Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2015, Blaðsíða 46

Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2015, Blaðsíða 46
30 Fólk Vikublað 24.–26. mars 2015 og Smáratorgi · Korputorgi HUNDAFÓÐUR FÆST HJÁ OKKUR Sex grænar Stjörnur n Stjörnur sem velja lífrænar og náttúrulegar vörur n Heilbrigði og hollusta í fyrirrúmi S tjörnurnar þurfa kannski að láta sig hafa það að vera farð- aðar með sterku málningar- dóti þegar þær eru við tökur á bíómyndum eða að gera sig klár- ar fyrir tískusýningu. Hins vegar eru nokkrar stjörnur sem velja alltaf náttúrulegar og hollari vörur. n Gisele Bündchen Ofurfyrirsætan Gisele Bündchen komst í heimsfréttirnar þegar hún sagði sólarvörn vera eitur. Síðar kom í ljós að hún átti við að hún myndi sjálf velja sér náttúrulegri tegund en þá hefðbundnu sólarvörn sem er á markaðnum. Árið 2010 fór Gisele að framleiða eigin snyrtivörur undir nafninu Sejaa Skincare sem búnar eru til úr grænu tei, ginseng og argan-olíu. Miranda Kerr Ofurfyrirsætan Miranda Kerr er falleg frá náttúrunnar hendi. Kerr framleiðir eigin lífræna snyrtivörulínu, Kora Organics, sem saman stendur aðallega af ávaxtasafa og olíum úr nýpufræjum. Kerr borðar einnig aðeins ferskan lífrænt ræktaðan mat, drekkur sítrónuvatn alla morgna til hreinsunar og þurrburstar húðina reglulega. Gwyneth Paltrow Kvikmyndastjarnan Gwyneth Paltrow, sem elskar allt sem er náttúrulegt og lífrænt, segist hafa komið í vef fyrir slit á meðgöngu með því að nudda magann með náttúrulegri olíu. Jessica Alba Leikkonan Jessica Alba stofnaði honest.com til að bjóða mæðrum upp á eiturefnalausar vörur. Alba hefur látið hafa eftir sér að hún reyni ávallt að kaupa lífrænar vörur sem hún svo blandar saman við eigin líkamsolíur. Fegurðarráð hennar er að drekka tvo lítra af vatni á dag, forðast unna matvöru og hreyfa sig daglega, jafnvel þótt það sé aðeins í hálftíma. Alicia Silverstone Leikkonan Alicia Silverstone er grænmetisæta og virkur umhverfisverndarsinni. Silverstone er einnig eigandi fyrirtækis sem framleiðir förðunarbursta og töskur án þess að valda náttúrunni eða dýrum skaða. Leik- konan bloggar um heilbrigðan lífsstíl sinn á síðunni thekindlife.co Natalie Portman Leikkonan Natalie Portman tekur tímabil þar sem hún neytir eingöngu grænmetisfæðis. Leikkonan er mikill aðdáandi náttúrulegra andlitsbaða og notar gjarnan maska til að halda húðinni heilbrigðri og fersklegri.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.