Morgunblaðið - 13.08.2016, Síða 49
49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. ÁGÚST 2016
Jazzhátíð Reykjavíkur 2016
Veðurguðirnir léku ekki viðsetningu JazzhátíðarReykjavíkur 2016, svo ístað þess að marsera frá
Lucky Records í Hörpu var þramm-
aði í bílakjallara tónlistarmusteris-
ins.
Tómas á nýjum Kúbuslóðum
Fyrstu tónleikar hátíðarinnar voru
tónleikar tíu manna sveitar Tómasar
R. Einarssonar, bassaleikara og tón-
skálds, þar sem flutt voru átt ný lög
eftir hann og tvö eldri. Sigríður
Thorlacius söng flest laganna, en
Bogomil Font skaut líka upp koll-
inum. Rósa Guðrún Sveinsdóttir,
sem enn er í námi, blés í barítón-
saxófón með bandinu og söng tvö lög
með Sigríði. Annað þeirra var djass-
aðasta lag tónleikanna, sem hét á sín-
um tíma „Mambo með tíu tær“, en
hafði nú misst tærnar, en fengið
texta eftir tónskáldið. Það var engin
barnaleikur að syngja þetta, en tókst
vel hjá þeim stöllum og minnti á
stundum á Hendricks-familíuna. Í
hljómsveitinni var snillingur í hverju
sæti, en af einleikurum þótti mér
mest til koma píanistans, Davíðs
Þórs Jónssonar, sem tapaði aldrei
Kúbuslættinum þó að hann nálgaðist
frjálsdjassinn oft í lok sólóa sinna.
Fegurðin ríkir öllu ofar þegar
Tómas tónsetur Laxness og Ingi-
björgu Haralds og gaman var að lagi
hans við hendingum úr Hlíðar-Jóns
rímum Steins Steinars „Ég man ekki
neitt“ var yfirskriftin. Tveir góðir
Dalamenn. Ég þekki sosum ekkert
til tónlistarinnar frá Santiago de
Cuba, þar sem Tómas dvaldi tvo
mánuði í vetur og naut hryns og
söngs. Einhvern veginn fannst mér
þessi tónlist Tómasar mildari en sú,
sem heyra má á þremur fyrstu
Kúbu-plötum hans, og mér finnst
hann þurfa meiri djarfleika þegar
hann semur við firnagóð og kraft-
mikil ljóð Kristínar Svövu dóttur
sinnar, en að því kemur. Þetta voru
einkar vel heppnaðir tónleikar mik-
ilhæfs tónlistarmanns og frábærrar
sveitar hans sem söng af öllum kröft-
um þegar við átti.
Bræðingsdjass upp
á nútímaamerísku
Það var dálítið öðruvísi tónlist sem
hljómaði í Eldborg að loknum tón-
leikum Tómasar. Samvinnusveitin af
bræðingsdjassættinni, Snarky
Puppy, lét í sér heyra svo um mun-
aði. Þetta voru níu hljóðfæraleikarar,
en þessi Brooklyn-sveit, undir for-
ustu bassaleikarans Michaels
League, samanstendur af um þrjátíu
músíköntum og ræðst það af því hvað
er á seyði hjá hinum og þessum
hverjir halda saman í tónleikaför.
Þeir hafa starfað saman frá 2004 og
gefið út fjölda platna, m.a. með
Metropole-hljómsveitinni hollensku,
sem skipuð er um fjörutíu blásurum,
strengja- og hrynleikurum. Sem bet-
ur fer var þetta ekki eintómt bræð-
ingsfönk. Þarna skutu upp kollinum,
þegar á leið og fönkið farið að þreyt-
Rjúkandi
stuð á
djasshátíð
Morgunblaðið/Golli
Samvinnusveit Snarky Puppy er samvinnusveit af bræðingsdjassættinni sem fór mikinn í Eldborgarsal Hörpu.
ast, fallegar ballöður og töfrandi lag-
línur með rætur í Balkan/Norður-
Afríku hefðinni. Þarna var topp-
maður í hverju sæti og samleikurinn
fínn, þó að sumir þeirra væru að hitt-
ast í fyrsta sinni þarna á Eldborg-
arsviðinu. Nokkrir einleikaranna
voru frábærir og fór þar fremstur í
flokki fiðlarinn Zach Brocks, sem hef-
ur leikið með Stanley Clarke, og
minnir um margt á Jean-Luck Ponty.
Aðrir einleikarar sem fönguðu at-
hygli mína voru hljómsveitarstjórinn,
Michael League á rafbassa, tromp-
etleikarinn Mike „Maz“ Maher með
vavapetala sóló og ekki síst magn-
aður dimmur ljóðrænn trompetsóló
Justins Stantons, sem einnig lék á
hljómborð. Þessir tónleikar voru mun
betri en ég hafði búist við.
Söngkona af bestu sort
Fimmtudagurinn hófst á Budwar-
sviðinu á Hörpu og eins og í djamm-
inu, kvöldið áður, var hljómburðurinn
afleitur og galt hrynsveitin þess
mest: Daníel Helgason gítaristi, Pét-
ur Sigurðsson bassaleikari og Magn-
ús Tryggvason Eliassen trommari.
Anna Sóley Ásmundsdóttir er korn-
ung söngkona, sem útskrifaðist frá
djassdeild FÍH skólans í fyrravor.
