Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2015, Síða 54

Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2015, Síða 54
Helgarblað 25.–29. júní 201538 Fólk Viðtal örugglega alltaf búa við það að ein­ hverjir Eiríkar Bergmannar úr kreðs­ um annars staðar í pólitíska litrófinu reyni að útmála þá á sinn hátt.“ En hefði nú ekki verið betra fyrir Framsóknarflokkinn að taka fast á framgöngu borgarfulltrúa flokks- ins í síðustu borgarstjórnarkosning- um? Ýmis ummæli um múslíma voru á þann hátt að miðjuflokkur getur varla lagt blessun sína yfir þau. „Þetta er mjög gott dæmi um það hvernig menn notuðu tilefni til að draga upp mynd af flokknum. Mér þótti það þá og þykir það enn vera eitthvert lægsta pólitíska bragð og framganga sem ég hef séð frá því ég byrjaði í stjórnmálum og þótt mun lengra væri aftur litið. Þetta mál hefði aldrei þurft að snúast um meira en skipulagsmál en í stað þess að ræða málið á þeim forsendum var reynt að gera það að einhverju allt öðru en það var. Borgarfulltrúar Fram­ sóknarflokksins máttu sæta mjög grimmum árásum andstæðinga sem hugsanlega leiddu til þess að þeir fóru að verja sig með ummæl­ um sem þær hafa síðan viðurkennt að voru óviðeigandi. En í grunninn er þetta dæmi um mál þar sem sama vitleysan var endurtekin nógu oft til að koma ákveðnum stimpli á stærri hóp fólks. Það var ekki bara ráðist á fram­ bjóðendur flokksins heldur flokk­ inn allan og dregin upp mynd af honum sem gengur svo þvert á það sem einkennir fólk í þessum flokki. Mín reynsla af framsóknarfólki um allt land er að það sé upp til hópa gott fólk sem má ekkert aumt sjá, er jafnréttissinnað og velviljað öllum. Mér var svo misboðið vegna þessa að ég mun seint gleyma því. Það er ómerkilegasta form af stjórnmálum, að ráðast á hópa og stimpla þá fyrir eitthvað sem þeir eru ekki sekir um og reyna um leið að upphefja sjálfa sig.“ Hótun um óþægilega fjölmiðlaumfjöllun Ég verð að spyrja um fjárkúgunar- málið margfræga. Hvað kom fram í fjárkúgunarbréfinu? „Ég man það nú ekki orðrétt. Lög­ reglan tók bréfið og ég á ekki eintak af því. Innihald þess hefur að flestu leyti komið fram í fjölmiðlum. Þarna stóð eitthvað tiltölulega óljóst um það að upplýsingar sem tengdust fjölmiðla­ málum myndu koma sér mjög illa fyrir mig og því hótað að ef ég hefði samband við lögreglu yrði búin til óþægileg fjölmiðlaumfjöllun.“ Hvað er rétt í því, hefurðu komið ná- lægt fjármögnun Pressunnar eða DV? „Nei, eins og ég hef lýst ítrekað yfir og segi enn og aftur þá veit ég ekkert um það með hvaða hætti eigenda­ skiptin á DV báru að og ég veit ekkert meira um eignarhald á Vefpressunni og þau viðskipti öll en komið hefur fram í fjölmiðlum. Það hafa ýmsar sögur verið í gangi um aðkomu mína eða Framsóknar­ flokksins að þessum fjölmiðlum og það virðist sem sumir fyrrverandi eigendur DV hafi kennt Framsóknar­ flokknum um það að þeir misstu yf­ irráðin á blaðinu og gremjist það mjög.“ Hvernig varð þér við að fá bréf eins og þetta? „Það var ekki þægilegt. Þar var sérstaklega tekið fram að verið væri að fylgjast með mér eða heimilinu og þótt ég hafi lent í ýmsu í þessu starfi er ég ekki vanur að sjá slíkt. Ráð­ herrar eru hvattir til að láta vita ef eitthvað þessu líkt gerist og við hjón­ in gerðum það strax. Lögreglan gerði síðan þær ráðstafanir sem hún taldi eðlilegar. Þarna var verið að blanda fjöl­ skyldu minni í málið. Stjórnmála­ menn eru, þrátt fyrir allt, ýmsu van­ ir og ég get ímyndað mér að það sé verra að vera maki stjórnmálamanns heldur en að vera stjórnmálamaður­ inn sjálfur. Þá er ég að tala almennt, ekki bara um þetta bréf. Stjórnmála­ maðurinn er í pólitískum slag frá degi til dags á meðan makinn fylgist með af hliðarlínunni og er jafnvel stund­ um dreginn inn í málin að ósekju. Það getur verið erfitt hlutskipti.