Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2015, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2015, Blaðsíða 40
24 Menning Vikublað 24.–26. mars 2015 Að lifa af í Berlín N ei, Robin Williams er ekki ris- inn upp frá dauðum. Hér er um að ræða mynd á Þýskum kvikmyndadögum sem nú standa yfir í Bíó Paradís. Jack þessi hefur aldrei hitt föður sinn, en nafn hans gefur mögulega til kynna hvað- an sá er. Hálfbróðir hans heitir hins vegar Manuel, en báðir eru aldir upp hjá einstæðri móður í Berlínar- borg. Sú notar ansi frjálslyndar upp- eldisaðferðir, kippir sér til dæmis lítið upp við það þó Jack gangi inn á hana í miðjum samförum og biðji hana að smyrja samloku. Ekki líður þó á löngu þar til féló bankar upp á og kemur Jack fyr- ir á vistheimili. Þar er hann barinn af eldri strákunum og við virðumst vera stödd í dæmigerðri listabíó- mynd, þar sem segir frá afdrifum fátæks barns og þar sem allt verður stöðugt verra, sem er þessa dagana farin að verða álíka mikil klisja og hamingjusami Hollywood-endir- inn. Jack kemur þó á óvart. Hann strýkur af heimilinu, sækir bróð- ur sinn og saman fara þeir á ferða- lag um Berlínarborg í leit að móður sinni. Stundum minnir myndin nán- ast á Terminal, þar sem Tom Hanks þurfti að lifa á ókeypis tómatsósu- pökkum skyndibitastaðanna, en strákarnir gera sér mjólk og sykur- borð kaffihúsanna að góðu, „sur- vivalistar“ stórborgarinnar. Fyrir „Berlínarþekkjara“ er líka gaman að sjá þá dúkka upp úr neðanjarðar- lestinni hér og hvar í bænum, en Svisslendingurinn og leikstjórinn Berger er sérstakur áhugamaður um borgina og kemur henni vel til skila. Og þó viðfangsefni myndarinnar sé vissulega lítilmagninn kemst hún af án óþarfa tilfinningakláms og tekst, þegar upp er staðið, að vera ágætis skemmtun líka. n Valur Gunnarsson valurgunnars@gmail.com Kvikmyndir Jack Leikstjórn og handrit: Edward Berger Aðalhlutverk: Ivo Pietzcker, Georg Arms, Johann Fohl. Sýnd í Bíó Paradís Berlínaræska Myndin fjallar um óvenju- legt uppeldi og erfiða æsku í Berlín, en leikstjórinn nær að fanga anda borgarinnar að mati gagnrýnanda. Möguleikar fyrir skáldin Skíðblaðnir er raftímarit helgað smásögum F yrsta tölublað bókmennta- tímaritsins Skíðblaðnis er komið út. Skíðblaðnir er raf- tímarit helgað smásögum og í fyrsta heftinu eru fimm áður óbirtar smásögur eftir Einar Lövdahl, Guðrúnu Ingu Ragnarsdóttur, Magn- ús Sigurðsson, Ragnar Helga Ólafs- son og Sólveigu Johnsen. Ritstjóri er Sverrir Norland. Dagur Hjartarson situr í ritstjórn ásamt Sverri og Ragnari Helga. Hægt er að lesa tímaritið á heimasíðu þess www.skidbladnir.is Dagur er spurður hvernig hug- myndin að rafbókmenntatímariti hafi kviknað og segir: „Við Ragnar Helgi höfum lengi verið að velta fyr- ir okkur útgáfulandslaginu á Íslandi. Skíðblaðnir var bæði til út af þeim pælingum en einnig vegna þess að báðir skrifum við smásögur og höf- um ástríðufullan áhuga á smásagna- forminu. Á Íslandi eru ekki mörg tæki- færi til að fá birtar eftir sig smásögur. Tímarit Máls og menningar og Stína eru fín blöð en einskorðast við nokk- uð lokaðan hóp. Við vildum bæta úr þessu og þá kviknaði sú hugmynd að búa til smásagnatímarit á netinu. Okkur fannst skemmtileg hugmynd að