Bókasafnið


Bókasafnið - 01.06.2015, Page 49

Bókasafnið - 01.06.2015, Page 49
49 Skýrsla um 80. þing IFLA í Lyon, Frakklandi 2014 Anna María Sverrisdóttir, MLIS í bókasafns- og upplýsingafræði og starfsmaður á Landsbókasafni Íslands-Háskólabókasafni frá 1999. Dagana 16.-22. ágúst 2014 sótti ég IFLA ráðstefnu sem var haldin í Lyon, Frakklandi. Þema ráðstefnunnar var „Libraries, Citizens, Societies: Confluence for Knowledge“. Ráðstefnugestir voru í kringum 4.000, þar af 14 Íslendingar. Ég var ein af tveimur sem fór frá Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni (Lbs.-Hbs.). Ráðstefnudagar voru fimm, frá sunnudegi til fimmtudags, en föstudagur og laugardagur voru helgaðir bókasafnsheimsóknum og skoðunarferðum. Samkvæmt venju var boðið upp á fundi fastanefnda og fagráða fyrir ráðstefnuna. Ég lét mér nægja að sækja fyrirlestra frá og með sunnudeginum. Ráðstefnan var haldin í Cité Internationale í Lyon sem er mitt á milli árinnar Rhône og almenningsgarðsins Parc de la Tête d’Or. Þetta er hin glæsilegasta ráðstefnumiðstöð með 26 ráð- stefnusölum í nokkrum byggingum. Mitt á milli bygginganna eru yfirbyggðir veitingastaðir, kaffihús og önnur þjónusta sem nýtist ráðstefnugestum. Það var tilvalið að fara í garðinn hinum megin við götuna til að rétta úr sér eftir alla fræðsluna, borða nesti og spjalla við kollega. Nokkrar úr vinkonuhópnum gengu daglega meðfram ánni Rhône úr miðbænum (þar sem við gistum) til miðstöðvarinnar, en ég gekk einu sinni. Lyon sem er í mið-austur Frakklandi er afskaplega falleg borg, sem hefur margt upp á að bjóða fyrir ferðamenn, ekki síst sælkera, en Lyon er þekkt fyrir góðan mat og eðalvín. Í námunda við Lyon er hið margrómaða vínræktarhérað Beaujolais. Dagskrá IFLA var fjölbreytt að vanda og þéttskipuð frá morgni til kvölds. Á hverjum degi var boðið upp á fyrirlestra- raðir (e. session) þar sem fjallað var um ákveðið efni. Stundum var erfitt að velja á milli þar sem tímarnir sköruðust á þeim fyrirlestrum sem ég hafði áhuga á. Sunnudagur 17. ágúst Ég mætti ásamt fleirum frá Íslandi á opnunarhátíðina sem fór fram kl. 10.30 í gríðarstórum ráðstefnusal (l‘Ampithéatre). Hátíðin var sett með hefðbundnum ávörpum; borgarstjórans í Lyon, forstöðumanns franska þjóðbókasafnsins (Bibliothèque nationale de France), menntamálaráðherra og menningar- málaráðherra Frakklands og helstu ábyrgðar- og nefndar- manna IFLA þingsins. Að þeim loknum var boðið upp á skemmtilega danssýningu þar sem hópur ungra manna dans- aði skrykkdans (e. breakdance). Eftir hádegishlé fór ég á Session 72: Library standards: confluence with world trends – Committee on Standards. Síðasta erindið fannst mér áhugavert, en það var flutt af David McMenemy frá Strathclyde háskólanum í Glasgow. Hann tal- aði um mikilvægi þess að móta stefnu og reglur um notkun á tölvubúnaði og löglega netnotkun (Acceptable use policies, AUPs) á almenningsbókasöfnum. Slíkar reglur ættu að hvetja notendur til að nota upplýsingar (af Netinu) rétt og á löglegan og ábyrgan máta. McMenemy velti því fyrir sér hvort starfsfólk bókasafna gæti ábyrgst að notendur skyldu þessar notkunar- reglur og vissu hvað fælist í þeim. Hvernig má gera þessar reglur aðgengilegri og skiljanlegri til að þjóna notendum sem best, en tryggja um leið öryggi bókasafnsins? Mánudagur 18. ágúst Ég lagði áherslu á Session 86 vegna þess að ég vinn við skrán- ingu efnis af ýmsu tagi og nýrra nafnmynda stofnana. Það er margt að gerast á þessu sviði, einsog innleiðing nýrra skrán- ingareglna RDA (Resource Description and Access). Fyrirlestra-

x

Bókasafnið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.