Morgunblaðið - 13.08.2016, Page 1

Morgunblaðið - 13.08.2016, Page 1
Breiðablik varð í gærkvöldi bikarmeistari í fótbolta kvenna í 11. sinn þegar liðið vann ÍBV, 3:1, í úrslitaleik Borgunarbikarsins á Laugardalsvelli. Þrjú ár eru liðin síðan leikmenn Breiðabliks fögnuðu síðast sigri í keppninni, en liðið er einnig ríkjandi Íslandsmeistari. Olivia Chance og Berglind Björg Þor- valdsdóttir skoruðu fyrir Breiðablik í fyrri hálfleik og Fanndís Friðriksdóttir í þeim síðari. Natasha Anasi klóraði í bakkann fyrir ÍBV. » Íþróttir Breiðablik fagnaði sigri í ellefta sinn Morgunblaðið/Þórður L A U G A R D A G U R 1 3. Á G Ú S T 2 0 1 6 Stofnað 1913  188. tölublað  104. árgangur  TEIKNINGAR, PRENTVERK OG SKÚLPTÚRAR Þ́ORGRÍMUR MEÐ ÚTGÁFUTÓNLEIKA Í SILFURBERGI JAZZHÁTÍÐ 47SÝNING ÞÓRU 46 Innanríkisráðherra telur ekki hjá því komist að ráðast í tvöföldun hring- vegarins. Það sé mikið verkefni og skatttekjur dugi ekki. Ólöf Nordal stingur upp á því að litið verði til einkafjármögnunar með samvinnu ríkis og einkaframtaks. „Það er orðið tímabært að við spyrjum okkur að því hvenær tími sé kominn til að tvöfalda hringveginn. Hversu lengi komumst við af með alla þessa umferð á þjóðvegi númer 1, eins og við þekkjum hann nú? Ég tel að ekki sé hægt að komast hjá því að tvöfalda umferðarþyngstu vegina sem fyrst,“ segir Ólöf. Samvinna við einkaframtak Hún segir að uppbygging vega- kerfisins kosti mikið og verkefni ríkisins séu svo umfangsmikil að öðru leyti að skatttekjur dugi ekki fyrir öllum framkvæmdunum á stutt- um tíma. „Samgöngukerfið hefur það fram yfir margt annað að þar er hægt að blanda saman skattfé borgaranna og einkafjármögnun, með samvinnu ríkis og einkafram- taks. Ég tel rétt að líta til þess að ná fram auknu hagræði fyrir skattgreið- endur. Hugmyndin um lagningu Sundabrautar gæti verið gott dæmi um það.“ Ólöf hefur lokið krabbameinsmeð- ferð, öðru sinni, og segist hafa fullt starfsþrek. Hún hlakkar til prófkjörs og kosninga til Alþingis og að láta áfram gott af sér leiða. Hún sækist eftir fyrsta sætinu í prófkjöri sjálf- stæðismanna. Þörf á tvöföldun vega  Ekki hjá því komist að tvöfalda umferðarþyngstu vegi sem fyrst, að mati Ólafar Nordal innanríkisráðherra  Eðlilegt að skoða möguleika einkafjármögnunar MStjórnmálin eru gefandi »20-21 Morgunblaðið/Árni Sæberg Ráðherra Vill skoða einkafram- kvæmd í samgöngumálum. Styrking krónunnar hefur komið fram í lægra verði á innfluttum varningi heldur en annars hefði ver- ið, og þannig haldið aftur af verð- bólgu. Þetta segir Yngvi Harðarson, hagfræðingur og framkvæmdastjóri Analytica. „Við sjáum að vísitala neysluverðs er á uppleið, en hún hefði hækkað hraðar og verið mun hærri ef inn- fluttar vörur hefðu ekki lækkað svona í verði,“ segir Yngvi í samtali við Morgunblaðið í dag. Síðustu tólf mánuði hefur krónan styrkst um 11,1%, sem telja verður heldur snarpa hækkun miðað við ár- in þar á undan. „Til að sjá svona mikla og sam- fellda styrkingu, eins og við höfum séð síðan árið 2013, þarf að horfa nokkuð langt aftur í tímann, kannski til áranna 2002 til 2005,“ segir Yngvi. Gunnar Bachmann, framkvæmda- stjóri GER-Innflutnings sem á og rekur Húsgagnahöllina, segir styrk- ingu gengisins hafa gefið fyrirtæk- inu kost á hagstæðari innkaupum er- lendis. Neytendur njóti þá góðs af lægra vöruverði. »4 Gengið varnar bólgu Morgunblaðið/Árni Sæberg Verslanir Uppsöfnuð þörf virðist vera til staðar á neytendamarkaði.  