Bókasafnið - 01.06.2015, Síða 36
36
Í greininni verður farið yfir stöðuna í yfirfærslu hljóð- og
myndefnis (e. AV, audiovisual). Þetta verður skoðað út frá
reynslu höfundar í starfi safnastjóra safnadeildar RÚV (Ríkisút-
varpsins) og heimildum úr fræðunum. Safnið hefur oft ratað í
fjölmiðla vegna þess hve mikilvæg gögn eru varðveitt þar
enda er menningararfleifð geymd í þessari gullkistu. Gullkist-
an er yfirheiti á gögnunum sem eru varðveitt í safni RÚV. Al-
mennt er talið að gögn sem ekki hafa verið yfirfærð nú þegar
geti legið undir skemmdum, meðal annars vegna kapphlaups
um ný tæki og tól. Mörg þeirra eru að úreldast og varahlutir í
afspilunarbúnað að hverfa af markaði. Einnig fara þeir starfs-
menn sem hafa sérfræðiþekkingu, sem nýtist við yfirfærslu
gagna, á eftirlaun á næstu árum, gögnin sjálf eru að eldast og
jafnvel að skemmast.
Stóra spurningin er hvort við séum að tapa kapphlaupinu
um björgun þeirra menningarverðmæta sem hljóð- og
myndasafn RÚV hefur að geyma. Erum við örugg með varð-
veislu þessara gagna á stafrænu formi?
Safnefni RÚV
Samkvæmt útvarpslögum (Lög um Ríkisútvarpið, fjölmiðil í
almannaþágu nr. 23/2013) skal RÚV varðveita hljóðritanir,
filmur, myndefni og aðrar sögulegar minjar, sem ætla má að
hafi menningarlegt og sögulegt gildi fyrir íslensku þjóðina og
heyra ekki sérstaklega undir lög um skylduskil safna. Allt dag-
skrárefni RÚV er því varðveitt til frambúðar í heild sinni og
tryggja þarf aðgengi að því. Hlutverk safnadeildar er að varð-
Björgun og varðveisla menningarverðmæta
– hljóð og mynd
veita dagskrárefnið og gera það aðgengilegt til frekari dag-
skrárgerðar og rannsókna. Þannig varðveitum við jafnframt
þjóðarsöguna eins og hún endurspeglast í dagskránni. Safn-
adeildin er þjónustudeild fyrir starfsemi RÚV og er safnið
einnig opið almenningi. Meginverkefni deildarinnar er að
varðveita eldra efni, afla nýrra gagna og skipuleggja og miðla
efni og upplýsingum. Lögð er áhersla á að skráning efnis sé
rétt frá byrjun en skráningarferlið hefst hjá dagskrárgerðar-
fólki (RÚV, 2014).
Það er lagaleg skylda RÚV að geyma eigin dagskrá. RÚV er
ekki skylt að geyma varanlega aðsent efni eins og til dæmis
erlenda þætti, þætti sem RÚV kaupir sýningarrétt á og því um
líkt. Samkvæmt lögum um skylduskil safna (Lög um skylduskil
nr. 20/2002) skal Ríkisútvarpið skila útsendri dagskrá bæði
hljóðvarps og sjónvarps. Lykilhlutverk safnadeildar RÚV er að
varðveita og skrá efnið (RÚV, 2014). Með því er verið að opna
fyrir framtíðarnotkun á efninu og tryggja fyrst og fremst að
það sé finnanlegt. Því er gríðarlega mikilvægt að lýsigögn
(e. metadata) fylgi með strax frá byrjun. Allar upplýsingar
komi strax með hverju gagni sem skilað er á safnið.
Starfsfólk Safnadeildar RÚV hefur unnið upplýsingar upp úr
gagnagrunnum safnsins um hvað er til af gögnum í geymslum
þess og í Kvikmyndasafni Íslands. Út frá gögnum var reiknað-
ur meðalafspilunartími hvers forms. Eldra dagskrárefni á safni
er eingöngu til í einu eintaki (sjá töflu 1). Hljóðvarp er varð-
veitt á lakkplötum, böndum og geisladiskum. Sjónvarp er
varðveitt á filmum, tommum, betu og DVC-pro. RÚV á einnig
Margrét Sigurgeirsdóttir er safnastjóri RÚV. Áður var hún forstöðumaður Lindasafns og
verkefnastjóri á Bókasafni Kópavogs. Margrét er með BA-próf frá Háskóla Íslands í bókasafns-
og upplýsingafræði með viðskiptafræði sem aukagrein, próf í verðbréfamiðlun frá Háskólanum í
Reykjavík og MS-próf í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands.