Bókasafnið - 01.06.2015, Blaðsíða 5
5
Bókasafnið 39. árg. 2015
RDA í dyragættinni
Ákveðið hefur verið að innleiða RDA reglurnar á Íslandi og
taka þær í notkun í Gegni, samskrá bókasafna á Íslandi, til að
fylgja alþjóðlegri þróun. Þann 2. febrúar 2015 var ákvörðun
um innleiðingu RDA á Íslandi staðfest. Meginábyrgð á ákvörð-
uninni ber Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn sem
lögum samkvæmt ber að stuðla að þróun starfshátta bóka-
safna á Íslandi. Í stefnu safnsins fyrir árin 2013–2017 er gert
ráð fyrir nýju skráningarumhverfi árið 2016. Aðdragandi
ákvörðunar um innleiðingu fólst að öðru leyti í undirbúningi
og áætlanagerð á vegum skráningarráðs Gegnis, starfsmanna
Landsbókasafns Íslands - Háskólabókasafns og Landskerfis
bókasafna.
Skráningarráð reið á vaðið um skipulagningu innleiðingar-
innar hér á Íslandi að beiðni landsbókavarðar. Það lagði fram
drög að innleiðingaráætlun, skipaði innleiðingarteymi og
fleiri vinnuhópa. Vinna við innleiðinguna hófst formlega 1.
janúar 2015. Þá tók innleiðingarteymið við umsjón verkefnis-
ins og jafnframt tók til starfa verkefnisstjóri í hálfu starfi til eins
og hálfs árs. Áætlað er að innleiðingu ljúki í maí 2016. Form-
legur innleiðingardagur táknar að frá og með þeim degi verði
allar frumskráðar bókfræðifærslur í Gegni samkvæmt RDA. Í
byrjun árs 2015 tók til starfa kennarateymi en þýðingarteymi
hóf störf nokkru fyrr. Skráningarráð skipaði í þessi teymi og
munu þau sjá um helstu verkefni við innleiðingu RDA ásamt
kerfisteymi á vegum Landskerfis bókasafna. Fjárhagslega
ábyrgð á verkefninu ber Landsbókasafn Íslands – Háskóla-
bókasafn. Landsbókavörður gekkst fyrir stofnun stýrihóps
verkefnisstjóra til halds og trausts við veigamiklar ákvarðanir.
Stýrihópurinn er skipaður landsbókaverði, framkvæmdastjóra
Landskerfis bókasafna, borgarbókaverði og formanni skrán-
ingarráðs Gegnis.
Verkefnisstjórinn, Magnhildur Magnúsdóttir, heldur utan
um verkefnið og upplýsingar sem tengjast því, sér til þess að
gögn verkefnisins séu aðgengileg þeim sem á þurfa að halda,
er tengiliður milli hópa og veitir upplýsingar um verkefnið.
Vegna nýrra hugtaka og breyttrar orðanotkunar miðað við
eldri reglur er verkefni þýðingarteymis að sjá til þess að
grunnhugtök verði þýdd á íslensku og meta umfang frekari
þýðinga. Afraksturinn mun birtast á vef Handbókar skrásetj-
ara Gegnis eins og aðrar upplýsingar sem tengjast skráningu
samkvæmt RDA. Kennarateymi ber ábyrgð á, skipuleggur og
stendur fyrir kennslu og þjálfun í RDA skráningu fyrir skrásetj-
ara Gegnis. Það sér einnig um að útbúa kennsluefni á íslensku.
Til að undirbúa kennarateymið hefur meðal annars verið leit-
að eftir erlendri sérfræðiráðgjöf. Þar er bæði um að ræða
heimsóknir á söfn sem eru búin að innleiða RDA og fenginn
erlendur sérfræðingur í RDA til landsins. Á fyrri hluta árs 2016
er ráðgert að halda námskeið fyrir starfandi skrásetjara um
skráningu samkvæmt RDA. Þessi námskeið eru forsenda þess
að skrásetjari viðhaldi skráningarheimild sinni í Gegni. Lands-
kerfi bókasafna ber ábyrgð á verkefnum kerfisteymis. Hlut-
verk þess er að tryggja kerfislega undirstöðu Gegnis og sjá til
þess að reglurnar og kerfið vinni sem best saman.
Að innleiðingunni koma að auki skráningarráð Gegnis,
gæðahópur Gegnis og ritstjórn Handbókar skrásetjara Gegn-
AACR2
Um aðgang bókasafna, stofnana og einstaklinga að erlendum og
innlendum gagnasöfnum : skýrsla nefndar á vegum
menntamálaráðuneytisins / [Sólveig Þorsteinsdóttir ... [et al.]]. -
Reykjavík : Menntamálaráðuneytið, apr. 1999. - 37 s. : töflur ; 30 sm
Gagnagrunnar ; Bókasöfn ; Skýrslur
Sólveig Þorsteinsdóttir 1947 ; Menntamálaráðuneytið
RDA
Um aðgang bókasafna, stofnana og einstaklinga að erlendum og
innlendum gagnasöfnum : skýrsla nefndar á vegum
menntamálaráðuneytisins / Sólveig Þorsteinsdóttir, Jón Þór
Þórhallsson, Andrea Jóhannsdóttir, Sigrún Magnúsdóttir. - Reykjavík
: Menntamálaráðuneytið, apríl 1999. - 37 bls. : töflur ; 30 sm
Gagnagrunnar ; Bókasöfn ; Skýrslur
Sólveig Þorsteinsdóttir 1947 ; Jón Þór Þórhallsson 1939 ; Andrea
Jóhannsdóttir 1947 ; Sigrún Magnúsdóttir 1950 ;
Menntamálaráðuneytið
AACR2
Halldór Laxness 1902-1998
Salka Valka / Halldór Laxness. - [5. útg.]. - Reykjavík : Vaka-Helgafell,
1989. - 453 s. ; 21 sm. - 1. útg.: 1931-1932
Skáldsögur ; Íslenskar bókmenntir
RDA
Halldór Laxness 1902-1998
SALKA VALKA / HALLDÓR LAXNESS. - 5. útgáfa. - Reykjavík :
Vaka-Helgafell, 1989. - 453 bls. ; 21 sm. - 1. útgáfa: 1931-1932
Skáldsögur ; Íslenskar bókmenntir
Tvö dæmi um skráningu, annars vegar samkvæmt AACR2, hins vegar samkvæmt RDA. Þegar höfundar eru fleiri en þrír er heimilt að greina þá
alla samkvæmt RDA. Upplýsingar um höfunda má greina án hornklofa þótt þær komi ekki fram á titilsíðu. Skammstafanir eru að mestu aflagðar,
nema mælieiningar og nokkur orð sem hefð er fyrir að skammstafa í íslensku. Bls. er til dæmis hefðbundin skammstöfun fyrir blaðsíður og
verður tekin upp í stað s. fyrir síður sem notað hefur verið í Gegni. Texta á titilsíðu með hástöfum er heimilt að taka þannig upp samkvæmt RDA.
Hvort svo skuli gert í Gegni er meðal þess sem er háð ákvörðun skráningarráðs.