Bókasafnið


Bókasafnið - 01.06.2015, Side 55

Bókasafnið - 01.06.2015, Side 55
55 Bókasafnið 39. árg. 2015 Íslenskar menningarstofnanir hafa skráð lýsigögn um 56% safnkosts síns í gagnagrunn, eða svipað hlutfall og evrópskar. Vel flestar evrópskar menningarstofnanir (87%) hafa að geyma stafrænt efni. Rúmlega þriðjungur stofnana (36%) eru með skjalfesta stefnu um stafræna endurgerð. Í flestum ís- lenskum menningarstofnunum eða 27 af 38 (71%) er annað hvort að finna stafrænt safnefni eða unnið er að stafrænni endurgerð á hliðrænu safnefni. Rúmlega helmingur íslenskra menningarstofnana (58%) eru með skjalfesta stefnu um staf- ræna endurgerð. Stöplarit 1: Staða stafrænnar endurgerðar í Evrópu og á Íslandi (Ísland, n=34, Evrópa, n=1194) Að meðaltali er búið að endurgera um 17% safnkosts menn- ingarstofnana í Evrópu stafrænt og enn bíður 52% safnkosts- ins þess að vera færður yfir á stafrænt form. Ekki er ráðgert að færa um þriðjung safnkosts á stafrænt form. Mismunandi ástæður geta legið fyrir því að ekki er talin ástæða til þess að endurgera efni stafrænt, til að mynda ef talið er að ekki sé eftirspurn eftir efninu. Höfundarréttarmál geta einnig komið í veg fyrir stafræna endurgerð. Um 23% ís- lenska safnkostsins hefur verið endurgerður stafrænt og enn á eftir að endurgera um 48% safnkostsins. Ekki er ráðgert að endurgera stafrænt um 30% íslenska safnkostsins. Samantekt Notkun íslenskra menningarstofnana á stafrænni tækni virðist lítið frábrugðin hinni almennri þróun á meginlandi Evrópu. Ítarlegri upplýsingar um könnunina er að finna í nýrri skýrslu Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns um könnunina (Hrafn H. Malmquist, 2015) og skýrslu Enumerate Survey Re- port on Digitisation in European Cultural Heritage Institutions 2014 (Stroeker og Vogel, 2014). Heimildir Ásta Magnúsdóttir. (2013). Menningarstefna. Sótt af http://www.menntamalaraduneyti.is/menning/menningarstefna/ Hrafn H. Malmquist. (2015). Stafræn menning : Niðurstöður Enumerate-könnun- arinnar á stafrænu efni menningarstofnana 2014. Sótt af http://landsboka- safn.is/uploads/stafraen_menning_enumerate_skyrsla_lbs_2014.pdf Stroeker, N. og Vogels, R. (2014). Survey Report on Digitisation in European Cultural Heritage Institutions 2014. Sótt af http://www.enumerate.eu/ fileadmin/ENUMERATE/documents/ENUMERATE DigitisationSurvey-2014.pdf

x

Bókasafnið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.