Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.2015, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.2015, Blaðsíða 36
Vikublað 21.–23. apríl 201536 Fólk Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is w Komdu í BÍLÓ! NISSAN QASHQAI SE 05/2012, ekinn 107 Þ.km, DIESEL, sjálfskiptur. Verð 3.890.000. Raðnr. 253362 NISSAN QASHQAI+2 SE 06/2011, ekinn 77 Þ.km, bensín, sjálfskiptur, 7 manna. Verð 3.980.000. Raðnr. 253442 SUZUKI GRAND VITARA LUXURY 01/2011, ekinn 48 Þ.km, bensín, sjálfskiptur, leður ofl. Verð 3.690.000. Raðnr. 285657 BMW 530D 09/2006, ekinn 93 Þ.km, DIESEL, sjálfskiptur. Gríðarlega flott eintak! Verð 4.290.000. Raðnr. 133687 AUDI A4 AVANT 1,8 TURBO 02/2011, ekinn 42 Þ.km, bensín, sjálfskiptur, leður ofl. Verð 5.490.000. Raðnr.253431 Þú finnur bílinn á bilo.is Auglýstir bílar eru á staðnum Skráðu bílinn á bilo.is Konur sem skyggja á eiginmenn sína n Margar eru giftar ríkustu mönnum heims sem hafa ekki roð við þeim n Hafa mikla hæfileika Þ essar ótrúlega flottu konur þykja allar skyggja á maka sína sem eru með þeim ríkustu og áhrifamestu í heiminum. Þær skyggja á makana með mismunandi hætti en hafa allar afrekað merkilega hluti. Þess utan hafa þær flestar aðgang að fjármunum eiginmanna sína og nýta sér það oftar en ekki í þágu góðgerðastarfs og mannúðarmála. Þá má líka minnast á að flestar eru þær mun myndarlegri en eigin- mennirnir. n Amal Alamuddin Mann- réttindalögmaðurinn Amal Alamuddin gekk nýlega að eiga leikarann George Clooney. Hún er mjög virtur lögmaður og meðal skjólstæðinga hennar eru fyrr- verandi forsætisráðherra Úkraínu, Yulia Tymoshenko, og Armenska ríkið í baráttu sinni fyrir viðurkenningu á þjóðarmorðum í Armeníu. Að auki geislar hún af fegurð og hefur einstaklega fallegan fatastíl. Það þarf ansi mikið til að skyggja á hjartaknúsarann og aðgerðasinnann Clooney, en Alamuddin tekst það með einstökum hætti. Salma Hayek Leikkonan Salma Hayek er gift milljarðamæringnum Francois- Henri Pinautl, sem meðal annars rekur tískuhúsið Gucci. Selma er ekki bara frábær leikkona sem hefur fengið tilnefningu til Óskarsverðlauna fyrir leik sinn, heldur beitir hún sér í mannúðarmálum í gegnum UNICEF og berst meðal annars fyrir bólusetningum barna. Þá hefur hún helgað sig góðgerðar- starfsemi í tengslum við kynbundið ofbeldi og loftslagsbreytingar. Diane von Furstenberg Diane von Furstenberg er gift bandaríska viðskiptajöfrinum Barry Diller, stjórnarfor- manni IAC. Sjálf hefur Furstenberg verið mjög farsæl, bæði í viðskiptaheiminum og sem fatahönnuður. En henni er eignuð hönnun á hinum svokallaða „wrap dress“, bundnum kjól sem í dag er til í ýmissi út- færslu. Hjónin eru miklir mannvinir og hafa látið mikið fé af hendi rakna til góðgerða- mála í New York, þar sem þau búa. Irina Viner Irina Viner hefur verið gift rússneska viðskiptajöfrinum og millj- arðamæringnum Alisher Usmanov í yfir 20 ár. Viner þjálfar rússneska fimleikalandsliðið og þykir vera einn farsælasti fimleikaþjálfari allra tíma. Hún er einnig þekkt fyrir gott tískuvit og góðan smekk á list. Priscilla Chan Priscilla Chan er gift stofnanda Facebook, Mark Zuckerberg, en sjálf er hún barnalæknir og starfar við University of California. Þegar hún giftist einum ríkasta manni heims hafði hún engan áhuga á því að klæðast rándýrum brúðar- kjól frá þekktu tískuhúsi heldur valdi hún bara fallegan og látlausan kjól sem henni leist vel á. Hjónin eru miklir mannvinir og starfa í þágu góðgerðamála, meðal annars í tengslum við heilsu og menntun. Julie Chen Julie Chen er gift Les Moonves, framkvæmdastjóra og forstjóra CBS. Sjálf hefur Chen hins vegar getið sér gott orð sem þáttastjórnandi hjá fjöl- miðlasamsteypunni. Hún hefur til dæmis lengi verið þáttastjórnandi Big Brother- þáttanna, sem njóta mikilla vinsælda. Þá er hún einnig aðstoðarstjórnandi þáttarins The Talk. Að auki er Chen stórglæsileg kona og skyggir á eiginmann sinn hvar sem þau sjást. MacKenzie Bezos Mac- Kenzie Bezos er gift Jeff Bezos, stofnanda Amazon og milljarðamæringi. MacKenzie er hins vegar metsölurithöfundur og hefur hlotið verðlaun fyrir bækur sínar. Hún er með háskólagráðu frá Princeton og þau hjónin starfa mikið í góðgerðamálum. Dasha Zhukova Hin stór- glæsilega Dasha Zhukova er gift rússneska milljarðamæringnum Roman Abramovich, eiganda knattspyrnuliðsins Chelsea. Hann er einn ríkasti maður í heimi. Zhukova er hins vegar umsvifamikill frumkvöðull, ritstjóri og tískuhönnuður. Þá vinnur hún með arkitektinum Rem Koolhaas að byggingu nútímalistasafns í Moskvu. Susan Dell Susan Dell er gift tölvurisanum Michael Dell. Susan er mikill íþróttamaður og hefur náð langt í sinni grein, en hún hefur keppt í Ironman-þrí- þraut. Þá er hún stjórnarformaður tísku- merkisins Phi, sem meðal annars hefur verið fjallað um í tískutímaritinu Vogue.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.