Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2015, Page 66

Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2015, Page 66
Helgarblað 25.–29. júní 201550 Lífsstíll Hamrahlíð 17, 105 Reykjavík / Hús Blindrafélagsins / Sími 552-2002 Sama veRð í 7áR! Þunnar og þægilegar daglinsur 2500 kr. Svalandi sumardrykkir n Sniðugir drykkir í garðveisluna n Um að gera að njóta sumarsins N ú virðist sumarið loksins far­ ið að láta á sér kræla og þá er ekki um annað að ræða en að njóta þess í botn. Á góðvirðisdögum er fátt skemmtilegra en dúka upp borð í garðinum og bjóða fjölskyldu og vin­ um í mat og drykk. Þá getur líka ver­ ið sniðugt að halda svokallað Pálínu­ boð þar sem allir gestirnir koma með eitthvað á veisluborðið. Í slík­ um boðum er einkar hentugt að hús­ ráðandi sjái um drykkina. Hér eru nokkrar uppskriftir af sannkölluðum sumardrykkjum sem kitla bragðlauk­ ana og svala þorstanum á heitum sumardögum. Flestir drykkirnir eru óáfengir en það er ekkert því til fyrir­ stöðu að bæta áfengi út í uppskrift­ irnar, eða sleppa því, eftir smekk. n Bláberjalímonaði Fyrir fjóra Einstaklega bragðgóður sumardrykkur í þykkri kantinum. Gæti líklega flokkast sem smoothie og er því örlítið meira seðjandi en venjulegur svaladrykkur. Hráefni: n 1 og ½ bolli bláber n 1 bolli límonaði n ½ bolli fersk mynta og örlítið meira til skreytingar n ¼ bolli flórsykur n 3 bollar klakar Aðferð: Settu allt hráefnið í blandara og blandaðu saman þangað til allt er orðið vel maukað og silkimjúkt. Helltu í fjögur glös og skreyttu með myntulaufum. Ferskjudrykkur með engiferívafi Fyrir fjóra Þeir gerast varla auðveldari í fram- kvæmd, svaladrykkirnir. Hérna þarf ekkert að þeyta, hrista eða blanda. Bara henda öllum hráefnunum saman í stóra könnu og njóta. Hráefni: n 3 bollar engiferöl n ½ bolli ferskjusafi n 2 vel þroskaðar ferskjur n 1 teskeið ferskt rifið engifer Aðferð: Skerðu ferskjurnar í þunnar sneiðar og blandaðu öllu hráefninu í stóra könnu. Settu svo nóg af klökum út í drykkinn svo hann haldist vel kaldur á veisluborðinu úti í garði. Jalapeno -lime-blanda Fyrir fjóra Þessi er alveg einstaklega skemmtilegur og jalapenoið setur svo sannarlega punktinn yfir i-ið. Kitlandi sterkt bragðið af svalandi drykknum er vægast sagt áhugavert. Hráefni: n 3 bollar sódavatn n ¼ bolli ferskur lime safi n ¼ bolli agave sýróp 1 lime, skorið í þunnar sneiðar n 1 jalapeno pipar, skorinn í þunnar sneiðar Aðferð: Blandaðu öllu hráefninu saman í könnu og hrærðu aðeins í. Skelltu svo slatta af klökum út í til að halda drykknum köldum. Hungangsmelónu-, gúrku- og myntudraumur Fyrir átta Þessi drykkur krefst aðeins meiri undirbúnings en hinir – þó ekki mikils. Við erum að tala um nokkrar mínútur sem fara í að skera og mauka. Hráefni: n 1 hunagnsmelóna, niðurskorin án barkar n 1 agúrka, hálf skorin í bita og hálf í sneiðar n 1 bolli myntulauf n ½ bolli ferskur limesafi (8 lime) og 1 lime niðurskorið n Skvetta af gini, ef fólk vill Aðferð: Maukaðu melónuna vel, til dæmis með töfrasprota eða í matvinnsluvél. Settu svo agúrkubitana og myntulaufin saman í blandara (töfrasprotinn gengur líka) og maukaðu vel. Blandaðu öllu maukinu saman og sigtaðu ofan í stóra könnu. Bættu svo limesafanum og niðursneiddu agúrkuna út í blönduna, og gininu líka, ef það er notað. Fylltu upp könnuna með klökum og kældu í að minnsta kosti 30 mínútur áður en drykkurinn er borinn fram. Ananas-, lime- og kókoshnetu-drykkur Fyrir átta Þessi er svo suðrænn og svalandi að manni líður eins og maður sé staddur á suðlægri strönd þegar maður sýpur á honum í sólinni. Hráefni: n 3 bollar ananassafi n 2 bollar kókosvatn n ½ bolli ferskur limesafi (úr 8 lime) n 2 bollar sódavatn eða kolsýrt vatn n ½ ananas skorinn niður í langa báta n Smá skvetta af rommi, ef fólk vill Aðferð: Blandaðu ananassafa, kókosvatni og limesafa saman í stóra könnu og kældu í að minnsta kosti 30 mínútur. Bættu svo sódavatninu út í rétt áður en drykkurinn er borinn fram, fylltu glösin með klökum og skreyttu með ananasbát. Jarðarberja -timjan- límonaði Fyrir átta Guðdómlega sætur og svalandi sumardrykkur, sem krefst smá undirbúnings, en er svo sannar- lega þess virði. Hráefni: n 1 bolli sykur n 8 greinar af timjan og örlítið meira til að skreyta með n 2 ½ bolli jarðarber, niðurskorin n 1 ½ bolli ferskur sítrónusafi (úr um 10 sítrónum) Aðferð: Settu sykur og timjan í pott, ásamt einum bolla af vatni. Leyfðu suðunni að koma upp og hrærðu reglulega í blöndunni. Þegar sykurinn er orðinn vel bráðinn, slökktu þá undir pottinum og leyfðu bráðinni að kólna. Veiddu svo timjanið upp úr. Blandaðu jarðarberjunum og sítrónusafanum út í sykurbráðina, settu í stóra könnu og fylltu upp með 5 bollum af vatni og nóg af klökum. Gott er að kæla drykkinn í ísskáp í að minnsta kosti í hálftíma áður en hann er borinn fram. Hvert glas er skreytt með timjan.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.