Bókasafnið


Bókasafnið - 01.06.2015, Blaðsíða 33

Bókasafnið - 01.06.2015, Blaðsíða 33
33 Bókasafnið 39. árg. 2015 bárust voru góðar og gildar en um sumt gætti nokkurs mis- skilnings. Varðandi rannsóknarfrelsi akademískra starfsmanna er skýrt tekið fram í stefnunni að sækja megi um undanþágu frá birtingu í opnum aðgangi ef nauðsyn krefur. Slíkar undan- þágur ná meðal annars til birtingar í tímaritum með háum áhrifastuðli, sem eru ekki í opnum aðgangi, og reynslan frá erlendum háskólum, svo sem Harvard, sýnir að slíkar undan- þágur eru yfirleitt veittar. Það er alls ekki ætlunin að koma í veg fyrir birtingu í hágæðatímariti. Þar að auki leyfa flestir út- gefendur núorðið að greinar, sem birtast í tímaritum sem þeir gefa út, séu birtar í opnum aðgangi í rafrænu varðveislusafni viðkomandi stofnunar. Stundum kemur til ákveðin birtingar- töf en yfirleitt er ekki um að ræða nema 6, 12 eða 18 mánuði. Birting í varðveislusafni er reyndar algengasta leið flestra há- skóla til að fullnægja kröfunni um opinn aðgang. Í öðru lagi er einnig skýrt tekið fram í stefnunni að hún nái hvorki til bóka né bókarkafla. Þegar talað er um opinn aðgang er yfirleitt eingöngu um að ræða vísindagreinar og í stefnu Háskóla Íslands er áréttað að svo sé einnig þar. Hvað varðar útgáfu íslenskra tímarita verður að sjálfsögðu að gæta varúð- ar, en fram hefur komið að staðan á Íslandi er síður en svo lakari hvað varðar aðgang en annars staðar í hinum vestræna heimi, eins og fram kemur í ofannefndri grein Ians Watson og Guðmundar A. Þórissonar. Sumir hafa áhyggjur af því að faglegar kröfur séu minni og ritrýni ekki eins vönduð í tímaritum sem gefin eru út í opnum aðgangi. Tímarit eru að sjálfsögðu misjöfn að gæðum hvort sem þau eru í opnum aðgangi eða ekki. Í könnun sem gerð var af Thomson Scientific 2004 kom fram að á hverju fræðasviði væri að minnsta kosti eitt tímarit í opnum aðgangi sem væri mjög framarlega í lista yfir áhrifamestu tímarit á því sviði.iii Að sögn Peters Suber, forstöðumanns Harvard Office for Schol- arly Communication, hefur fjöldi tímarita í opnum aðgangi með háan áhrifastuðul aukist talsvert síðan könnunin var gerð.ix Kostnaður sem fylgir birtingu í opnum aðgangi getur vissu- lega verið hindrun. Mörg gæðatímarit krefja höfunda sína um gjald fyrir birtingu í opnum aðgangi. Flest ritrýnd tímarit sem gefin eru út í opnum aðgangi fara samt ekki fram á slík gjöld og samkvæmt upplýsingum á vef DOAJ eru þau nú 65% allra OA tímarita. Þó getur kostað háa upphæð að birta grein í tímariti í opnum aðgangi sem tekur gjald fyrir, til dæmis kost- ar hver grein sem birt er í PLOS tímariti $1350-$2900.x Dæmi eru um að birtingargjöld séu jafnvel enn hærri. Þess vegna skal það ítrekað að birting í varðveislusafni er algengasta leið flestra háskóla til að fullnægja kröfunni um opinn aðgang og um leið sú ódýrasta. Hún kostar akademíska höfunda ekkert og rannsóknarstofnanir borga einungis kostnað við rekstur safnsins. Sá kostnaður er hverfandi miðað við birtingargjöld. Í apríl 2013 voru drögin kynnt á háskólaþingi. Elín Soffía Ólafsdóttir gerði grein fyrir störfum