Bókasafnið - 01.06.2015, Side 12
12
Bókasafnið 39. árg. 2015
Markfærslur yfirfærðar í Bibframe
Markfærslur munu lifa áfram. Marksniðið á sér nær hálfrar
aldar sögu og gríðarlegt magn gagna er á marksniði. Í eftir-
farandi dæmi á mynd 5 sést hvernig nokkrar einingar úr mark-
sniðinu eru hugsaðar sem einingar í Bibframe-skráningarsnið-
inu. Höfundur, útgáfustaður, útgáfufyrirtæki og efnisorð eiga
sér veffang í mismunandi orðasöfnum, eins og VIAF og
Geonames. Í þessu tilfelli finnst enn sem komið er ekkert orða-
safn fyrir útgáfufyrirtækið sem hægt er að vísa í (Miller, 2013).
Mynd 5: Tengsl markfærslu við Bibframe-skráningarsniðið.
Alemu og félagar (2012) setja fram kröfur til nýs gagnasniðs
fyrir bókasöfn. Höfundar telja að samtengd gögn henti best til
þess að færa bókasafnsskráningu úr færslumiðuðum lýsi-
gögnum í gagnamiðuð (e. document-cetric to data-centric).
Möguleikar nýju skráningarreglnanna, RDA, og FRBR-líkansins
nýtist ekki til fulls í skráningarumhverfi marksniðsins. Lýsi-
gögn marksniðsins eru ætluð mannfólki til aflestrar en ekki
tölvum. Þau þurfa að vera tölvulesanleg til að nýtast betur.
Helstu kostir samtengdra gagna fyrir bókasöfn eru að mati
höfunda eftirfarandi:
Lýsigögnin eru opin og hægt að deila þeim með öðrum.
Þannig gætu útgefendur nýtt sér bókfræðileg gögn eins
og ISBN-númer og samræmda nafnmynd höfunda. Sam-
nýting gagnanna gefur endalausa möguleika. Aðilar
utan safnanna eins og Google, Amazon og Wikipedia
geta unnið með þau og birt þau í ýmsu samhengi en það
getur reynst til hagsbóta fyrir söfnin og upplýsingasam-
félagið. Mismunandi söfn geta sameinast um lýsigögn
og unnið saman á breiðari grundvelli. Endurnýting
gagnanna kemur í veg fyrir tvíverknað og margfaldar
leitarniðurstöður fyrir sama efnið.
Samtengd gögn stuðla að óvæntum uppgötvunum
(e. serendipitious information discovery). Það telja höf-
undar mikinn kost og vanmetinn í rannsóknum á upplýs-
ingahegðun. Leit í gagnagrunnum og bókasafnskerfum
býður að þeirra mati ekki upp á óvæntar uppgötvanir. Þá
er leitað að fyrirfram gefnum atriðum, eins og efnisorði,
höfundi og titli. Kerfin leita að þessum orðum í safninu
og leggja fram afmarkaðar leitarniðurstöður samkvæmt
því. Þetta er ólíkt því að ganga um safn og skoða sig um í
hillunum, en það leiðir oft til óvæntra uppgötvana. Sam-
tengd gögn geti stuðlað að óvæntum uppgötvunum
vegna þess að þau geta leitt notandann áfram á óvænta
stigu – einmitt vegna tengslanna. Notendur geta stokk-
ið fram og aftur frá einni upplýsingalind til annarrar á
þægilegan hátt og til baka þegar þeir hafa fengið nóg.
Samtengd gögn veita betra aðgengi að nýjum hug-
tökum, því sem er mest í umræðunni þá og þá stundina
(Zeitgeist) og notkunarmynstri gagnanna. Það veltur
raunar á því að bæði sé veittur aðgangur að bókfræði-
legum gögnum safnanna sem eru vel skipulögð og sam-
ræmd, meðal annars í gegnum nafnmyndaskrár þeirra,
og gögnum almennra notenda (e. socially constructed
metadata), eins og efnisorðum notenda eða einkunn-
um sem þeir gefa. Notkunarmynstur er algengt í bæði
Google og Amazon og birtist í tillögum að efni sem
margir hafa sótt eða flett uppá.
Flokkuð leitarstýring. Þá eru gögn sett fram í mismun-
andi flokkum og röð sem notandi velur sjálfur. Því meira
sem til er af lýsigögnum því auðveldara er að flokka og
sía leitarniðurstöður. Þannig geta notendur valið að
skoða einungis ákveðin efnisform eins og rafrænt efni
eða ákveðið árabil.
Veraldarvefurinn á velgengni sína að miklu leyti stöðlum
að þakka. Samræmdur kóði er HTML, staðlað veffang er
URL eða URI og samræmda miðlunin er HTTP. Veraldar-
vefurinn miðlar skrám og skjölum, ekki gögnum. Undir-
liggjandi gögn (oftast DBMD eða Database Manage-
ment Documents) eru ekki aðgengileg. Hugmyndin
með samtengdum gögnum er að hægt sé að nálgast
undirliggjandi gögn á sama hátt og skjölin og skrárnar
á veraldarvefnum.
Fleiri hafa lagt orð í belg um nauðsyn þess að bókasafnasam-
félagið snúi sér að merkingarvefnum. Menn hafa trú á því að
bókasafns- og upplýsingafræðin geti lagt eitthvað af mörkum
þar. Hlutverk samdengdra gagna fyrir bókasafnasamfélagið er
sett fram á vef W3C „W3C Mission“.6 Þar kemur vel fram áhersla
á samvinnu, frjálst aðgengi, að allir geti tekið þátt og allt efni sé
velkomið. Þar á bæ vilja menn treysta öðrum og þar er að finna
kafla um öryggi gagna. Þar kemur einnig fram að horft er til
bókasafna og þau hvött til að taka þátt í því að gera gögn sín
aðgengileg sem samtengd gögn. ExLibris, sem rekur Primo og
Aleph-kerfin sem notuð er í Gegni og Leitum hefur einnig sett
6. “Libraries should embrace the web of information, both by making their data available for use as Linked Data and by using the web of data
in library services.” (W3C Mission, e.d.).