Bókasafnið - 01.06.2015, Síða 53
53
Bókasafnið 39. árg. 2015
c. stefnumótun, staðlar og löggjöf samþykkt, þannig að yfir-
völd tryggi áframhaldandi fjárveitingar, heilindi, varð-
veislu og miðlun upplýsinga og aðgang almennings að
þeim.
d. mælanleg markmið þróuð, til að mæla áhrif þess að fólk
hafi aðgang að upplýsingum og gögnum og upplýsa um
árlegan árangur varðandi markmiðin í sérstakri skýrslu þar
um.
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn styður yfirlýs-
inguna og hefur undirritað hana ásamt 500 öðrum bókasöfn-
um og stofnunum víðsvegar um heiminn. Nú er unnið að því
að koma þessum atriðum inn í endanlega gerð þróunarmark-
miðanna, í einni eða annarri mynd. Grunnatriðin eru sex:
mannleg reisn, fólk, hagsæld, jörðin, réttvísi og samvinna.
Gert er ráð fyrir að vinnunni ljúki í september 2015 og að nýju
þróunarverkefnin komi til framkvæmda í árslok.
Heimildir
Félag Sameinuðu þjóðanna. (e.d.). 2015-markmiðin. Sótt 16. febrúar 2015 af
www.2015.is
International Federation of Library Associations and Institutions [IFLA].
(23. febrúar 2015). IFLA takes Lyon Declaration to the UN.
Sótt af http://www.ifla.org/node/9427
The Lyon Declaration on Access to Information and Development. (2014).
Sótt af http://www.lyondeclaration.org/
Ojala, Marydee. (2. september 2014). The Lyon Declaration Tackles
Information Access and Sustainable Development. Information Today.
Sótt af http://newsbreaks.infotoday.com/NewsBreaks/%20The-Lyon-
Declaration-Tackles-Information-Access-andSustainable-
Development-99052.asp