“ Takmörkuð samskipti við forvera Víkjum að allt öðru. Það heyrist að þú eigir góð samskipti við Davíð Oddsson. Leitarðu ráða hjá honum, eins og haldið er fram, og kannski hjá forsetanum líka? „Það er hefð fyrir því að forseti og forsætisráðherra hittist við og við, það hefur ekki verið mjög reglu­ lega en við höfum haldið í þá hefð að hittast þegar færi gefst og það eru alltaf skemmtilegir fundir þar sem farið er yfir gang mála almennt. Í þessu starfi hef ég rekist á Davíð Oddsson hér og þar eins og aðra forvera. Þar sem hann er í öðrum stjórnmálaflokki en ég þá takmarkar það samskiptin. Það væri afar óvenjulegt ef ég færi að líta á fyrr­ verandi formann úr öðrum stjórn­ málaflokki sem ráðgjafa. Reyndar má segja að samskiptin við aðra for­ vera mína hafi líka verið takmörk­ uð, vinsamleg þegar ég hitti þá en ekki mjög pólitísk. Hins vegar hef ég á stundum spurt, ekki bara fyrr­ verandi forsætisráðherra heldur líka forsetann og jafnvel aðra fyrrverandi stjórnmálamenn, út í reynslu þeirra af hinu og þessu. Það er æskilegt að hafa sem mestan skilning á liðnum atburðum og því sem aðrir hafa ver­ ið að fást við.“ Hvernig eru samskipti þín við Bjarna Benediktsson? „Þau eru mjög góð. Bjarni Bene­ diktsson er einn skemmtilegasti maður sem ég þekki. Reyndar er það þannig að ráðherrarnir eru hver um sig að elta sína dagskrá og stór hluti dagsins, vikunnar og mánað­ arins fer í að bregðast við henni. Ríkisstjórnar fundirnir eru þó alltaf á sama stað og þeir nýtast vel og stundum sitjum við saman eftir þá og ræðum málin. Það er fleira sem verður fórnar­ lamb dagskrárinnar. Ég gerði ítrekaðar tilraunir til að hreyfa mig meira og var búinn að taka frá klukkutíma á dag í það. En um leið og eitthvað kom upp á sá ég að þarna var laus klukkutími og ákvað að hreyfa mig bara daginn eftir. Þannig gekk það dag eftir dag og viku eftir viku. Þetta leystist um tíma þegar nokkrir samstarfsmenn í forsætisráðuneytinu fóru með mér í ræktina. Þá var komið banda­ lag um þessa tíma og gekk ágæt­ lega og veitti sannarlega ekki af því ég var kominn úr öllu formi og orðinn alltof feitur. Ég þarf reyndar að taka mig ennþá meira á, sérstak­ lega varðandi mataræði. Ég er alltaf að reyna að passa mig, en svindla stundum, eins og þegar ég borðaði kökusneið í þinginu sem varð að frétt um allt land og víðar. En það er ansi erfitt að svindla á mataræðinu þegar þjálfarinn fær strax tilkynn­ ingu um það í fréttum.“ Hótanir vegna haftamála Það hafa verið í gangi alls kyns slúður sögur um þig, hvernig tekurðu slíku? „Um leið og ég byrjaði í stjórn­ málum fóru menn að hafa mikl­ ar skoðanir á mér. Svo urðu til alls konar sögur. Margar þóttu mér fyndnar en sumar óviðeigandi. Árið 2009 tók ég upp á því að safna sögum um sjálfan mig og ætlaði að búa til topp 10 lista, bara til að hafa gaman af þessu. Svo hætti ég að sinna því en enn þann dag í dag heyri ég alls konar sögur. Ég hef ekki látið það pirra mig mikið og í sum­ um tilvikum þótt þær fyndnar. Ég hef samt tekið eftir því að margir