Bókasafnið - 01.06.2015, Page 10
10
Bókasafnið 39. árg. 2015
Verklag við að setja orðasöfn fram á merkingarvefnum
Víða er hægt að finna upplýsingar um verklag við að setja
samtengd gögn á Netið (Haslhofer, 2009). Mælt er með því að
nota orðasöfn sem til eru fyrir. Ef ekkert nothæft hugtak finnst
í orðasafninu, þá á að reyna að finna víðara hugtak og skil-
greina nýja hugtakið sem þrengra. Ef það gengur ekki þá á
maður að búa til sitt eigið orðasafn og gera þannig úr garði að
aðrir geti notað það. Einnig á að tengja hugtakið í önnur orða-
söfn þannig að þau hugtök sem merkja það sama séu tengd
með „isSameas“ eða álíka tengli úr OWL. Það er búið að skil-
greina titil í mörgum orðasöfnum, þar á meðal í orðasafni RDA-
skráningarreglnanna og Dublin Core. Við hér á Íslandi gætum
tengt okkar nafnmyndafærslur og efnisorð við orðasöfn sem
til eru fyrir. Ef við finnum sambærilegt hugtak þá getum við
tengt þangað. Halldór Laxness hefur verið settur fram sem
persóna í nokkrum orðasöfnum, til dæmis í ISNI. Við getum
tengt okkur þangað inn, notað veffangið og kennitöluna og
bætt við fleiri afbrigðum í rithætti. Síðan getum við búið til
okkar eigið orðasafn fyrir nöfn sem ekki hafa verið skilgreind
annars staðar.
nýtt skráningarsnið - Bibframe
Bibframe-skráningarsniðið á að auðkenna gögn þannig að
tölvur eigi auðvelt með að túlka þau og lesa, eða með öðrum
orðum, gögnin á að setja fram sem samtengd gögn á merk-
ingarvefnum. Þetta kallar á gerbreytta hugsun. Skráningar-
færslan eins og við þekkjum hana í dag fær víðtækara hlutverk.
Sumir segja raunar að dauði marksniðsins hafi í för með sér
dauða færslunnar sem slíkrar. Skráning snýst ekki aðeins um
að lýsa ákveðnu gagni á bókasafninu, heldur um að sýna
tengsl þess við önnur gögn sem aðgengileg eru á vefnum
(Library of Congress, 2012). Þetta er gert meðal annars með því
að merkja hverja einingu með veffangi. Þessi tengsl milli gagna
á vefnum, sem verða að samtengdum gröfum (e. graphs) og
dreifast í allar áttir, hjálpa leitarvélum og bæta leitarheimtur.
Mikilvægi tengslanna sést vel í Google Knowledge Graph sem
notfærir sér þau til að benda notendum á fleira áhugavert efni
byggt á niðurstöðum fyrri leita. Svipað er uppi á teningnum
hjá Amazon vefversluninni sem nýtir sér tengsl milli titla og
kauphegðunar og bendir þeim sem þar leita á fleira áhugavert
efni (sá sem keypti bókina sem þú ert að skoða, keypti líka
þessa bók).
Bibframe-skráningarsniðinu er ætlað að taka við af mark-
sniðinu nokkurn veginn snurðulaust. Söfnin eiga að geta not-
að gömlu færslurnar sínar áfram, en jafnframt tekið upp nýja
skráningarsniðið. Til þess að þetta sé hægt þarf að leysa upp
grunneiningar marksniðsins og raða þeim upp á nýjan hátt.
Í Bibliographic Framework as a web og Data (Library of
Congress, 2012, bls. 3) kemur fram að megináhersla er lögð á
þrennt:
1. Að gera skýran greinarmun á hugverki og hinum ýmsu
birtingarmyndum þess. Hugverk getur birst í ýmsum út-
gáfum og á mismunandi ytra formi. Það þarf að vera
ljóst hvaða upplýsingar tengjast hugverkinu annars
vegar (höfundur, titill og fleira) og birtingarmyndum
þess hins vegar (blaðsíðutal, myndefni, útgefandi,
útgáfuár o.s.frv.)
2. Að auðkenna upplýsingaeinindi (e. information enti-
ties), en um það snýst nafnmyndastjórnun að talsverðu
leyti. Auðkenna og aðgreina þarf alla einstaklinga,
stofnanir, útgefendur og fleiri sem tengjast hugverki og
birtingarmyndum þess
3. Að gefa til kynna tengsl milli einindanna, til dæmis að
tiltekið forlag sé útgefandi tiltekins rits. Í hefðbundnum
skráningarfærslum þarf oft að ráða þessi tengsl af sam-
henginu eða staðsetningu upplýsinganna í færslunni.
Markfærslur eru þríþættar. Þær innihalda upplýsingar um:
1. hugverkið, innihald verksins
2. ytra form gagns, það sem við höfum í höndunum eða
lesum af skjánum
3. lýsigögn sem tengjast færslunni eins og staðsetningar-
tákn og kóða sem líta má á sem athugasemdir eða skýr-
ingar.
Með þetta í huga er Bibframe-líkaninu skipt í eftirfarandi hluta
(Library of Congress, 2012, bls. 8):
• Creative work (hugverk) – innihald verksins eða sú
hugsun sem að baki verksins býr. Þetta er óhlutbundið
einindi . Við verkið er hægt að tengja samþykkta mynd
hugtaksins (nafnmynd) og aðrar einingar eins og efni og
höfund, en einnig er hægt að tengja það við önnur verk
• Instance (tilvik) – efnisleg framsetning hugverksins,
sem getur verið hlutbundin, til dæmis bók eða tónlistar-
verk eða rafrænt efni. Það býr yfir eiginleikum sem ein-
kenna framsetninguna og það tengist samræmdum
nafnmyndum fyrir útgáfustað, útgefanda, dreifingar-
aðila og fleira. Hvert „instance“ (tilvik) getur aðeins verið
birting eins verks.
• Authority (nafnmyndir) – lykilheimild að hugtökum
sem hafa skilgreind tengsl við verkið og framsetningu
þess, til dæmis fyrir fólk, staði, stofnanir, viðburði og
efni. Nafnmyndunum eða lykilheimildunum er ekki
ætlað að koma í staðinn fyrir venjulegar nafnmynda-
færslur bókasafna heldur mynda eins konar aukalag
fyrir margvíslegar nafnmyndaupplýsingar á vefnum til
að gera þær að enn áhrifaríkari leið til að afmarka merk-
ingu hugtaka og fyrirbæra þannig að þær falli ekki
saman við aðrar nafnmyndir. Það er gert með því að
halda saman öllum nafnmyndum hvers einstaklings
með einstöku auðkenni eða „kennitölu“ eins og gert er í
ISNI-staðlinum.
• Annotation (viðbætur, athugasemdir, skýringar) –
aukaupplýsingar sem auðga lýsingu verksins. Það getur
verið staðsetning gagnsins, mynd af bókarkápu eða rit-
dómur um verkið og aðrar tengingar í utanaðkomandi
gögn. Bibframe-líkanið gerir ekki ráð fyrir því að upp-
lýsingar um eintök, staðsetningu og þess háttar séu
eiginleikar „instance“ (tilviks), heldur staðhæfingar ein-
stakra safna um tilvikið. Það gefur söfnunum ákveðið
svigrún til þess að bæta staðbundnum upplýsingum við
lýsinguna.