Bókasafnið


Bókasafnið - 01.06.2015, Blaðsíða 6

Bókasafnið - 01.06.2015, Blaðsíða 6
6 Bókasafnið 39. árg. 2015 is. Skráningarráð hefur það hlutverk að marka stefnu, fylgjast með þróun og setja verklagsreglur um RDA skráningu. Einnig á það að ákvarða túlkun og beitingu RDA reglna með tilliti til ítarleika og frávika. Því er ætlað að móta aðferðir við að fylgj- ast með skráningu í kerfinu í því skyni að tryggja gæði og samræmingu bókfræðilegra gagna. Skráningarráð mun einn- ig skipa í vinnuhópa um skráningu eftir því sem þörf krefur og skera úr um ágreining varðandi skráningu. Gæðahópur Gegn- is hefur það að markmiði að auka gæði bókfræðiupplýsinga og stuðla að aukinni skilvirkni í leitum og skráningu. Ritstjórn Handbókar skrásetjara Gegnis mun í samstarfi við kennara- teymið sjá um að uppfæra handbókina til samræmis við RDA. Handbókin er einungis birt á vef og er mikilvægt uppflettirit fyrir starfandi skrásetjara. Tækifæri til símenntunar Að innleiðingu lokinni verður öll frumskráning í Gegni sam- kvæmt RDA og í framhaldi af því tekur við eftirvinnsla og tíma- bil samhæfingar. Bókfræðigögn ýmist skráð samkvæmt AACR2 eða RDA krefjast mismunandi úrvinnslu fyrir leitir og birtingu. Leitarniðurstöður og birting, það er nýting gagnanna, þarf að verða ásættanleg. Meðal styrkleika skráningarumhverfisins á Íslandi má nefna sameiginlega bókasafnskerfið Gegni og samþættu leitarvél- ina leitir.is. Einnig felst mikilvægur stuðningur í ríkjandi sam- starfsvilja í bókasafnasamfélaginu. Staðbundin frávik frá reglum og stöðlum kunna að valda einhverjum erfiðleikum í alþjóðlegu samstarfi um samnýtingu gagna. Má í því sam- bandi nefna meðhöndlun íslenskra mannanafna þar sem hefð er fyrir stafrófsröðun eftir skírnarnafni. Árið 2007 var haldin á Íslandi tveggja daga alþjóðleg ráð- stefna um RDA reglurnar sem þá voru í smíðum, Back to Basics – and Flying into the Future. Ráðstefnan var fjölsótt og fyrirles- arar frá Bandaríkjunum, Bretlandi, Danmörku, Íslandi, Noregi og Þýskalandi reifuðu viðfangsefnið frá ýmsum hliðum. Síðan hafa skrásetjarar Gegnis leitast við að fylgjast með. Nokkrar ráðstefnur hafa verið sóttar erlendis og safnað í sarpinn. Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn er aðili að European RDA Interest Group (EURIG) og þar myndast mikilvæg tengsl við erlenda sérfræðinga. Tvö vefnámskeið á vegum ALA voru sótt á árinu 2014, annað um innleiðingarferli RDA og hitt um skráningu samkvæmt RDA. Á reglulegum fræðslufundum skrásetjara Gegnis hefur verið vakin athygli á því sem í vænd- um er með kynningum á fjórum fræðslufundum á árabilinu 2010–2014 og einnig á notendaráðstefnu Aleflis, notenda- félags Gegnis, í maí 2014. Efni frá þessum kynningum kom að góðu gagni við samantekt þessarar greinar. RDA reglurnar voru því til skoðunar hér á landi í nokkur ár áður en innleið- ingarferlið hófst. Nýjar skráningarreglur veita mikilvægt tæki- færi til símenntunar sem mun efla fagþekkingu og tengsl við upplýsingatækni samtímans. Þekkingarveita í allra þágu Hvar.is Íslensk útgáfuskrá – þjóðbókaskrá Ritstjórn bókfræðigrunns Gegnis Handbók skrásetjara Gegnis Lykilskrá – íslensk efnisorð og mannanöfn Landsáskrift að Vef-Dewey Millisafnalán Ráðgjöf og samstarf Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn er forystusafn íslenskra bókasafna og skal stuðla að samstarfi, samræmingu og þróun starfshátta þeirra og veita þeim faglega ráðgjöf.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Bókasafnið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.