starfshópsins. Í umræðum eftir kynninguna tóku margir til máls og höfðu flestir jákvæða afstöðu gagnvart stefnudrögunum. Flestir voru þó sammála því að huga þyrfti að góðri kynningu á drögunum og að taka sem og samningagerð við útgefendur og að háskólinn yrði að sjá til þess að mönnum yrði veitt tilhlýðileg ráðgjöf varðandi birtingarleyfi. Bent var á að afkomu íslenskra tímarita gæti verið ógnað ef höfundar birtu greinar í opnum aðgangi í varð- veislusafni svo sem Skemmunni og að mikilvægt væri að eiga gott samstarf við íslenska útgefendur og leyfa birtingartöf í samráði við þá. Ennfremur var bent á að semja þyrfti sérstakar reglur um skil lokaritgerða nemenda við háskólann. Þegar starfshópurinn skilaði drögunum af sér var lögð áhersla á ítarlega kynningu stefnunnar fyrir starfsmenn há- skólans. Það gekk því miður ekki eftir og var kynning meðal akademískra starfsmanna til að byrja með í mýflugumynd. Drögin voru ekki birt almennt innan háskólasamfélagsins en haustið 2012 voru þau send víða til umsagnar, meðal annars til allra fræðasviða, Kennslumálanefndar, Gæðanefndar, Stúd- entaráðs, Vísindanefndar, Háskólaútgáfunnar og Landsbóka- safns Íslands – Háskólabókasafns. Í mars 2013 fékk starfshópurinn síðan senda samantekt um- sagnanna ásamt umsögnunum sjálfum. Í samantektinni kom fram að flestir umsagnaraðilar væru í meginatriðum sammála drögunum og töldu þau almennt vönduð og vel unnin. Flestir töldu samt að ræða þyrfti stefnuna frekar áður en hún yrði endanlega samþykkt og að þörf væri á betri kynningu um stefnuna og opinn aðgang almennt. Helstu áhyggjuefni um- sagnaraðila má flokka í eftirfarandi yfirlit: 1. Skerðing á rannsóknarfrelsi. 2. Léleg ritrýni sem ógnað gæti gæðum rannsóknarniðurstaða 3. Áhrif á íslenska útgáfu 4. Bókaútgáfa og opinn aðgangur 5. Fjármögnun opins aðgangs Hvað varðar skerðingu á rannsóknarfrelsi þá höfðu um- sagnaraðilar áhyggjur af því að birtingarfrelsi akademískra starfsmanna yrði skert, að þeir gætu ekki lengur valið það tímarit sem þeir vildu birta greinar sínar í og þess vegna yrði ekki ávallt unnt að birta í tímaritum með háum áhrifastuðli. Það yrði að heimila birtingu á þeim vettvangi þar sem mestar kröfur eru gerðar, svo sem í sumum tímaritum sem Elsevier gefur út, en Elsevier styður ekki opinn aðgang nema að litlu leyti. Gæðanefnd taldi nauðsynlegt að tryggja að stefnan yrði ekki til þess að draga úr gæðum faglegrar ritrýni. Nokkrir umsagnaraðilar nefndu útgáfu á bókum og bent var á að fjárhagslegar forsendur til útgáfu bæði íslenskra bóka og tímarita væru brostnar ef gerð yrði krafa um birtingu í opnum aðgangi. Áhyggjur af fjármögnun birtingar í opnum aðgangi voru talsverðar og komu fram hjá flestum umsagnaraðilum. Aka- demískir starfsmenn háskólans höfðu áhyggjur af því að kostnaðurinn myndi leggjast á þá persónulega, skerða rann- sóknarfé þeirra eða hafa í för með sér skert ritakaup. Það var gleðiefni að umsagnaraðilar skyldu almennt hafa jákvæða afstöðu til stefnudraganna. Allar ábendingar sem
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Bókasafnið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.