Hún hefur mikla og fallega rödd og
beitir henni vel í tónsköpun sinni, en
lögin sem hún flutti voru flest eftir
hana sjálfa í nýja sálarstílnum. Það
nýjasta „Time’s Gonne Out of Cont-
rol“ fjallaði um þennan tíma sem sí-
fellt rennur okkur úr greipum og
hæfði þeim stíl vel. Af lögum hennar
var ég þó hrifnastur af „Let Me
Sleep“. Þar var tónninn oft mildari en
í öðrum tónsmíðum hennar. Bróðir
Önnu Sóleyjar er gítaristinn efnilegi,
Mikael Máni, og hann samdi blúsaða
ballöðu við ljóð Önnu Sóleyjar:
„Don’t Care“. Skemmtilega gam-
aldags, en þó fersk, og Anna Sóley
söng hana glæsilega, ekki síður en
lag einnar helstu fyrirmyndar henn-
ar, Amy Winehouse: „I Heard Love
is Blind.“ Eins og Amy er Anna Sóley
djasssöngkona í víðasta skilningi
orðsins. Tony Bennett taldi Amy
meðal fremstu djsssöngvenna og
Lady Gaga er uppáhald hans. Í þess-
um hópi óhefðbundinna djasssöng-
kvenna á einnig heima Eva heitin
Cassidy, systir Dans fiðlara, en hún
söng stundum fyrir okkur í gamla
daga á Blúsbarnum við Laugaveg.
Eitt er víst, Anna Sóley á glæsilegan
feril framundan í „djassblússól“ stíl
sínum.
Frá Cycles til Heimkomunnar
Síðustu tónleikarnir á fimmtudag
voru tónleikar kvartetts Einars
Schevings, sem þegar hefur sent frá
sér þrjá diska. Á þessum tónleikum
fluttu þeir Einar, Óskar Guðjónsson,
Eyþór Gunnarsson og Skúli Sverr-
isson nýtt efni í bland við efni af
tveimur diskanna. Eftir „Heiði“ og
„Intervals“ af samnefndum diski léku
þeir „Cykels“. Eyþór var í aðal-
hlutverki og gleðin hríslaðist um
mann að heyra þetta titilverk af ein-
um albesta djassdiski síðasta áratug-
ar. Annað verk léku þeir af diskinum:
„Sveitin“, ljúfa melódíu með
skemmtilegum eftirmála. Svo var
enn eitt lag leikið af Intervals: „Long
Iceland City“ þar sem spænskur
blær var á sóló Skúla. Þessi lög
hljómuðu líkt og á skífunum, en með
ferskum viðbótum og meira að segja
brá Eyþór fyrir sig barrokkskum
töktum.
Eitt nýtt verk fluttu þeir félagar,
þriggja þátta svítu byggða á tónlist
Einars við leikrit Harolds Pinters
Heimkomuna því ekki komst öll sú
tónlist í leikritið, sem hann samdi
fyrir það. Þetta var að mörgu leyti
dimmari tónlist en sú sem fyrr var
leikin og stundum sár tónn í annars
ljúfum saxófónleik Óskars. Svítan
ratar efalaust á disk og þá enn betur
samspiluð en á þessum tónleikum,
þar sem hún var leikin blaut úr
penna Einars.
Eftir tónleikana var djammsessjón
á Börtuloftum, en hljómburðurinn
þar hélt mér ekki föngnum. En
djasshátíðin heldur áfram með
spennandi tónleikum í kvöld, þar sem
tríó Bobo Stenson verður toppurinn,
og á sunnudag á að heiðra Kalla
Möller í kirkju Óháða safnaðarins og
öllum boðið.
Harpa
Sveit Tómasar R. Einarssonar
bbbbn
Snarky Puppy bbbbn
Anna Sóley Ásmundsdóttir og fé-
lagar bbbmn
Kvartett Einars Scheving bbbbm
Hinir ýmsu salir Hörpu miðvikud. 10.
ágúst og fimmtud. 11. ágúst 2016.
VERNHARÐUR
LINNET
TÓNLIST
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Efnileg Anna Sóley Ásmundardóttir hefur mikla og fallega rödd.
Morgunblaðið/Golli
Mikilhæfur Tómas R. Einarsson.
Góðir Einar Scheving kom fram
með kvartett sínum á Jazzhátíð.
NERVE 5:50, 8, 10:10
LEYNILÍF GÆLUDÝRA 2D ÍSL.TAL 2, 4, 6
LEYNILÍF GÆLUDÝRA 3D ÍSL.TAL 4
LEYNILÍF GÆLUDÝRA 2D ENS.TAL 2, 4, 6, 8
BAD MOMS 8, 10:10
JASON BOURNE 10
ÍSÖLD ÍSL.TAL 1:40
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
Miðasala og nánari upplýsingar
AUKIN ÞJÓNUSTA
VIÐ EIGENDUR SKODA
• Bílson er sérhæft og vottað þjónustuverkstæði sem
uppfyllir allar ströngustu kröfur Skoda.
• Fullkomin forgreiningarstöð þar sem greina má flest
allt um ástand bílsins og gæði.
• Bílson hefur gæðavottun Bílgreinasambandsins með gæðaúttekt frá BSI á Íslandi auk
starfsleyfis til endurskoðunar frá Samgöngustofu.
Við leitumst við að vera samstíga því besta í Evrópu.
Komið, sjáið og sannfærist.
Kletthálsi 9 • Sími 568 1090
- V E R K S T Æ Ð I Ð -
Kletthálsi 9 • 110 Reykjavík • Sími 568 1090 • bilson@bilson.is • bilson.is