Bókasafnið


Bókasafnið - 01.06.2015, Blaðsíða 27

Bókasafnið - 01.06.2015, Blaðsíða 27
27 Biðstaða kortasögunnar og vefaðgengi að upplýsingum um íslensk kort Þorvaldur Bragason er landfræðingur með meistarapróf frá Háskóla Íslands 2007 á sviði landrænnar upplýsingafræði. Hann starfaði í aldarfjórðung hjá Landmælingum Íslands, lengst af sem deildar- og sviðsstjóri, en er nú verkefnisstjóri gagnamála á Orkustofnun. Inngangur Saga kortagerðar á lýðveldistímanum á Íslandi er brotakennd og að stærstum hluta óskrifuð. Sáralítið finnst af rituðum texta um gerð og útgáfu hinna ýmsu kortaflokka frá þessum tíma. Skráning og framsetning upplýsinga um kortin á Netinu hefur einnig lengst af verið takmörkuð. Eftir því sem lengra líður verður erfiðara að finna heimildir um þessa sögu, en enn eru einhverjir til frásagnar um þann fróðleik sem safna þarf fyrir skrásetningu á kortasögu síðustu áratuga. Þetta á bæði við um sögu útgefinna kortaflokka og óútgefinna, en flestir þeirra eru geymdir í skjalasöfnum opinberra stofnana. Mikilvægt er að stjórnendur íslenskra stofnana stuðli að bættri skráningu upplýsinga um alla helstu kortaflokka sem til hafa orðið hér á landi í seinni tíð þannig að birta megi skrárnar á Netinu og skrifa samhliða eða í framhaldi af því sögu hvers kortaflokks. Kortasaga Íslendinga Kortasaga Íslands var lengi framan af fyrst og fremst tengd vinnu erlendra aðila við kortagerð af landinu, en þrjú megin- ritverk eru venjulega nefnd þegar rætt er um útgefna sögu korta af Íslandi. Islands kortlægning eftir N.E. Nörlund kom út í stóru broti á fyrsta ári lýðveldisins og segir sögu kortagerðar Dana á Íslandi fram að lýðveldisstofnun (Nörlund, 1944). Kortasaga Íslands, hið mikla stórvirki Haraldar Sigurðssonar bókavarðar, kom út í tveimur stórum bindum á áttunda ára- tug síðustu aldar, en þar er rakin ítarlega saga íslenskra korta til ársins 1848 (Haraldur Sigurðsson, 1971 og 1978). Landmæl- Útgefin rit um kortasögu Íslands
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Bókasafnið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.