Bókasafnið - 01.06.2015, Blaðsíða 29
29
Bókasafnið 39. árg. 2015
heildarsafninu til eigin nota. Frumútgáfum korta ásamt tölvu-
skrám hefur nú þegar verið skilað til Þjóðskjalasafns Íslands til
varðveislu.
Aðgengi að Orkugrunnkortum og Jarðkönnunarkortum
hjá Orkustofnun
Með þeirri tækni sem komið hefur fram fyrir kortasjár á und-
anförnum tveimur áratugum hefur orðið bylting í möguleik-
um til að birta gagnaþekjur með afmörkun kortblaða í ein-
stökum kortafl okkum. Orkuvefsjá Orkustofnunar er eina ís-
lenska kortasjáin, enn sem komið er, sem veitir aðgengi að
upplýsingum um útgefi n sem óútgefi n kort, gegnum þekjur
með blaðskiptingum kortafl okka, þar sem fá má fram upp-
lýsingar um einstök kort, kortafl okka (Orkugrunnkort og Jarð-
könnunarkort) og myndir af kortum, með því að smella á reiti
sem sýna hvaða svæði á landinu hvert kort þekur. Verkefnið
hefur leitt til mikils hagræðis fyrir fj ölmargar stofnanir og sér-
fræðinga sem nota kortin, en nú fæst góð yfi rsýn yfi r safnkost-
inn og aðgengi fæst að kortunum á stafrænu formi (rasta-
gögn). Með verkefninu hefur komið í ljós að mikilvægt er að
ganga enn lengra í að afmarka og aðgreina sértækari korta-
fl okka innan áðurnefndra yfi rfl okka og hefur Orkustofnun
unnið að slíku tilraunaverkefni.
Það er mikilvægt fyrir notendur korta að geta leitað í stórum
kortaskrám á Netinu. Landsbókasafn Íslands – Háskólabóka-
safn rekur sérstakan vef „Íslandskort.is“ þar sem fl etta má í
gegnum lista yfi r útgefi n eldri kort, kalla fram skrár og upp-
lýsingatexta og hlaða niður myndum af einstökum kortum
(Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn, 2014). Landmæl-
ingar Íslands og Orkustofnun veita aðgengi að leitarvalmynd-
um á vefsíðum sínum þar sem mögulegt er að skilgreina leitir
í skrám fyrir kortasöfn stofnananna, en þar má einnig skoða
og hlaða niður myndum af kortum (Landmælingar Íslands,
2014; Orkustofnun, 2014a og 2014b).
Æskileg þróun verkefna á landsvísu
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn og Þjóðskjalasafn
Íslands bera lögum samkvæmt ábyrgð meðal annars á varð-
veislu landfræðilegra gagna af Íslandi. Mikilvægt er að horfa
til framtíðar og styðja söfnin í því að vinna meira saman á
þessu sviði en hingað til. Til dæmis gætu þau stuðlað að upp-
setningu á nýjum miðlægum vefl ausnum þar sem mögulegt
yrði að leita að öllum íslenskum kortum eftir reitum í korta-
vefsjá, hvort sem kortin hafa verið formlega prentuð og út-
gefi n eða ekki. Einnig þyrfti að koma upp vefsíðu með leitar-
valmynd þar sem mögulegt yrði að leita í heildarkortaskrá og
fá þar upplýsingar um öll kort af landinu, hverrar gerðar sem
þau eru. Þessi verkefni; (a) íslensk kortavefsjá og (b) leitarbær
gagnagrunnur á Netinu yfi r öll íslensk kort, eiga þó líklega
Kortasafn LMÍ - Valmynd fyrir leit í kortaskrá Landmælinga Íslands
Aðgengi á Netinu að upplýsingum um kort Orkustofnunar fæst gegnum
Orkuvefsjá og leitarvalmynd fyrir kortaskrá á vef stofnunarinnar