Bókasafnið - 01.06.2015, Qupperneq 11
11
Bókasafnið 39. árg. 2015
Grunnhugsun Bibframe-líkansins er lýst á mynd 1 (Library of
Congress, 2012, bls. 9).
Mynd 1: Grunnmynd Bibframe-líkansins.
Þegar búið er að bæta „annotations“ við líkanið lítur það út
eins og sýnt er á mynd 2 Library of Congress, 2012, bls. 12).
Mynd 2: Bibframe-líkanið að viðbættum „annotations“.
Þetta líkan er talsvert skylt FRBR-hugtakalíkaninu, enda var
það lagt til grundvallar Bibframe-líkaninu. Library of Con-
gress hefur tekið að sér að vera aðalumsjónaraðili með Bib-
frame. Safnið sér um að tengja Bibframe-sniðið við önnur
orðasöfn eins og Dublin Core og SKOS. Vefsvæðið verður
einnig í umsjón Library of Congress á veffanginu http://bib-
frame.org. Zepheira, sem er fyrirtæki sem sérhæfir sig í merk-
ingarvefnum og framsetningu samtengdra gagna, og Library
of Congress vinna sameiginlega að því að þróa samtengd lík-
ön, orðasafnið og þau tól sem þarf til þess að gera það að-
gengilegt (Library of Congress. Bibliographic Framework Ini-
tiative, e.d.). Skráningarsnið bókasafnanna verður í samræmi
við það sem verið er að nota á vefnum almennt. Forritarar og
kerfisfræðingar á upplýsingatæknisviði geta skilið og notað
skráningarsniðið því það er það sama og notað er í þeirra
vinnuumhverfi. Það eykur mjög líkurnar á því að bókfræði-
gögn verði notuð í auknum mæli af öðrum en bókasöfnum, til
dæmis af tímaritagagnasöfnunum. Á vefsíðu Bibframe-verk-
efnisins eru verk sem hægt er að skoða í mismunandi út-
færslum. Tvö dæmi um framsetningu á færslu eru sýnd hér á
myndum 3-4.5 Mynd 4 sýnir framsetningu færslunnar eins og
notendur sjá hana, mynd 3 sýnir lýsigögnin á bakvið. Fyrri
myndin sýnir hvernig búið er að leysa bókfræðiupplýsingarnar
upp í grunnþætti. Þar sést hvernig búið er að merkja hvern
þátt með veffangi. Framsetning færslunnar fyrir notendur er
síðan í höndum safnanna eða bókasafnskerfanna. Notendur
sjá það sem búið er að merkja; xxx-in sem eru á milli merkimið-
anna; <label>xxx<label>
Mynd 3: Bibframe-færsla.
Mynd 4: Bibframe-færsla eins og notendur sjá hana.
5. Vefsíðan er gagnvirk vinnusíða þar sem hægt er að skoða nokkur verk í mismunandi útfærslum. Vefslóðin opnast á upphafssíðunni, en dæmin
eru fengin með því að skoða þessar tilteknu útfærslur: BIBFRAME.ORG Technical site. http://bibframe.org/resources/sample-bl/exhibit.html.