Innfluttar vörur lækka sífellt í verði  „Við sögðum okkur formlega úr félaginu MCPB ehf. með tilkynningu á þriðjudags- morgun,“ sagði Gunnar Ár- mannsson lög- fræðingur, sem var í forsvari fyr- ir áðurnefnt fé- lag sem áformar að reisa einkarek- inn spítala í Mosfellsbæ. Segir hann ástæðuna vera ágreining við hollenska fjárfestinn Henri Middeldorp um birtingu gagna um fjárfesta verksins. »18 Ágreiningur við hol- lenska fjárfestinn Aðgerð Stefnt er að nýju sjúkrahúsi.  Framboðsfrestur fyrir prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík rann í gær út klukkan 16 og höfðu þá 16 manns skilað inn framboði. Eru það þau Áslaug Arna Sigur- björnsdóttir, ritari Sjálfstæðis- flokksins; Albert Guðmundsson, laganemi og formaður Heimdallar; Birgir Ármannsson alþingismaður; Brynjar Níelsson alþingismaður; Guðlaugur Þór Þórðarson alþingis- maður; Guðmundur Edgarsson málmenntafræðingur; Guðmundur Franklín Jónsson hótelstjóri; Her- dís Anna Þorvaldsdóttir fram- kvæmdastjóri; Hildur Sverrisdóttir borgarfulltrúi; Ingibjörg Óðins- dóttir mannauðsstjóri; Jón Ragnar Ríkharðsson sjómaður; Kristjana G. Kristjánsson flugliði; Magnús Heimir Jónasson, laganemi; Ólöf Nordal ráðherra; Sigríður Ásthild- ur Andersen alþingismaður og Sindri Einarsson framkvæmda- stjóri. »14 16 í prófkjöri Sjálf- stæðisflokksins  Sýslumaðurinn í Reykjavík hefur synjað Ragnheiði Guðmundsdóttur, rúmlega þrítugri konu sem berst við fjórða stigs lífhimnukrabba- mein, um leyfi til að fá að giftast indverskum unnusta sínum, Raví Rawat. Synjunin er byggð á þeim grundvelli að gögn frá Indlandi séu ófullnægjandi en þau gögn eru viðurkennd á Indlandi og stimpluð af indverska sendiráðinu á Íslandi. Niðurstaðan var kærð í vor og eftir langa bið kom loks svar við kær- unni á föstudag. Beiðninni var synj- að í annað sinn. Raví þarf að yfirgefa landið í lok ágúst. Hann er aðeins með tíma- bundið atvinnuleyfi frá Vinnumála- stofnun, sem þau hafa reynt að breyta á þeim forsendum að hann sé sérfræðingur á sínu sviði, en Raví er fjalla- og flúðaleiðsögu- maður. Þeirri beiðni hefur verið synjað. Berst við krabba og kerfið sem meinar henni að giftast indversku ástinni sinni Par Raví Rawat og Ragnheiður.  Birgitta Jóns- dóttir, þingmað- ur Pírata, varð efst í prófkjöri flokksins á höf- uðborgarsvæð- inu sem lauk í gærkvöldi. Birgitta segir að hópurinn sem prýði lista í Reykjavíkur- kjördæmi norður, Reykjavíkur- kjördæmi suður og í Suðvestur- kjördæmi sé fjölbreyttur. Að öllu óbreyttu munu Birgitta, Jón Þór Ólafsson og Ásta Guðrún Helga- dóttir leiða einn lista hvert. »2 Listi Pírata tilbúinn í fimm kjördæmum Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Pírata

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.