Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit
Ataaseq assigiiaat ilaat

Náttúrufræðingurinn - 2014, Qupperneq 53

Náttúrufræðingurinn - 2014, Qupperneq 53
53 Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags Arnar Pálsson Náttúrufræðingurinn 84 (1–2), bls. 53–60, 2014 Stefnumót skilvirkni og breytileika Svipgerð, erfðir, umhverfi og þróun Í lífríkinu finnast stórkostleg form, stór og smá. Útlit lífvera og starfsemi mynda það sem kallað er svipgerð. Svipgerð lífveru er t.d útlit hennar og bygging, en margir aðrir eiginleikar lífvera eins og efnaskiptageta eða atferli teljast einnig til svipgerðar. Rannsóknir í mörgum fræðigreinum, þroskunar- fræði, ónæmisfræði, atferlisfræði, líf- eðlisfræði og öldrunarlíffræði, hafa sýnt að svipfar er mjög vítt fyrir- brigði.2,4 Það spannar svipgerð, útlit og atferli einstaklingsins, frá fyrstu frumuskiptingu og til dauðadags. Það sem mestu máli skiptir er að Ritrýnd grein / Peer reviewed breytileiki í svipfari er hráefni fyrir þróun. Ef tveir einstaklingar eru ólíkir í atferli (annar sinnir unga sínum en hinn ekki), getur það skipt máli fyrir viðkomu. Og ef erfðir hafa áhrif á ákveðinn breytileika í svipfari er náttúrulegt val óhjákvæmilegt, eins og útskýrt verður síðar. Svipfar er undir áhrifum erfða, gena og til- viljunar, og þróun byggist á sam- spili þessara þátta. Því miður er ekki mögulegt að ræða allar víddir svipfars hér, en áhugasömum er t.d. bent á ágætan kafla um þróun atferlis eftir Hrefnu Sigurjónsdóttur og Sigurð S. Snorrason.5 Hér verður mest fjallað um genin og þroskaferlin sem byggja svipfarið, en vert er að muna að það sem mestu skiptir er breytileiki í svipfari einstaklinga í stofni. Litningar bera erfðaupplýsingar milli kynslóða. Á litningum liggja genin og í flestum lífverum má finna tvær útgáfur (samsætur) af hverju geni. Þetta eru eindirnar sem Mendel greindi fyrstur manna, og þær erfast samkvæmt lögmálum hans og þeirri staðreynd að genin liggja saman á litningum. Samsætur gena sem sitja nálægt á litningum hafa tilhneygingu til að erfast saman vegna þess að endurröðun litninga er frekar sjaldgæf (það þýðir að ef samsæta ákveðins gens er undir sterku jákvæðu náttúrulegu vali, þá getur það leitt til breytinga á tíðni samsæta nærliggjandi gena). Fjöldi gena er ólíkur milli lífvera, en hver maður er með u.þ.b. 23000 gen6 og hvert þeirra í tveimur eintökum. Þetta er arfgerð einstaklingins. Þróunarfræði byggir á þeirri stað- reynd að breytileiki (t.d. í genum, þroskun, starfsemi og atferli) sé raunverulegur. Ekki er horft á líf- verur út frá meðalformi tegundar, heldur á fjölbreytileika t.d. í formi einstaklinga í hópi eða stofni. Þróun felur í sér breytingar á stofnum líf- vera. Orðfærið skiptir máli. Þó talað sé um breytingar á tegundum, er í raun og veru um breytingu á stofni að ræða (samanber lundinn þróast eða lundastofninn þróast). Þróun er afleiðing margra krafta en sá mikilvægasti er náttúrulegt val. – snertiflötur þroskunar og þróunar Í aldanna rás hafa náttúruunnendur og fræðimenn heillast af margbreyti- legum formum, atferli og lífsháttum ólíkra tegunda. Árið 1858 færðu Charles Darwin og Alfred Wallace rök fyrir mikilvægi náttúrulegs vals í mótun og viðhaldi fjölbreytileika lífvera.1 Kenningin um þróun vegna náttúrulegs vals útskýrir samt ekki efnislegar rætur breytileikans; hvernig svartbakar þroskast og krónublöð sólblómanna taka sitt nákvæma form. Eiginleikar lífvera mótast af erfðum, umhverfi og tilviljun. Arfgerð einstaklings í við- eigandi umhverfi leiðir af sér svipgerð í gegnum flókið og fjölþætt ferli sem kallast þroskun.2,3 Hér verður fjallað um grundvallaratriði þroskunar og hvernig þau tengjast þróun lífvera. Greinin er þannig uppbyggð að fyrst eru svipfar og erfðir skilgreind, og samspil þeirra og umhverfisins rædd. Síðan verða lögmál þróunar útlistuð. Þroskun er kynnt sérstaklega, og sam- spil hennar við þróun, t.d. út frá vexti og sérhæfingu fruma. Einnig verður fjallað sérstaklega um örlagakort þroskunar og varðveislu þroskunarferla sem afhjúpa skyldleika lífvera. Að endingu verður rætt um hvernig þróun getur notað breytileika í þroskun, þrátt fyrir að þroskunin sé mjög stöðug.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.