Bókasafnið


Bókasafnið - 01.06.2015, Blaðsíða 48

Bókasafnið - 01.06.2015, Blaðsíða 48
48 Bókasafnið 39. árg. 2015 Konstfack og skoðuðu efnissafnið þar. Í lokaskýrslu eftir ferð- ina lýsa þeir reynslu sinni svo: „Eitt af því markverðasta sem við sáum þar og jafnframt í allri ferðinni var efnissafn, þ.e. safn sýnishorna ýmissa efna, t.d. plast-, textílefna o.fl sem er hluti af bókasafni Konstfack. Nemendur og kennarar gátu fengið sýnishornin lánuð eins og bækur, þau voru strikamerkt og lánuð gegn- um bókasafnskerfi safnsins. Við vorum mjög hrifnar af efnissafninu og hugmyndinni á bak við það en þetta var í fyrsta skipti sem við sáum og heyrðum af slíku safni. Fyrir skóla eins og Tækniskólann þá væri frábært fyrir nemendur okkar í hönnunar- og listgreinum að hafa aðgang að efnis- safni þar sem þeir gætu ekki einungis lesið um eiginleika þeirra efna sem þeir vilja nota heldur einnig þreifað á þeim, fundið mismunandi áferð og gert sér þannig betur grein fyrir mismunandi eiginleikum efna“ (Ingibjörg Rögnvalds- dóttir og Ragnhildur Blöndal, 2010). Eftir ráðstefnuna í fyrrasumar hefur orðið vart við aukinn áhuga meðal bókasafna sem þjóna nemendum í list- og hönnunarnámi á því að koma upp efnissafni hér á landi. Eins og í Stokkhólmi þá er þörfin til staðar, ekki síst hjá nemendum Listaháskóla Íslands og Myndlistaskólans í Reykjavík en einnig hjá öllum þeim nemendum sem leggja stund á nám í list- og hönnunargreinum, hvort heldur sem er á framhalds- eða háskólastigi. Starfandi listamenn og hönnuðir og ýmsar stofn- anir hafa einnig sýnt málinu áhuga. Það má vel hugsa sér að byrja á að stofna íslenskt safn með íslensku hráefni. Safn sýnis- horna úr náttúrunni og íslenskum iðnaði sem gæti gagnast nemendum í list- og hönnunargreinum, arkitektum, hönnuð- um, listamönnum og öðrum sem huga að og starfa við list- sköpun. Á safninu yrði aðstaða til rannsókna þar sem hægt væri að handfjatla sýnishornin til að gera sér gein fyrir eigin- leikum efnisins og vekja hugmyndir. Lykt sem upplifun er líka markmið. Möguleikarnir eru endalausir. Efnissöfn verða hins vegar ekki sett upp á einum degi og það er erfitt fyrir fámenna skóla og bókasöfn að koma sér upp efnissafni sem stæði und- ir nafni. Það er því okkar tillaga að framhalds- og háskólasöfn- in sem áhuga hafa á málinu vinni saman að uppbyggingu efnissafns sem nýst getur nemendum þeirra. Heimildir Berggren, J. (2006). Materialbibliotek - vad är det? (meistaraprófsritgerð). Umeå: Umeå Universitet. Sótt af http://umu.divaportal.org/smash/record. jsf?pid=diva2%3A144719&dswid=1278 Ingibjörg Rögnvaldsdóttir og Ragnhildur Blöndal. (2010). [Skýrsla] (óbirt efni) Martling Palmgren, L., & Schmidt, O. (2003). Materialbibliotek på Konstfack: en förstudie. Stockholm: Konstfack. Sótt af https://www.konstfack.se/ PageFiles/177/KU%20rapport%2003%20MatBib%20web.pdf Ég er einn af mestu ritsnillingum, sem ritað hafa íslenska tungu. Og sál mín er víð og djúp eins og alvaldið. Ég er skáld og fræðimaður, heimspekingur og meistari í orðsins list. Mér er og gefin sú gáfa að geta hugsað og rannsakað vísindalega. En ástæður mínar hafa meinað mér að fást við vísindastörf. Ég hefi orðið að gera mér að góðu að vera bara vesæll fræðimaður. Þórbergur Þórðarson , Bréf til Láru Allar bækur eru góðar. Og allar bækur eru vondar. Engar bækur eru allar góðar og engar heldur allar vondar. Allar bækur eru bæði góðar og vondar eða vondar og góðar. Þórbergur Þórðarson , Bréf til Láru
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Bókasafnið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.