Bókasafnið - 01.06.2015, Blaðsíða 46
46
ARLIS/norden
ARLIS/Norden eru samtök norrænna listabókasafna sem flest
listbókasöfn á Norðurlöndum eiga aðild að. Það eru bókasöfn
á sviði myndlistar, listiðnaðar, hönnunar, byggingarlistar, ljós-
myndunar og fleiri skyldra greina. Samtökin voru stofnuð
1986 og eru aðili að IFLA Section of Art Libraries.
Tilgangur ARLIS/Norden er að efla fagkunnáttu í norrænum
listbókasöfnum með endurmenntun, námskeiðahaldi, rann-
sóknum og útgáfustarfsemi á faglegum grunni. Í samtökun-
um eru bókasöfn á sviði myndlistar, listiðnaðar, hönnunar,
byggingarlistar, ljósmyndunar og skyldra greina.
Norðurlöndin fimm sjá til skiptis um ársfund og ráðstefnu
samtakanna sem stendur venjulega í 2-3 daga og er ákveðið
efni tekið til umfjöllunar hverju sinni. Auk ársfundanna starfar
hver landshópur fyrir sig og hittist reglulega. Þar eru rædd
ýmis mál sem varða ARLIS/Norden samtökin í heild sinni, sam-
starfsverkefni og mál sem snerta íslensk listbókasöfn sérstak-
lega.
Það sem mannshöndin snertir – fegurðin í efninu
Síðasta ráðstefna samtakanna var haldin hér í Reykjavík
dagana 12.-14. júní 2014. Yfirskrift ráðstefnunnar var „Það
sem mannshöndin snertir – fegurðin í efninu“. Fjallað var um
notkun efnis í listsköpun en færst hefur í vöxt að bókasöfn
lista- og handverksskóla hafi sérstakar safndeildir þar sem
safnað er saman ýmiss konar efnum sem nemendur og lista-
menn geta rannsakað og handfjatlað en það er oftar en ekki
nauðsynleg hvatning til nýsköpunar í listum. Þessar safn-
deildir höfum við valið að kalla hér efnissöfn og hafa að
geyma safn sýnishorna hinna ýmsu efnistegunda.
Hvað er efnissafn?
Hugtakið efni í víðum skilningi getur haft bæði áþreifanlega
og huglæga merkingu. Hugtakið efnissafn getur því átt við
skipulögð söfn áþreifanlegra hluta, myndasöfn sem er hægt
að skoða rafrænt og hluti sem safnast upp með tímanum
innan einstakra fyrirtækja. Í umfjölluninni hér er átt við söfn
sem falla undir skilgreiningu Martling Palmgren og Schmidt
Gunnhildur Björnsdóttir er bókasafns- og upplýsingafræðingur, stjórnsýslufræðingur MPA og forstöðumaður bókasafns
Menntavísindasviðs Háskóla Íslands
Ingibjörg Rögnvaldsdóttir er bókasafns- og upplýsingafræðingur, stjórnsýslufræðingur MPA og forstöðumaður bókasafns
og upplýsingamiðstöðvar Tækniskólans
Sigrún Sveinsdóttir, upplýsingafræðingur við Listaháskóla Íslands
Svanfríður Franklinsdóttir, deildarstjóri útgáfudeildar og skjalasafns Listasafns Íslands