Morgunblaðið - 13.08.2016, Side 12

Morgunblaðið - 13.08.2016, Side 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. ÁGÚST 2016 Valgerður Þ. Jónsdóttir vjon@mbl.is Eftir tveggja ára undirbún-ing var Alþjóðlegur sum-arskóli haldinn í fyrstasinn við Háskólann á Bif- röst í júlí síðastliðinn. Yfirskriftin var Skapandi forysta á 21. öldinni og snerist námið um að undirbúa og þjálfa leiðtoga framtíðarinnar fyrir áskoranir sem bíða þeirra í krefjandi umhverfi og síbreytilegum heimi. Aukinheldur var áhersla lögð á sjálf- bærni, samfélagslega ábyrgð og ný- sköpun. „Sumarskólinn er í grunninn hugsaður eins og aðrir sumarskólar víða um heim, en þeir eru jafnan blanda af menntun og afþreyingu. Við vildum útvíkka alþjóðastefnuna hjá okkur og kynna bæði námið og staðinn fyrir erlendum nemum með þessum hætti,“ segir Karl Eiríksson, alþjóðafulltrúi og verkefnastjóri sumarskólans, en hann ásamt Önnu Elísabetu Ólafsdóttur aðstoð- arrektor hafði undirbúningsvinnuna með höndum. Markaðssetning á netinu Tuttugu þátttakendur á aldr- inum 20 til 40 ára frá níu löndum skráðu sig til leiks. „Flestir frá Þýskalandi, Austurríki og Búlgaríu, einn frá Singapore og annar frá Jap- an. Tæplega helmingur kom vegna samstarfs okkar við erlenda háskóla en aðrir fundu upplýsingar um skól- ann á netinu, þar sem við gerðum okkur far um að vera sýnileg, til dæmis á Facebook,“ upplýsir Karl. Eina skilyrðið var að nemendur hefðu lokið einu ári á háskólastigi, einu gilti í hvaða fagi. „Flestir voru í viðskiptanámi, nokkrir í verkfræði- eða tölvunarnámi og einn í líffræði. Sumir höfðu þegar lokið há- skólanámi og höfðu hafið sinn starfs- feril. Þótt allir ættu sameiginlegt að vilja efla leiðtogahæfileika sína og fræðast um sjálfbærni og samfélags- ábyrgð, var bakgrunnur þeirra nokkuð ólíkur,“ segir Karl og bætir við að hópurinn hafi engu að síður náð einstaklega vel saman. „Lærdómurinn sem ég dreg eft- ir þessar þrjár vikur er sá að meðal internet-kynslóðarinnar er lítill menningarmunur og að hún sé víð- sýnni en kynslóðirnar á undan.“ Þrjú þemu sem tengjast Þrjú meginþemu námsins; menntun leiðtoga framtíðarinnar, sjálfbærni og samfélagsleg ábyrgð, og nýsköpun segir Karl tengjast með margvíslegum hætti og hafi námsfyrirkomulagið verið skipulagt með tilliti til þess. „Fyrirlestrum og umræðutímum þar sem nemendur ræddu og rökstuddu þessi tengsl var tvinnað saman við heimsóknir í fyr- irtæki sem og vettvangsferðir. Með- al annars heimsóttum við Sjáv- arklasann á Granda, Rjómabúið Erpsstöðum í Dölum og Hellisheið- arvirkjun, sem um flest eru ólík fyr- irtæki, en hafa öll sjálfbærni og sam- félagslega ábyrgð að leiðarljósi.“ Nemendum var ekki íþyngt með heimanámi, en voru beðnir um að halda dagbók og skila henni við skólalok. Karl er ekki enn búinn að kíkja í pakkann en er spenntur að lesa um hvernig þeir upplifðu skóla- vistina frá degi til dags. Að öðru leyti fólust verkefnin í texta sem nemendur skrifuðu annaðhvort sam- an eða hver í sínu lagi út frá fyr- irlestrum sem þeir sóttu og lesefni sem þeim var boðið upp á. „Við vor- um líka með krossapróf til að kanna hvort þeir hefðu náð undir- stöðuatriðunum. Í vikulok kynntu þeir svo hópverkefnin. Öllum verk- efnum var skilað til kennara, sem gáfu hverjum og einum nemanda umsögn. Þótt margt hafi verið til gamans gert var námið enginn leik- ur, enda jafngilti það 6 ECTS- einingum. Þetta var agað fólk sem kom hingað gagngert til að læra og taka þátt í öllu því sem boðið var upp á.“ Sungu Barbie Girl Nemendur höfðu mikinn áhuga á Íslandi og vissu töluvert um land og þjóð við komuna. Skipulagðar dagsferðir á ýmsa fegurstu staði landsins féllu því vel í kramið hjá þeim, en m.a. var farið í Húsafell og á Snæfellsnes. „Við fórum í hellaleið- angur, sjóstangaveiði og hestaferðir svo fátt eitt sé talið. Stemningin var góð í hópnum – mikið sungið og dansað á ólíklegustu stöðum og af einhverjum ástæðum átti lagið Bar- bie Girl með Aqua miklum vinsæld- um að fagna hjá þessum leiðtogum framtíðarinnar,“ segir Karl. Svo vel þótti hafa tekist til að í bígerð er að halda Alþjóðlegan sum- arskóla