Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2014, Síða 56

Náttúrufræðingurinn - 2014, Síða 56
Náttúrufræðingurinn 56 frumuskiptingarnar eru flestar á hæðina, þá fær gaukur þykkan gogg. Ef vöxturinn er mikill bæði á lengd og breidd klekst piparfugl (t.d. Ram- phastos toco). Lögmál vaxtar þýða að myndun forms þarf ekki endilega að vera undir flókinni stjórn. Það gerir þróun lífvera greiðari. Ef t.d. mismunandi gen hafa áhrif á breidd og lengd goggs fuglanna, þá getur náttúrulegt val hæglega unnið með breytileika í þeim og sniðið líf- verurnar að þörfum umhverfisins þá stundina. Abzanov, Grant-hjónin og félagar rannsökuðu þetta í finkunum á Galapagos.15,16 Afurð calmodulin- gensins hefur áhrif á lengd goggsins og BMP4-boðefnið á þykkt hans. Það er skýr fylgni á milli virkni þess- ara gena og lögunar gogga þeirra sjö tegunda finka sem þau skoðuðu (3. mynd). Á svipaðan hátt getur náttúrulegt val nýtt sér breytileika í genum sem tengjast misvexti. Sú hugmynd var sett fram að höfuðlag mannsins sé vegna misvaxtar. Kúpu Homo sapiens svipar til höfuðkúpu ungra simpansa. Hugmyndin er að í þroskun okkar komi endanlegt simpansaform ekki fram, heldur sitjum við uppi með ofvaxna haus- kúpu simpansabarns.17 Einfaldar breytingar á hlutföllum vaxtar, tímasetningu vaxtar eða innbyrðis afstöðu vefja geta útskýrt mikið af fjölbreytileika í formi og svipfari lífvera. Ólíkar frumugerðir og sérhæfing þeirra Ef þroskun fæli eingöngu í sér vöxt, væru allar frumur hverrar lífveru eins. Engar lífverur eru svo einfaldar, ekki einu sinni svampar. Þeir hampa 7–10 frumugerðum og eru sæmilega skipulegir útlits, þó ekki jafn reglu- legir og ávaxtaflugur. Flugur og aðrar fjölfruma lífverur hafa mun fleiri frumugerðir. Að auki hafa þær skipulagða ása, t.d. eru langflest dýr með fram- og afturenda, bak og kvið, og hægri og vinstri hliðar (ein undantekning eru ígulker og ættingjar þeirra). Þroskun felur í sér myndun þessara meginása, vefja- og frumugerða. Fyrst eru ás- arnir lagðir, síðan eru skilgreindir ólíkir frumuhópar sem skiptast upp og þroskast í nýja vefi eða líf- færi. Fullvaxta lífverur eru til að mynda með sérhæfðar frumugerðir í beinum, blóði, húð og taugakerfi. Frjóvgað egg er ein frumugerð, og í mörgum tegundum má strax greina mun á dótturfrumum eftir fyrstu skiptingu. Við skiptingu frjóvgaðs eggs þráðormsins Caenorhabditis elegans eru örlög beggja dótturfruma ráðin. Segja má að þær hafi „tekið þroskunarlega ákvörðun“. Að loknum þremur skiptingum standa átta frumur, einnig með skilgreind þroskunarleg örlög. Hver þeirra mun geta af sér tiltekinn hluta full- orðna ormsins (4. mynd). Í orminum eru skiptingar og örlög allra fruma þekkt og sérhæfðar frumur ákveðinna vefja nákvæmlega skil- greindar (t.d. taugakerfið hefur 302 frumur og meltingarvegur 34 frumur). Ormurinn hefur 558 frumur við klak, og fullorðnir einstaklingar státa af 959 frumum (hvorki meira né minna, upp á frumu). Ormurinn er því fyrirtaks rannsóknarlíkan í þroskunarfræði. Munurinn á fyrstu tveimur frumunum liggur í staðsetningu sameinda í umfrymi eggsins. Ákveðnar sameindir (kall- aðar PAR) eru algengari í öðrum enda eggsins og önnur dótturfruman fær næstum allar sameindirnar. Þær ýta af stað atburðarás, hafa áhrif á eiginleika frumunnar, tjáningu gena og þess háttar. Hin dótturfruman sem ekki fékk þennan heimanmund leggur á aðra braut.13 Ein leið til að skikka dótturfrumur inn á ákveðnar þroskunarbrautir er sem sagt að leggja þeim til mismunandi nesti. Önnur leið og algengari er sú að frumurnar skiptist á boðum. Til slíkra sam- skipta hafa frumur margvíslegar leiðir en hér verður eingöngu tæpt 2. mynd. Misvöxtur getur leitt til ólíkra svipfarsgerða. Hér eru dæmi um tvo fiska, sem vaxa mismikið á langveginn og hæðina. Vinstra meginn er Kúlufiskur (Takifugu rubripes) en hægra megin Langa (Molva molva). – Picture shows how allometry can influence animal form. The two examples are Takifugu rupripes (left) and Molva molva (right). Myndir/Photos: Wikimedia Commons. 3. mynd. Breytingar á vexti leiða til ólíkra gogga. Tveir megin ásar vaxtar, fram og upp-niður, duga til að útskýra bróðurpart tilbrigða í gerðum gogga. Myndin sýnir venjulegan finkugogg (t.v. uppi), og svo tvö finku tilbrigði þar sem vöxturinn hefur verið á lengdina, eins og í Geospiza scan- dens (t.v. niðri) og meiri á þykktina G. magnirostris (t.h. uppi). Ef vöxtur er mjög mikill bæði á lengd og þykkt, getur goggur- inn orðið eins og á piparfuglum, t.d. Ramphastos toco (t.h. niðri). – Changes in direction of growth lead to differently shaped beaks.

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.