstu persónu.
1. vísa – Hrun verður af völdum risans,
hallandi björg taka að falla, fátt mun
frítt í fornri veðrahöll hins aldna jötuns;
gnýr verður þegar hinn gráhærði höfð-
ingi gengur um bratta hamra. Hall-
mundur stígur hátt höllum fæti í gný
fjalla.
Hér er lýst jarðskjálftum og
skriðuföllum í fjallshlíðum og þau
talin verða af því er Hallmundur
jötunn hraðar sér á vettvang. Þetta
eru forboðar eldgossins, það hefur
ekki hafist fyrirvaralaust. Borgar-
fjörður er þekkt jarðskjálftasvæði svo
ekki er ólíklegt að jarðhræringar hafi
4. mynd. Þór berst við jötna, nefnist þessi mynd eftir sænska
málarann Mårten Eskil Winge (1825–1896). Þór var goð
þruma og eldinga. Hann stóð oft í stríði við jötna og þeir ótt-
uðust engan eins og hann. – Thor's battle against giants is the
name of a painting by the Swedish artist Mårten Eskil Winge.
Thor was the god of thunder and lightning. Olíumálverk
frá 1872, Nationalmuseum, Stokkhólmi. – Oil painting 1872,
Nationalmuseum, Stockholm).
5. mynd. Loki og Sygin eftir Mårten Eskil Winge. Náttúrusýn og goðsögur
fornmanna tengjast víða órofa böndum. Norrænir menn þekktu jarðskjálfta
en ekki eldgos fyrr en eftir fund Íslands. Myndin sýnir hvar Loki Laufeyjar-
son liggur hlekkjaður í helli en yfir honum er eiturormur. Sigyn kona hans
heldur á skál og ver hann fyrir eitrinu. Þegar skálin fyllist þarf hún að fara
frá og skvetta úr skálinni en á meðan drýpur eitrið í andlit Loka. Þá kippist
hann svo hart við að öll jörð skelfur. – Loki and Sigyn by Mårten Eskil
Winge. Loki was one of the Norse gods. He betrayed the other gods. They
shackled him and fastened a venomous snake over his face, and from it poison
dripped. Sigyn, Loki's wife, sits with him holding a basin beneath the drip-
ping venom, yet when the basin becomes full, she carries the poison away;
meanwhile the poison drips on to Loki, causing him to writhe so violently
that the erarth trembles in earthquakes. Olíumálverk frá 1872, Nationalmu-
seum, Stokkhólmi. – Oil painting 1872, Nationalmuseum, Stockholm).