Morgunblaðið - 13.08.2016, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. ÁGÚST 2016
VITA | Skógarhlíð | Sími | VITA.IS
Verð frá79.900 kr.
24. – 31. ágúst
7 nætur
Ámannm.v. tvo fullorðna og tvö börn í
íbúð með 1 svefnherbergi á Los Alisios. Verð
frá 99.900 kr. á mannm.v. tvo í herbergi.
Sjá nánar á vita.is/tilbod
Tenerife
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Sameiginlegu prófkjöri Pírata fyrir
Suðvesturkjördæmi, Reykjavíkur-
kjördæmi norður og Reykjavíkur-
kjördæmi suður lauk í gærkvöldi.
Í fyrsta sæti endaði Birgitta Jóns-
dóttir, þingmaður Pírata, í öðru sæti
varð Jón Þór Ólafsson, fyrrverandi
þingmaður Pírata, og í þriðja sæti
varð Ásta Guðrún Helgadóttir, þing-
maður Pírata.
Auk þeirra fylla fyrstu fimmtán
sætin þau Björn Leví Gunnarsson,
Gunnar Hrafn Jónsson, Þórhildur
Sunna Ævarsdóttir, Viktor Orri Val-
garðsson, Halldóra Mogensen,
Andri Þór Sturluson, Sara E.
Þórðardóttir Oskarsson, Þór Saari,
Olga Margrét Cilia, Sigurbjörg Erla
Egilsdóttir, Katla Hólm Vilbergs- og
Þórhildardóttir og Snæbjörn
Brynjarsson.
Alls voru 105 í framboði og var
kosningaþátttaka 36%. 1.034 þeirra
2.872 sem höfðu kosningarétt
greiddu atkvæði.
Listinn var birtur með fyrirvara
um að kjördæmisráð ætti eftir að
ræða við frambjóðendur og staðfesta
að þeir tækju sæti sín.
Jafnt kynjahlutfall á listunum
Birgitta Jónsdóttir var að vonum
ánægð með úrslitin í gærkvöldi.
„Ég var ótrúlega stressuð og vissi
ekkert hvernig þetta myndi fara. Ég
er ánægð með listann, þetta er vel
mannað. Margir voru með áhyggjur
af kynjahlutfalli en þetta er nánast
fullkominn fléttulisti,“ segir hún.
„Þetta er fólk sem getur vel unnið
saman, með mismunandi styrkleika
og áherslur í ólíkum málaflokkum.
Við erum með mjög góða vídd,“ segir
hún; fólkið hafi þó velflest komið við
sögu í grasrótarstarfi Pírata.
Birgitta segir að miðað við kosn-
ingafyrirkomulagið megi gera ráð
fyrir að þau sem vermi efstu þrjú
sætin muni hvert um sig leiða lista í
kjördæmunum þremur, en hún hefur
sjálf gefið út að hún kjósi að leiða
lista í Reykjavíkurkjördæmi norður.
Aðspurð segist hún ánægð með
kosningu Jóns Þórs Ólafssonar, fyrr-
verandi þingmanns.
„Mér finnst þetta frábært. Ég
hvatti hann til að bjóða sig fram. Það
væri gott að fá meiri reynslu þarna
inn. Mér finnst svolítið mikilvægt að
hann geti þá miðlað svolitlu af
reynslu sinni til hinna. Fínt að fá
fleiri reyndar hendur á árarnar,“
segir hún, ekki megi vanmeta
reynsluna þótt reynsluboltarnir eigi
ekki að ráða öllu.
Flestir listar að fyllast
Niðurstöðu úr prófkjöri Pírata í
Norðvesturkjördæmi er að vænta á
mánudag, en listi Pírata í Suðurkjör-
dæmi lá fyrir í gær. Þar varð efstur
Smári McCarthy. Auk hans verma
tíu efstu sætin Oktavía Hrund Jóns-
dóttir, Þórólfur Júlían Dagsson, Álf-
heiður Eymarsdóttir, Elsa
Kristjánsdóttir, Kristinn Ágúst
Eggertsson, Trausti Björgvinsson,
Albert Svan, Valgarður Reynisson
og Kári Jónsson.
Einn listi hefur þegar verið stað-
festur hjá Pírötum; framboðslistinn í
Norðausturkjördæmi.
