Morgunblaðið - 13.08.2016, Side 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. ÁGÚST 2016
Baðaðu þig í gæðunum
Opið virka daga frá kl. 8-18
Smiðjuvegi 76 • Kópavogi • Sími 414 1000 • Baldursnesi 6 • Akureyri • Sími 414 1050 • www.tengi.is • tengi@tengi.is
Bifreið var í gær ekið á vespu á
Breiðholtsbraut í Reykjavík. Öku-
maður bifhjólsins var fluttur á
sjúkrahús en ekki fengust upplýs-
ingar um líðan viðkomandi.
Lögreglumenn þurftu vegna
slyssins að loka Breiðholtsbraut frá
Jaðarseli að Norðlingaholti í báðar
áttir. Var meðal annars fenginn
pallbíll til að fjarlægja vespuna af
slysstað, en rannsóknarvinnu lög-
reglu lauk laust fyrir klukkan 16.
Tildrög slyssins voru í gær enn
óljós og fer lögreglan á höfuð-
borgarsvæðinu með rannsókn máls-
ins.
Bifreið ekið á vespu
á Breiðholtsbraut
Á vettvangi Lögreglan þurfti í gær að
loka fyrir umferð ökutækja vegna slyssins.
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Undanfarið hefur verið unnið að því
að rífa húsið Hverfisgötu 42. Þetta
hús reisti hinn kunni athafnamaður
Einar Ásmundsson, sem kenndur
var við fyrirtæki sitt Sindra. Húsið
var þekkt á seinni árum vegna starf-
semi sem þar fór fram, fyrst á vegum
Samhjálpar og síðar listamanna-
gallerísins Kling og Bang.
Einar Ásmundsson járnsmiður
(1901-1981) stofnaði árið 1924 litla
vélsmiðju í porti við Lækjargötu og
nefndi hana Vélsmiðjuna Sindra. Ár-
ið 1928 festi hann kaup á lóð að
Hverfisgötu 42 ásamt byggingum.
Flutti hann vélsmiðjuna í hús þau
sem voru á lóðinni.
Kjarkur og áræði
„Á kreppuárunum átti Einar næg-
an kjark og áræði til að hefja bygg-
ingu stórhýsis á þeirra tíma mæli-
kvarða,“ segir m.a. í minningargrein
um Einar sem birtist í Morgun-
blaðinu á útfarardegi hans, 8. desem-
ber 1981. Húsið Hverfisgata 42 var
fjórar hæðir og ris.
Rekstur Sindra varð mjög um-
fangsmikill og snerist að mestu leyti
um framleiðslu á alls kyns stálvörum
ásamt ýmsum hliðarvörum eins og
húsgögnum úr stáli, plasti og tré,
sem voru klædd t.d. með íslenskum
skinnum og ullaráklæðum. Árið 1965
var nafni Sindra breytt yfir í Sindra-
Stál, sem upp frá því tók að þróast
frá iðnframleiðslu yfir í alhliða þjón-
ustu- og innflutningsfyrirtæki fyrir
málmiðnaðinn í landinu. Árið 1989
var rekstrinum skipt upp og endur-
vinnsluhlutinn hlaut nafnið Hring-
rás.
Árið 1949 var Einar Ásmundsson
staddur úti í Póllandi til að kaupa
járn og stál fyrir íslenskan iðnað. Á
þeim tíma hafði vígbúnaðarkapp-
hlaup eftirstríðsáranna skapað mik-
inn hráefnisskort. Af þeim sökum
var hið eina í stöðunni að gera vöru-
skiptasamning við Pólverjana, sem
byggði á því að Einar safnaði saman
öllu brotajárni sem hann komst yfir
og í staðinn fengi hann járn og stál.
Með þessum hætti var styrkum stoð-
um skotið undir Endurvinnsludeild
Sindra, sem hóf formlega starfsemi
árið 1950.
Samhjálp festi kaup á Hverfisgötu
42 árið 1980. Þar fór starfsemi sam-
takanna fram, fundir og samkomur.
Þar var einnig áfangaheimili, þar
sem 15 einstaklingar gátu dvalið í
einu. Kaffistofa Samhjálpar var opn-
uð í maí 1983 í gamla söngskólanum
sem var bakhús á milli húsanna nr.
42 og 44. Það hús, sem margir muna
eftir, hefur einnig verið rifið.
