Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2015, Blaðsíða 8
Vikublað 24.–26. mars 20158 Fréttir Viðskipti
Sími 568-5556 www.skeifan.is
Föst sölulaun
Sölulaun eigna
yfir 60 milljónum
aðeins 1% + vsk
upp að 60 milljónum
299.900.- + vsk
VANTAR – VANTAR
Vegna mikillar sölu vantar
allar stærðir eigna á skrá.
Eysteinn Sigurðsson
Löggiltur fasteignasali / Sími: 896-6000
eysteinn@skeifan.is / skeifan.is
Magnús Hilmarsson
Sölumaður / Sími: 896-6003
magnus@skeifan.is / skeifan.is
Sigurður Hjaltested
Löggiltur fasteignasali / Sími: 821-5400
sigurdur@skeifan.is / skeifan.is
Hólmaslóð 2 . 101 Reykjavík . www.tolli.is
Opið þriðjudaga til laugardaga frá kl. 13-17
Ýtir undir fylgi Pírata
n Segir gagnrýnendur holdgervinga gamaldags hugmynda n „Þurfti að koma upp á yfirborðið“
Á
rni Páll Árnason stóð af sér
lúalegt herbragð þar sem
sótt var að honum vopn
lausum með fullvæpni.“
(Guðríður Arnardóttir)
„Þetta var þaulskipulagt bana
tilræði úr launsátri. Undirmálin al
gjör.“ (Kristrún Heimisdóttir)
„Hvernig svo sem framboð Sig
ríðar Ingibjargar er tilkomið var
það misráðið …“ (Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir)
„Þess vegna er verkið svo illt
sem unnið var. Þegar ráðist er til at
lögu án skýrs tilefnis, án ágreinings
…“ (Sighvatur Björgvinsson)
Þetta er fátt eitt sem sagt hef
ur verið og skrifað um fyrirvara
lítið framboð Sigríðar Ingibjargar
Ingadóttur gegn Árna Páli Árnasyni
af fólki sem stutt hefur Samfylk
inguna og tekið þátt í starfi hennar
frá stofnun fyrir um 15 árum.
Engin þaulskipulögð
hallarbylting
Sjálf tekur Sigríður Ingibjörg málinu
frekar létt og þvertekur fyrir að um
hafi verið að ræða þaulskipulagða
hallarbyltingu. Könnun DV meðal
nokkurra stuðningsmanna henn
ar gefur einnig vísbendingar um
að framboð hennar hafi átt sér
skamman aðdraganda. Aftur á móti
hefur vaxandi óánægju gætt innan
flokksins á kjörtímabilinu og spyrja
má hvort framboð Sigríðar Ingi
bjargar hafi ekki aðeins kallað fram
á yfirborðið ákveðnar staðreyndir
um þá óánægju. „Þetta átti ekki
langan aðdraganda. Ákvörðunin
var tekin þarna fyrir fundinn en
löngu fyrr var ljóst að það var mik
ill þrýstingur meðal flokksmanna,“
segir Sigríður Ingibjörg í samtali
við DV. „Ég hafði efasemdir um að
þetta væri verkefni sem ég ætti að
taka að mér. Auk þess er meira en
að segja það að fara fram gegn sitj
andi formanni. En þegar leið að
landsfundi fann ég með sjálfri mér
að við yrðum að hrista upp. Ég átt
aði mig hins vegar ekki á að undir
aldan væri svona svakalega sterk.“
Eins og sýnishornin gefa til
kynna hér að framan hafa viðbrögð
stuðningsmanna Árna Páls verið
afar hörð og spyrja má hvort fram
boðið hafi verið þess virði.
„Ég stend algerlega með þessari
ákvörðun. Einsog ég segi í yfirlýs
ingu tókst okkur að breyta hlutun
um. Undiraldan fékk að koma upp
á yfirborðið og landsfundurinn
varð öflugri og róttækari en hann
hefði annars orðið. Samfylkingin
hefur eftir kosningaósigurinn 2013
átt í erfiðleikum. Þetta gefur okkur
kannski tækifæri til hreinskiptnari
umræðu og til að vinna úr stöðu
flokksins.“
Ýtir undir fylgi Pírata
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og
Sighvatur Björgvinsson hafa metið
það svo að framboð Sigríðar Ingi
bjargar hafi verið óleikur á stundu
þegar margt sé í húfi fyrir Samfylk
inguna. Þessu er Sigríður Ingibjörg
ósammála. „Ég held raunar að þau
séu dálítið eins og holdgervingar
gamaldags hugmynda og þess sem
er að ýta undir fylgi Pírata. Margir
í Samfylkingunni sem og jafnaðar
menn utan Samfylkingarinnar hafi
haft áhyggjur af framtíð hennar
og talið að það þyrfti eitthvað að
gera.“
Flokksmenn í Samfylkingunni
spyrja sig hvort samstarf Árna Páls
og Sigríðar Ingibjargar geti blessast
í ljósi úrslitanna á landsfundinum
þar sem aðeins eitt atkvæði skildi
þau að. Sigríður Ingibjörg hefur
ekki áhyggjur af samstarfinu við
Árna Pál. „Ég ræddi við hann þegar
á föstudagskvöldið. Það var stutt og
svo spjölluðum við saman einnig á
fundinum á laugardaginn og loks
áttum við góðan fund í morgun
(mánudag). Við Árni erum góðir fé
lagar og áttum hreinskiptnar sam
ræður á fundi okkar. Við verðum
ekki í neinum vandræðum með að
vinna saman frekar en hingað til.
Ég hef engar áhyggjur af samstarfi
okkar Árna Páls.“
Léttir þegar fram í sækir
Sigríður Ingibjörg telur Samfylk
ingunni hollt að fara í gegnum
hreinsunareld. „Almennt fæ ég
miklar þakkir fyrir að hafa safn
að kjarki til að gera þetta. Stund
um þarf að skapa óreiðu og hrista
upp. Samfylkingin er ekki staðnað
ur flokkur. Það var spennuþrung
ið andrúmsloft á fundinum. Ég
ákvað um fimmleytið síðastliðinn
fimmtudag að fara fram. Ég fann
það með sjálfri mér að þetta yrði
ég að gera. Ég er auðvitað mjög
þakklát fyrir stuðninginn. Ég held
að þetta geti einnig verið léttir fyr
ir formanninn þegar allt kemur til
alls.“ n
Jóhann Hauksson
johannh@dv.is
Aftöppun Sigríður Ingibjörg Ingadóttir telur að þegar fram í sækir sé það til bóta fyrir Samfylkinguna að tappa af óánægjunni.
Vandi á höndum Árna Páls Árnasonar bíður að sameina flokkinn og lægja öldurnar eftir
landsfundinn. Mynd Sigtryggur Ari