trúa þessum sögum. Þannig virðast þær ná þeim tilgangi sem ætlast er til og skapa efasemdir. Það er hluti af stjórnmálataktík að dreifa skipu­ lega sögum um andstæðinginn og í algjörri andstöðu við hugsjónina um það hvernig stjórnmál eiga að virka. Ég veit að ákveðnir aðilar sem vildu hafa áhrif á umræðuna út af haftamálunum fóru skipulega að dreifa ýmsum sögum um mig og þá með það að markmiði að reyna að draga úr trúverðugleika mínum og skaða möguleika mína á því að hafa áhrif á gang mála. Og talandi um fjárkúgun og hótanir þá hef ég meira að segja fengið hótanir úr þeim ranni.“ Hvers eðlis? „Þess eðlis að ríkisstjórnin væri að ganga þannig fram gagnvart þessum aðilum að við myndum fá að gjalda þess fylgdum við þessari stefnu áfram. Menn væru í aðstöðu til að skaða okkur verulega. Það er mjög hættulegt fyrir stjórn­ málin ef það er orðin baráttuleið að leggjast í persónuofsóknir og hóta mönnum og telja það bestu leiðina til að ná sínu fram.“ Frábærar stundir með dótturinni Starf forsætisráðherra er annasamt og lítill tími til frístunda. Blaðamað­ ur hafði heyrt að Sigmundur Davíð máli í frístundum og spyr hvort svo sé. „Ég gerði það hérna áður fyrr og fannst það mjög skemmtilegt,“ segir hann. „Þetta voru aðallega landslags­ myndir, mest teikningar og vatnslita­ myndir en ég hef líka prófað olíuliti. Ég hef ekki sinnt þessu neitt að ráði eftir að ég byrjaði í þessu starfi. Það hefur einfaldlega ekki unnist tími til. Það væri hins vegar gott að venja sig á að taka til tíma til að mála vegna þess að það er ein besta leiðin til að slaka á. Vonandi næ ég að sinna listinni aftur.“ Að lokum er hann spurður um fjölskyldulífið en hann og eiginkona hans, Anna Sigurlaug Pálsdóttir, eiga þriggja ára dóttur. Hann segir: „Við vorum áðan að tala um forvera mína í stjórnmálum og eldri stjórnmála­ menn og samskipti mín við þá. Það er mjög áberandi hversu duglegir þeir eru að koma með ábendingar eða ráðleggingar um að maður verði að eiga tíma með fjölskyldunni til að slaka á. Allir stjórnmálamenn klikki á þessu og geri sér ekki grein fyrir því fyrr en eftir á hversu miklu máli þetta skipti. Það er þá eitt af markmiðum mínum að taka frá meiri tíma með fjölskyldu minni og meiri tíma til að slaka á. Það er fjölskyldan sem alltof oft þarf að líða fyrir það að maður þarf að sinna einhverju öðru. Dóttir mín er orðin þriggja ára, á mjög skemmtilegum aldri. Ég er mikið í burtu en að undanförnu hef ég náð að vera með henni í nokkur skipti, keyri hana í leikskólann og fer með henni í bíó. Þetta eru frábærar stundir. Það skemmtilegasta sem ég geri núna er að vera með henni og þeim mæðgum.“ n Lágmúla 9 • 108 Reykjavík • Sími 581 3730 • jsb@jsb.is • www.jsb.isEF LI R a lm an na te ng s l / H N O T S K Ó G U R g ra f í s k h ön nu n Staðurinn - Ræktin Hringdu í síma 581 3730 Nánari upplýsingar á jsb.is Sumarkort 9.900 kr! Æfðu með okkur í sumar, frábærir tímar í opna kerfinu Stjórnmálin „Árin fyrir fjármálahrunið var ég búinn að missa trú á stjórnmálunum. Það er skrýtin staða að vera annarrar skoðunar núna um ýmsa hluti vegna þess að ég er í stjórn­ málum en ekki utan þeirra.“ Mynd SigTryggur Ari Með eiginkonu sinni, Önnu Sigurlaugu „Stjórnmálamaðurinn er í pólitískum slag frá degi til dags á meðan makinn fylgist með frá hliðarlínunni og er jafnvel stundum dreginn inn í málin að ósekju.“
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.