Að rekstri Kling og Bang gallerís
hefur hópur listamanna staðið allar
götur frá árinu 2003, en starfsemin
hefur reyndar farið fram á nokkrum
stöðum. Galleríið var til húsa að
Hverfisgötu 42 frá árinu 2008 til 2015
er því var lokað.
Gallerí Kling og Bang, Nýlista-
safnið og Ólafur Elíasson munu
flytja inn í hið glæsilega Marshall-
hús úti á Granda, en húsið er í eigu
HB Granda. Reykjavíkurborg mun
leigja húsið til 15 ára. Marshall-húsið
á Granda var upphaflega byggt sem
síldarverksmiðja en mun nú hýsa
framsæknar listir. HB Grandi á hús-
ið og mun gera það veglega upp.
Standa þær framkvæmdir yfir.
Hverfisgata 42 og fleiri hús í ná-
grenninu þurfa að víkja fyrir ný-
byggingum sem munu rísa á svoköll-
uðum Brynjureit milli Laugavegar
og Hverfisgötu. Verktakafyrirtækið
Þingvangur ehf. sér um framkvæmd-
irnar. Þegar niðurrifi og flutningum
lýkur hefjast framkvæmdir. Í hús-
unum verða 77 smáíbúðir og versl-
anir á jarðhæðum.
Sögufrægt stórhýsi víkur
fyrir nýjum byggingum
Einar Ásmundsson í Sindra reisti Hverfisgötu 42 á kreppuárunum
Morgunblaðið/Ófeigur
Hverfisgata 42 rifin Þetta sögufræga hús varð að víkja fyrir nýbyggingum á Brynjureitnum svokallaða.
Horfið Hverfisgata 42 var stórhýsi
á sínum tíma; fjórar hæðir og ris.
Kattardauði í Hveragerði á dögun-
um gæti bent til þess að hugsanlega
sé dýraníðingur aftur kominn á stjá í
bæjarfélaginu. Að minnsta kosti þrír
kettir drápust í ágúst í fyrra eftir að
hafa étið fiskflök sem sprautuð
höfðu verið með frostlegi.
Oddur Árnason, yfirlögreglu-
þjónn á Suðurlandi, sagði í samtali
við mbl.is í gær að lögregla hefði ný-
lega fengið tilkynningu um að köttur
hefði drepist í Hveragerði. Tilkynn-
ingunni fylgdi að grunsemdir væru
um að eitrað hefði verið fyrir kett-
inum.
Búið er að kryfja köttinn að sögn
Odds, en óformleg niðurstaða krufn-
ingarinnar bendir til þess að kött-
urinn hafi étið eða drukkið frostlög
eða þess háttar efni. Er málið mjög
sambærilegt því sem upp kom í
fyrra að hans sögn.
Við rannsókn lögreglu í fyrra bár-
ust nokkrar ábendingar og vísbend-
ingar til lögreglu en þær leiddu ekki
til niðurstöðu. Er því enginn grun-
aður um verknaðinn í þessu máli,
hvorki þá né nú, að sögn Odds, sem
biðlar til almennings um að veita
upplýsingar um þennan grun-
samlega verknað. Aðspurður sagði
Oddur þó að lögregla gæfi ekki út
sérstök tilmæli til kattaeigenda um
að halda köttum innandyra.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Hveragerði Köttur drapst í bænum á dögunum vegna eitrunar. Enginn er
grunaður um verknaðinn, en svipuð atvik áttu sér stað í fyrra.
Dularfullur kattar-
dauði í Hveragerði
„Þingflokkur
Samfylking-
arinnar hefur
ekki lokið um-
ræðu um þetta
mál. Það er því
orðum aukið að
okkar samþykki
liggi fyrir,“ segir
Kristján L. Möll-
er, þingmaður
Samfylkingarinnar og fulltrúi
flokksins í atvinnuveganefnd Al-
þingis.
Vísar hann þar til fréttar í
Morgunblaðinu í gær þar sem haft
var eftir Jóni Gunnarssyni, þing-
manni Sjálfstæðisflokksins og for-
manni nefndarinnar, að sátt væri á
meðal allra flokka um tillögur sem
lagðar hefðu verið fram um breyt-
ingar á nýjum búvörusamningi að
Bjartri framtíð undanskilinni.
Kristján segir að tillögurnar hafi
verið kynntar fyrir honum í byrjun
vikunnar en þingflokkur Samfylk-
ingarinnar hafi ekki lokið athugun
sinni á þeim. hjortur@mbl.is
Samfylkingin ekki
samþykkt málið
Kristján L. Möller