Bókasafnið


Bókasafnið - 01.06.2015, Side 37

Bókasafnið - 01.06.2015, Side 37
37 Bókasafnið 39. árg. 2015 stórt tónlistarsafn á plötum og geisladiskum. Sumt dagskrár- efni hefur verið fært yfir á yngri form í gegnum tíðina og er því til á fleiri en einum miðli. Tafla 1: Fjöldi gagna Hljóðvarp hefur verið varðveitt á stafrænu formi frá 2008 og sjónvarp frá 2014 í Kistunni, safnagrunni RÚV (sjá töflu 2). Það þýðir að safnið varðveitir skrár með þessu efni sem eru staf- rænar að uppruna (e. digital born). Því er komin reynsla á þann varðveislu- og skráningarmáta. Þá er hægt að nálgast efni beint í Kistu til hlustunar og áhorfs. RÚV varðveitir þessar skrár í tvíriti til að koma í veg fyrir að efni glatist. Vegna Kistu er safn RÚV tilbúið til að láta yfirfæra eldra efni á stafrænt form og skrá af spjaldskrá þar sem það á við og af skýrslum sem fylgja hverju gagni. Tafla 2: Fjöldi skráa og færslna í Kistu - þróun Sjónvarp, útvarp og tónlist - gögn Fjöldi gagna Útvarp   Lakkplötur (árin 1935-1960) 7.500 Dagskrárbönd (DB, skráð) (árin 1952-2005) 35.000 Dagskrá á geisladiskum (árin 2000-2008) 12.000 Óskráð dagskrárbönd 15.700 Tónlist   Tónlistarbönd (STD, BTD, TD) 8.750 Vínylplötur 48.013 Geisladiskar – erlendir 12.000 Spjaldskrá útvarps og tónlistar 527.267 Óskráð og óútsend tónlistarbönd í Stúdíói 13 100 Sjónvarp   DVC-pro 15.736 U-matic 1.844 SP betur (BC) 13.424 Digibeta (DBC) 327 Einnar tommu (1”) 3.806 Tveggja tommu (2”) 1.620 Spjaldskrá sjónvarps 122.547 Filmur – 16 mm 12.900   6.3.2015 4.9.2014 11.9.2013 Fjöldi færslna í Kistu 789.121   774.425 531.851 Fjöldi hljóðskráa í Kistu 375.449   353.734   317.061 Fjöldi myndskráa í Kistu 4.744   2.405     Þegar efni er yfirfært á stafrænt form ber að skoða það frá öllum hliðum með tilliti til tækni, safnsins, gagnagrunna og varðveislu. Kummer, Kuhnle og Gabler (2015) telja að ákvarð- anir sem lúta að yfirfærslu hljóðs og mynda á stafrænt form og rökrétt framsetning upplýsinga (lýsigagna) eigi ekki eingöngu að taka út frá framleiðsludeildasjónarmiði, þar sem nú er unnið enn hraðar en áður tíðkaðist. Ef við horfum á 50 ára tímabil eru geymslukröfur mjög mismunandi út frá hags- munum framleiðsludeilda. Samfélag um opið aðgengi (e. open source community) og hljóð- og myndiðnaðurinn knýja á um geymslutækni sem er viðeigandi á hverjum tíma. Þessa þróun verður að taka alvarlega vegna þess að hún er hagnýt, raunsæ og gagnleg. Ákjósanlegast er að hafa kerfi sem er byggt upp eftir safnaskipulagi (e. archiving sturcture) og sýnir óhlutdrægt skipulag (e. abstraction) með tilliti til framleiðslunnar og samræmist kröfum OAIS (e. Open Archive Information System). Um leið þarf að uppfylla kröfur safna um opna staðla og auðyfirfæranlegt innihald miðils (e. migratable media) (Kummer o. fl., 2015). Þegar horft er til náinnar framtíðar er mikil hætta á að ekki verði hægt að spila þessi gögn og öll viðleitni til að bjarga efni á eldra formi verður þá fyrir bí (Casey, 2015). Á okkar tímum er mikið framleitt af hljóði og mynd og ber að skoða bestu leiðir í yfirfærslu nú og til framtíðar sem og varðveisluform. Í skýrslu frá Council on library and information resources and Library of Congress (2012) um stefnu í varðveislumálum vegna upptöku (e. recording) hljóð- og myndefnis (e. audiovisual) kom fram að sá þáttur í þjóðsöfnunum vex hvað hraðast í dag. Sérfræð- ingar á því sviði telja að mesta áskorunin sé þessi skortur á viðeigandi geymslurými fyrir þetta efni og aðstöðu til að vernda það. Einnig að það þurfi að koma þessu efni á stafrænt form áður en gögnin eyðileggist. Með hverju árinu verður yfir- færslan dýrari og erfiðari. Það þarf að tryggja möguleikann á að endurgera hverfandi miðla og tryggja góða varðveislu stafrænna skráa (Council on library and information resources and Library of Congress, 2012). Casey (2015) fjallar í grein sinni um hið mikla magn af hlið- rænu hljóðefni (e. analogue) svo og stafrænum upptökum sem vistaðar eru á hljóð- og myndformum (e. video) eða böndum sem liggja undir skemmdum en hafa að geyma merkilegar sögulegar heimildir með mikið fræðilegt og menn- ingarsögulegt gildi. Við höfum lítinn tíma til að bjarga þessum verðmætum. Casey (2015) listar þetta yfirfærsluvandamál eldri gagna upp með nokkrum lykilorðum: mikill fjöldi (e. large number), úrelding (e. obsolescence), niðurbrot (e. degradation), hátt rannsóknargildi (e. high research value) og lítill tími (e. short time window). Hér á eftir verður fjallað nánar um þessi atriði. Fjöldi Í Bandaríkjunum er talið að yfir 570 milljónir af hljóðupptök- um séu til, þar af 250 milljónir sem hafa varðveislugildi en á eftir að koma á stafrænt form (e. digitized) (Casey, 2015). Hjá RÚV eru á annað hundrað þúsund hljóðupptökur og 35.000 myndupptökur að ótöldum um 12.900 filmum og 1.620

x

Bókasafnið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.