á Bifröst næsta sumar. „Við báðum nemendur um að koma með ábendingar um það sem hugsanlega hefði mátt fara betur. Eitt af því fáa sem þeir nefndu var að þeir hefðu viljað hafa Íslendinga í hópnum,“ segir Karl. Málið er í skoðun hjá undirbúningshópnum. Leiðtogar framtíðarinnar mættust á Bifröst Tuttugu nemendur frá níu löndum skráðu sig til leiks í Alþjóðlegan sumarskóla við Háskólann á Bifröst. Tilgangurinn var að undirbúa og þjálfa leiðtoga fram- tíðarinnar. Sjálfbærni, samfélagsleg ábyrgð og nýsköpun var í brennidepli. Vettvangsferðir Námið á Bifröst samanstóð af fyrirlestrum, umræðutímum, heimsóknum í fyrirtæki og vettvangsrannsóknum víða um land. Verkefnastjórinn Karl Eiríksson. Alexander Kröll frá Austurríki: „Sumarskól- inn, og sér- staklega þeir sem að honum stóðu og tóku þátt, kenndi mér að traust og virðing eru mikilvæg til að ná árangri. Bæði traust á fólki og traust á sjálf- um sér; að gerðir þínar GETI skipt sköpum og HAFI áhrif. Og að virðing fyrir umhverfinu og auðlindum þess sé ekki síður mikilvæg en virðing gagnvart öðrum.“ Mike Herremans frá Belgíu: „Þetta yndislega fólk sem ég kynntist og sú einstaka reynsla sem ég deildi með því breytti sýn minni á lífið með afger- andi hætti. Sumarskól- inn hjálpaði mér að mynda mér skoðun á hvar ég er staddur í lífinu og hvar mig langar til að vera. Bæði sem framtíðarleiðtogi og auðmjúkur einstaklingur.“ Daniel Penev frá Búlgaríu: „Sumarskól- inn við Há- skólann á Bifröst gerði mér kleift að kanna Ísland með jafn- öldrum mín- um frá Evr- ópu og Asíu, læra um tengsl leiðtogastjórn- unar, frumkvöðlastarfs, sjálf- bærni, samfélagslegrar ábyrgð- ar og mannréttinda. Þessar þrjár vikur gáfu mér líka innsýn í íslenska menningu og þjóð- areinkenni og varð mér þar af leiðandi hvatning til að horfa landið mitt, Búlgaríu, frá víðara sjónarhorni en áður.“ Traust og virðing UMSAGNIR NEMENDA Sjóstangaveiði Nemendur skemmtu sér konunglega í sjóstangaveiði. Margir staðir í Skagafirði tengjast sögusviði í Sturlunga sögu á drama- tískan hátt. Í upphafi þess tíma sem sagan fjallar um, á 13. öld, bjó fólk í Skagafirði yfirleitt við friðsemd og naut styrkrar stjórnar goðorðsmanna af ætt Ásbirninga. Sturlungar réðust inn í ríki Ásbirninganna með það að markmiði að ná Skagafirði á sitt vald og liggur slóð þeirra um Skagafjörð. Hinn árlegi sögudagur á Sturl- ungaslóð í Skagafirði er í dag, laug- ardaginn 13. ágúst. Gestum og gang- andi er boðið í Geldingaholt kl 14 þar sem Helgi Hannesson leiðsögumaður segir frá atburðum á Sturlungaöld, sem tengjast staðnum, og fleiru. Bærinn er rétt norðan við Varmahlíð. Um kvöldið verður Ásbirningablót í Kakalaskálanum í Kringlumýri kl 20. Þar mun Guðrún Nordal, for- stöðumaður Stofnunar Árna Magn- ússonar í íslenskum fræðum, flytja erindi sitt, Hvað gerðist í raun og veru á Sturlungaöld? – frá atburði á kálfskinn til nútíma. Kvæðamanna- félagið Gná mun kveða af sinni al- kunnu snilld og í boði verður hlað- borð með kræsingum í miðaldastíl frá Hótel Varmahlíð. Sögudagur á Sturlungaslóð í Skagafirði Hvað gerðist í raun og veru á Sturlungaöld? Sögusviðið Sturlungaöld hefur yfir sér sérstakan ljóma og oft er vitnað til þeirra sem þá voru uppi og þeirra atburða sem gerðust í Skagafirði á 13. öld. Nokkrir meðlimir dömukórsins Gra- duale Nobili standa fyrir fatamark- aði á Loft hosteli í Bankastræti 7 í dag, laugardag, milli klukkan 13 og 17. Fatamarkaðurinn er hluti af fjáröflun kórsins sem heldur til Mílanó í lok mánaðar. Þar mun kór- inn halda tvenna tónleika og hlusta á fyrrverandi kórsystur sína syngja á stóra sviðinu á La Scala í upp- setningu Töfraflautunnar. Á fata- markaðnum munu um 10 kórmeð- limir selja ýmsar gersemar, svo sem kjóla, yfirhafnir, skart, skó og fleira. Verði verður haldið í lág- marki og hægt verður að greiða með reiðufé eða í gegnum smáfor- ritin Aur og Kass. Svo er aldrei að vita nema döm- urnar taki lagið fyrir gesti og gangandi. Endilega… Graduale Nobili Kórinn heldur fata- markað á Loft hosteli í dag. …gerið góð kaup á fata- markaði

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.