Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2015, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2015, Blaðsíða 18
Vikublað 24.–26. mars 20152 Veitingar - Kynningarblað B rooklyn Bar & Bistro var opnaður um miðjan október 2014 að Austur- stræti 3 í Reykjavík. „Okkur fannst húsið í þessum New York-stíl, Brooklyn-legt, og ákváð- um því að nefna staðinn því nafni,“ segir Andrés Þór Björnsson, sem á staðinn ásamt Ómari Ingimarssyni. Húsnæði og matseðill í anda Brooklyn Andrés og Ómar tóku allt húsnæð- ið í gegn og endurhönnuðu í anda Brooklyn og fengu þeir Örn Töns- berg, betur þekktan sem Össi til að graffa staðinn að utan. Girnileg- ur matseðillinn er einnig í anda New York, hamborgar- ar, steikur, salöt og fleira. Grillað er á kolagrillum og eru allir réttir nefndir eftir þekktum að- ilum sem tengjast Brooklyn, til dæm- is Al Pacino- og Jay Z-hamborgarar, Central Park-salat, Tupac Shakur-rif og réttirnir Batman og Superman fyrir börnin. Staðurinn hefur verið vel sóttur frá upphafi, bæði á daginn og kvöldin. „Orðið á götunni er að við séum með bestu hamborgarana í bænum,“ segir Andrés. Hann nefnir jafnframt að Teitur Atlason bloggari sem er grænmetisæta hafi heimsótt stað- inn og síðan sagt frá því að á Brook- lyn Bar & Bistro hafi hann fengið besta grænmetisborgarann í bæn- um, en hann er númer 5 á matseðl- inum og heitir Spike Lee-borgari. Fyrirpartístemning, trúbador og DJ um helgar Um helgar er fyrirpartístemning, fólk kemur og fær sér að borða og situr svo og spjallar. Boðið er upp á trúbador allar helgar frá kl. 23–01 og DJ eftir það fram að lokun. Staðurinn er á þremur hæð- um og á þriðju hæð er bar þar sem að hægt að setjast eða dansa, þó að dansgólfið sé ekki stórt. Þriðja hæðin er einnig leigð út fyrir einkasamkvæmi fyrir hópa, en allt að sextíu manns komast þar fyrir. „Það kom okkur á óvart hversu vinsælt hefur verið að leigja þriðju hæðina,“ segir Andrés. Brooklyn Bar & Bistro er í Austur- stræti 3, Reykjavík, síminn er 414- 1616. Opnunartími sunnudaga til fimmtudaga kl. 11–01, föstudaga og laugardaga kl. 11–03. n „Orðið á götunni er að við séum með bestu hamborgarana í bænum“ Brooklyn Bar & Bistro í Austurstræti Graff Össi graffaði staðinn að utan. Girnilegur Brooklyn- borgarinn Stemning Svona er stemningin á kvöldin. F yrir tæpum tíu árum síð- an létu hjónin Hrönn Vil- helmsdóttir og Þórólfur Antonsson slag standa og keyptu húsnæðið að Loka- stíg 28 í Reykjavík sem nýkomið var í sölu og opnuðu kaffihúsið Loki. Kaffihúsið var rekið á annarri hæð hússins og á þeirri fyrstu rak Hrönn hönnunarverslun. Vegna vin- sælda sprengdi kaffihúsið þó fljót- lega utan af sér og er í dag á fyrstu tveimur hæðunum, á þeirri þriðju er Hrönn með hannyrðaverkstæði og þar er einnig bakarí, þar sem margrómað rúgbrauð staðarins er bakað ásamt fleira góðgæti. „Þetta er búið að vera mjög mikið ævin- týri,“ segir Hrönn. Nóg hefur verið að gera alla daga frá opnun og eykst með hverju ár- inu. Úti um glugga kaffihússins blas- ir Hallgrímskirkja við, sem nær allir ferðamenn sem koma til Reykjavíkur koma að skoða. Eftir skoðunarferð um kirkjuna liggur því beint við að setjast niður á Loka og fá sér soð- inn fisk, hangikjöt, kjötsúpu, harð- fisk, hákarl, flatkökur, rúgbrauð eða aðra íslenska og þjóðlega rétti sem staðurinn býður upp á. „Við ákváð- um strax að setja okkur ramma hvað matinn varðar og höfum síðan leik- ið okkur innan hans, í stað þess að bæta við hann,“ segir Hrönn. Innréttingarnar eru skemmti- legar og persónulegar, glugga- tjöldin prýða myndir af Hallgríms- kirkju, sem Þórólfur tók daglega út um eldhúsgluggann á fyrrum heimili þeirra hjóna á Barónsstíg. Margar myndanna hanga einnig á veggjum Loka. Á fyrstu hæð er svo hægt að kaupa hönnun Hrannar, þar á meðal púða með myndum unnum úr málverkinu sem prýðir efri hæð kaffihússins. Málverk Á efri hæð Loka prýðir einstakt listaverk einn vegg salarins, þar sem sögur af Loka Laufeyjarsyni úr norrænu goðafræðinni lifna við. Listamennirnir Siggi Valur og Rafaella, sem unnu meðal annars saman í Latabæ, eiga heiðurinn að listaverkinu. Siggi teiknaði og saman stóðu þau í fimm vikur og máluðu þetta magnaða listaverk á vegginn. Hrönn segir að sumir gest- ir hafi mætt reglulega þessar fimm vikur til að fylgjast með ferlinu. Verkið lýsir nokkrum atriðum úr norrænni goðafræði þar sem Loki birtist í ýmsum hlutverkum, enda var hann hreint ólíkindatól. Sögurnar af Loka tengjast einnig götunum í nágrenni kaffihússins: Freyjugata, Baldursgata, Haðarstíg- ur, Óðinsgata, Þórsgata og Loka- stígur. „Við vildum tengja staðinn við hverfið og það er jafnvel algengt að Reykvíkingar átti sig ekki á því að göturnar hér eru nefndar eft- ir persónum úr norrænu goða- fræðinni,“ segir Hrönn. „Fjöldi ferðamanna hefur smá innsýn í söguna og þó að bandaríski risinn Marvel hafi til dæmis útbúið sína útgáfu af persónunni Þór þá verð- um við að hampa okkar útgáfu.“ Það er því tilvalið að bregða sér í miðbæinn á Loka, skoða lista- verkið og fræðast um eða rifja upp sögurnar um Loka og bragða sér á þjóðlegum og ljúffengum réttum. Kaffihúsið Loki er á Lokastíg 28, Reykjavík, síminn er 466-2828, net- fang loki@loki.is. Afgreiðslutími er mánudaga til laugardaga frá kl. 09.00–21.00 og sunnudaga frá kl. 11.00–21.00. n Kaffihúsið Loki: þjóðlegt og vinsælt Matur og þema - tenging við menningararfinn og hverfið í kring

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.