„Mjög góð vídd“ á framboðslistunum
36% þátttaka í prófkjöri Pírata á höfuðborgarsvæðinu Birgitta, Jón Þór og Ásta Guðrún leiða lista
Morgunblaðið/Golli
Píratar Frambjóðendur og aðrir gestir fylktu liði í höfuðstöðvar Pírata,
Tortuga, í gærkvöldi og fylgdust spenntir með úrslitum prófkjörsins.
Einn fjögurra viðbragðsflota Atl-
antshafsbandalagsins (NATO) kom
hingað til lands í gær. Er um að
ræða freigáturnar ESPS Mendez
Nunez frá Spáni og NRP Alvares
Cabral frá Portúgal, en skipin lögð-
ust að bryggju við Skarfabakka í
Reykjavík. Herskipin eru hér í
þriggja daga heimsókn, samkvæmt
upplýsingum frá Landhelgisgæslu
Íslands.
Freigáturnar tilheyra viðbragðs-
hópi 1, sem sinnt hefur verkefnum í
Norðursjó og í Eystrasalti frá því í
byrjun árs. Hefur spænska freigát-
an verið flaggskip flotans frá því í
maí síðastliðnum.
Spænska skipið, sem hér sést á
mynd, dregur nafn sitt af D. Casto
Méndez Nunez, varaaðmíráli hjá
spænska sjóhernum á 19. öld. Eiga
Spánverjar fimm skip sömu gerðar
og eru þau sérstaklega hönnuð til
að takast á við óvinveitt loftför.
Skipin verða opin almenningi um
helgina frá klukkan 10 til 12 og aft-
ur frá klukkan 15 til 19.
Herskipin verða opin almenningi um helgina
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Freigátur
NATO við
bryggju í
Reykjavík
Sigrún Magnúsdóttir, umhverfis- og
auðlindaráðherra, hafði í nógu að
snúast í gær og í fyrradag, en ráð-
herrann opnaði sýningu, vígði ofan-
flóðavarnargarð og tók skóflustungu
að nýrri byggingu.
Fram kemur á vef ráðuneytisins
að Sigrún hafi í fyrradag formlega
opnað snjóflóðamannvirki við
Búðargil á Bíldudal á Vestfjörðum
og er þar með lokið fyrsta áfanga
ofanflóðavarna í bænum.
Hættusvæði vegna ofanflóða nær
til nokkuð stórs hluta byggðarinnar
á Bíldudal. Enn er ólokið fram-
kvæmdum við varnir við Stekkjargil,
eða Gilsbakkagil, og undir svo-
nefndum Milligiljum. Þar er unnið
að endurskoðun á
fyrirkomulagi
fyrirhugaðra
varna og stefnt að
því að þeirri vinnu
verði lokið í haust-
byrjun. Í fram-
haldinu verða svo
tillögur kynntar
bæði bæjaryfir-
völdum og íbúum.
Í gær opnaði
Sigrún sýningu um náttúruvættið
Surtarbrandsgil í gamla prests-
bústaðnum á Brjánslæk. Gilið, sem
var friðlýst sem náttúruvætti árið
1975, er einn merkasti fundarstaður
plöntusteingervinga hér á landi.
Hafa þar verið greindar um 65 teg-
undir plantna og þá aðallega lauftré.
Tilgangurinn með sýningunni er
að fræða almenning um jarðfræði
Surtarbrandsgils og það loftslag og
gróðurfar sem þar var fyrir um 11 til
12 milljón árum. Á sýningunni má
sjá steingervinga og surtarbrand.
Ný miðstöð við jökulinn
Þá tók Sigrún í gær einnig skóflu-
stungu að nýrri þjóðgarðsmiðstöð
fyrir Þjóðgarðinn Snæfellsjökul. At-
höfnin hófst vestan við Sjóminja-
garðinn á Hellissandi, en síðar um
daginn fór fram málstofa undir heit-
inu „Þjóðgarður á leið til framtíðar“
og loks umræður og fyrirspurnir.
Sigrún hafði í nógu að snúast
Umhverfis- og auðlindaráðherra sinnti mörgum
embættisverkum Skóflustunga, vígsla og opnun sýningar
Sigrún
Magnúsdóttir