hægt væri að rekast á tímarit á netinu þar sem væru á einum stað smásögur eftir jafn ólíka höfunda og Guðrúnu Evu, Gyrði og Yrsu. Útgáfuheimurinn er að breytast. Í hinum enskumælandi heimi hef- ur átt sér stað rafbókabylting en hér á landi er viss hneigð til að streitast á móti þessum breytingum. Menn hafa verið að velta því fyrir sér hvernig for- leggjarar hagnast á rafvæðingu bók- arinnar, en við viljum velta því upp hvaða möguleikar séu í boði fyrir skáldin og skáldskapinn. Getum við nýtt okkur þessa miðla til að gera eitt- hvað spennandi?“ Smásaga talin raunveruleiki Áætlað er Skíðblaðnir komi út fjórum til fimm sinnum á ári og nokkrar smá- sögur verði í hverju hefti. „Efnið verð- ur fjölbreytt og við stefnum saman ólíkum höfundum því smásagan er góður vettvangur fyrir lesendur til að kynnast höfundum,“ segir Dagur. Þegar hann er spurður hvort honum finnist íslenskir lesendur sýna smá- sögum mikinn áhuga segir hann: „Ég held að smásagan eigi ekki erfitt uppdráttar meðal lesenda en þeir eiga erfitt með að komast í smásögur. Það er ekki mikið um útgáfu á smá- sagnasöfnum, kannski vegna þess að forleggjarar hafa ekki góða reynslu af því. Íslenskir höfundar skrifa langar skáldsögur en gefa ekki stutt sýn- ishorn í smásögum eins og til dæmis amerískir höfundar.“ Dagur segir viðbrögðin við fyrsta tölublaði hafa verið góð og skemmti- leg. Smásaga Ragnars Helga Ólafs- sonar hefur vakið nokkra athygli. Sú saga er skáldað bréf frá fyrrverandi aðstoðarforstjóra Fasteignasýslu rík- isins. Sagan rataði inn á Facebook- síðu Hagsmunasamtaka heimilanna þar sem menn þar á bæ töldu hana vera raunverulegt bréf og vangaveltur urðu um það baktjaldamakk og þá eyðslu á almannafé sem kom fyrir í sögunni. Hnoðar lífi í skáldsögu Dagur á ekki sögu í fyrsta tölublaði Skíðblaðnis, en býst við að það verði seinna. Hann er verðlaunaskáld, hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar árið 2012 fyrir ljóða- bók sína Þar sem vindarnir hvílast og fleiri einlæg ljóð. Smásagnasafn hans Eldhafið yfir okkur kom út árið 2013 í rafbók. „Nú er ég að berjast við að halda lífi í skáldsögu sem ég hef verið að hnoða lífi í reglulega síðasta árið,“ segir hann. „Það er ekki víst hvenær hún kemur út, kannski næsta haust. Mig langar til að hún komi bæði út í bók og sem rafbók. Eldhafið yfir okk- ur kom út sem rafbók en fáir tóku eftir því en seinna komu smásögurnar út á bók og fleiri tóku eftir þeim. Íslenskur bókamarkaður og íslenskir lesendur eru ekki ennþá tilbúnir fyrir rafbók- ina en með útgáfu Skíðblaðnis erum við að ýta lesendum í þá átt.“ n „Menn hafa verið að velta því fyrir sér hvernig forleggjarar hagn- ast á rafvæðingu bókar- innar, en við viljum velta því upp hvaða möguleikar séu í boði fyrir skáldin og skáldskapinn. Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@dv.is Dagur Hjartarson „Nú er ég að berjast við að halda lífi í skáldsögu sem ég hef verið að hnoða lífi í reglulega síðasta árið.“ MynD SiGtryGGur Ari Rauðarárstíg 33, 105 Reykjavík • S: 511-7000 • Opið virka daga kl. 10–18 Innrammarinn.is PANTAÐU Á NETINU Project1_Layout 1 24/11/2011 12:58 Page 1 Kenro myndaalbúm og tilbúnir rammar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.