Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2015, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2015, Blaðsíða 19
Vikublað 24.–26. mars 2015 Veitingar - Kynningarblað 3 H jónin José Garcia og Þrúður Sjöfn Sigurðardótt- ir reka veitingastaðina Car- uso og Casa Grande, sem áður hét Tapashúsið. Sá fyrri hefur verið vinsæll og þéttset- inn þau 15 ár sem hjónin hafa rek- ið hann, en staðurinn hefur verið opinn í 20 ár og fyrir tveimur árum keyptu hjónin Tapashúsið sem varð strax vinsæll veitingastaður með- al unnenda spænskrar matargerð- ar. Nokkurs misskilnings hefur þó gætt með nafnið og gestir sem ekki þekkja til ruglað Tapashúsinu og Tapasbarnum saman. Eftir að Caruso var fluttur í Austur stræti 22 í desember 2014 varð eigendunum ljóst að smá áherslubreytingar varð að gera. Húsnæðið var minna en það eldra og því ekki hægt að taka á móti stór- um hópum eða bjóða upp á alla rétti sem áður höfðu verið í boði. „Því var ákveðið að breyta veitingastaðnum við höfnina, stað- urinn fær nýtt nafn Casa Grande og á fimmtudaginn næstkomandi verður formlegt opnunarpartí. Matseðlinum er breytt í leiðinni og í boði er úrval spænskra rétta eins og áður og pítsurnar sem hafa verið mjög vinsælar á Caruso bætast við matseðilinn á Casa Grande,“ segir José. Afslöppuð spænsk stemning, góður matur og góð þjónusta Stemningin er áfram afslöppuð og skemmtileg og áhersla lögð á góðan mat og góða þjónustu. Við anddyrið er komin vistleg og skemmtileg setu- stofa, þar sem að hægt er að fylgjast með starfsfólkinu við barinn og í eld- húsinu og góð aðstaða er á efri hæð- inni til að taka við hópum, þar sem allt að 60 manns geta setið til borðs. Um leið og vorar bætist útisvæð- ið við, hitalampar eru úti og hægt verður að borða úti við þrjár hlið- ar hússins. Útsýnið er frábært: sjór- inn og höfnin með sínu fjölbreytta og iðandi mannlífi, en mikill fjöldi ferðamanna sækir höfnina og Casa Grande um leið. Casa Grande er við Ægisgarð 2, Reykjavík, síminn er 512-8181, casa- grande@casagrande.is Opnunar- tími er virka daga kl. 12.00–22.30, föstudaga og laugardaga kl. 12.00– 23.30 og sunnudaga frá kl. 16.00– 22.30. Caruso er við Austurstræti 22, Reykjavík, síminn er 562-7335, car- uso@caruso.is. Opnunartími er virka daga kl. 11.30–22.00, föstu- daga kl. 11.30–23.30, laugardaga kl. 12.00–23.30 og sunnudaga kl. 17.00– 22.00. n Spænsk stemning, góður matur og góð þjónusta Aðalsmerki Casa Grande við Ægisgarð myndir sigtryggur Ari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.