Bókasafnið

Ataaseq assigiiaat ilaat

Bókasafnið - 01.06.2015, Qupperneq 44

Bókasafnið - 01.06.2015, Qupperneq 44
44 Fyrir rúmum 70 árum á fjárlögum fyrir árið 1944 var undir fjár- veitingu til Landsbókasafns Íslands (hér eftir Landsbókasafn) sérstakur liður sem hét „Til samningar íslenzkrar bókaskrár“ upp á 10.000 kr. Í skránni áttu að vera öll rit íslenskra höfunda, rit erlendra höfunda prentuð á íslensku og rit erlendra höf- unda á erlendum tungum ef prentuð hefðu verið hér á landi. Mönnum fannst það illa sæma bókaþjóðinni að fullkomin ís- lensk bókaskrá skyldi ekki vera til. Þó að skrár Halldórs Her- mannssonar, bókavarðar og prófessors, um Fiskesafnið í Cor- nell-háskóla í Bandaríkjunum veittu mikilsverðan stuðning vantaði í það safn fjölda bóka og ritlinga sem Landsbókasafn- ið átti. Þessi fyrsta allsherjar íslenska bókaskrá átti að vera svipuð að sniði og skrárnar yfir Fiskesafn. Hún myndi innihalda nákvæma bókfræðilega lýsingu á hverju riti. Titill yrði skrifað- ur upp stafréttur. Auk þess yrðu athugasemdakaflar við flestar færslur með ýmsum viðbótar upplýsingum um eintök, prent- afbrigði, skreytingar, heimildir og síðari útgáfur. Eftir þennan byrjunarstyrk Alþingis til verksins hófst undir- búningur fljótlega. Menn gerðu sér þó grein fyrir því að skráin yrði ekki prentuð fyrr en eftir nokkur ár því að verkið yrði bæði vandasamt og torsótt. Til greina kom á 5. áratugnum að áður- nefndur Halldór Hermannsson tæki að sér verkið en ekki varð af því. Árin 1955-1956 var verkið greinilega komið vel af stað því í Árbók Landsbókasafns fyrir þau ár stendur að þess sé vænst Íslensk bókaskrá til 1844: Saga og útgáfa að prentun skrárinnar geti hafist eftir eitt til tvö ár. Þá var búið að ákveða að skráin yrði í tveim aðalhlutum. Fyrri hlutinn myndi ná til 1844 en það ár fluttist prentun bóka frá Viðey til Reykjavíkur. Síðari hluti myndi spanna tímabilið 1844-1944 en þá hófst ítarleg íslensk bókaskrá sem hluti af Árbók Lands- bókasafns. Til að sjá um útgáfu fyrri hluta skrárinnar var feng- inn Pétur Sigurðsson háskólaritari að svo miklu leyti sem hann gat sinnt því með starfi sínu í Háskóla Íslands. En Pétur var fyrrum starfsmaður í Landsbókasafni. Við vinnuna höfðu menn mikinn stuðning af skrám Halldórs Hermannssonar um bækur 16. og 17. aldar sem birtust í Islandica ritröðinni. Hins vegar hafði aldrei verið samin heildarskrá um rit 18. aldar og var þar óplægður akur sem krafðist mikilla og víðtækra rann- sókna. Í Árbók Landsbókasafns fyrir 1957-1958 segir að ekki hafi enn verið unnt að hefja prentun bókaskrárinnar en handrit að fyrri hlutanum verði senn fullbúið. Nokkrum árum síðar eða 1963 horfði til betri vegar því þá lét Pétur Sigurðsson af emb- ætti sínu sem háskólaritari og tók til við skrána af fullum krafti. Menn vonuðu að hægt yrði að hefja setningu hennar í prent- smiðju fljótlega. Næst fréttist af skránni um áramótin 1965-1966 en þá var Ólafur Pálmason ráðinn bókavörður og átti hann að veita Pétri liðsinni við bókaskrána. Í Árbók Landsbókasafns 1966 segir að setning sé hafin en verkið hafi því miður tafist í prent- Jökull Sævarsson er sagnfræðingur frá Háskóla Íslands og hefur einnig stundað nám í bókasafns- og upplýsingafræði í sama skóla. Hann er sérfræðingur á Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Bókasafnið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.