Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2015, Blaðsíða 68
52 Lífsstíll Helgarblað 25.–29. júní 2015
www.steypustodin.is
Hafðu samband og láttu sérfræðinga okkar
aðstoða þig við að finna réttu lausnina.
Hringhellu 2
221 Hafnarfjörður
Hrísmýri 8
800 Selfoss
Smiðjuvegi
870 Vík
Malarhöfða 10
110 Reykjavík
Berghólabraut 9
230 Reykjanesbær
20
YFIR
TEGUND
IR
AF HELLU
M
Graníthellur og
mynstursteypa
Graníthellur hafa mun lengri endingartíma en venju legar hellur.
Þær henta vel fyrir bílaplön, torg, stíga, þrep, litlar hleðslur og
garða. Mynstursteypa er sniðug lausn í plön, stíga og verandir.
Gæði, fegurð og góð þjónusta
4 400 400
Fjárfesting sem steinliggur
vv
Dulinn og táknrænn heimur
n Orrifinn-skartgripir eru fyrir konur og karla n Hafa sent frá sér fjórar skartgripalínur
O
rrifinn er íslensk skartgripa
hönnun sem fetar framandi
slóðir. Hönnuðirnir hanna
skart fyrir bæði kynin og því
eru allir gripir ætlaðir bæði
konum og körlum. Skartið er ýmist
hannað úr málmi, silfri og gulli og
leitað er nýrra aðferða í sköpun og
gerð skartsins. Að flétta málm er ein
þeirra aðferða sem notaðar eru.
Skartgripirnir eru í skemmti
lega rokkuðum stíl en á sama tíma
minna þeir mann á æviforna ætt
bálka. Óhætt er að segja að gripirnir
beri sterkan karakter og erfitt er að
finna sambærilega hönnun eða slík
an heim sem skapaður hefur verið í
kringum skartið.
Í hverri skartgripalínu sem
Hönnunarteymið Helga og Orri
hafa skapað má finna mikla sögu og
afar táknrænan innblástur. Orrifinn
hefur undanfarið hlotið athygli utan
landsteinanna og munu tveir gripir
verða sýndir á alþjóðlegri samsýn
ingu í París í haust. Á Hönnunarmars
var einnig mikið skrifað um vörurn
ar af erlendum bloggurum sem heill
uðust af skartinu.
Hönnunarhornið spurði Helgu
Friðriksdóttur skartgripahönnuð
nokkurra spurninga.
Hvað er Orrifinn? Orrifinn Skart
gripir er skartgripavörumerki Helgu
Friðriksdóttur og Orra Finnboga
sonar sem hanna og smíða skart
gripina saman. Þau hófu samstarf
sitt 2012 og hafa gefið út fjórar skart
gripalínur saman; Akkeri, Scarab,
Fléttu og Verkfæri.
Hver er bakgrunnur ykkar
í skartgripageiranum? Orri er
menntaður gullsmiður með sérhæf
ingu í demantaísetningu en Helga
hefur starfað í hönnunargeiranum
undanfarin sjö ár.
Hvert sækið þið innblástur? Það
er svo margt og mismunandi sem
heillar okkur, við heillumst af hvers
dagslegum hlutum og framandi hlut
um í senn. Akkerið er t.d. gott dæmi
um tákn sem við ölumst upp með
alls staðar í kringum okkur verandi
eyjaskeggjar umkringd sjó. Scarab
er okkur hins vegar meira framandi
tákn og var mikið notað af FornEg
yptum til verndar og til að færa gæfu.
Hver er uppáhaldslínan ykkar
og af hverju? Það er erfitt að velja en
auðvitað á fyrsta línan okkar, Akkeri,
alltaf sérstakan stað í hjarta okk
ar. Annars erum við líka sérstaklega
ánægð með hversu góðar viðtökur
Fléttulínan fékk frá fyrsta degi enda
er hún klæðileg og fjölbreytt. Þótt
hún hafi verið erfið í fæðingu heppn
aðist hún vel þótt við segjum sjálf frá.
En uppáhaldsskartgripur? Helga
tekur aldrei af sér gull Akkerismen
ið sem var það fyrsta sem við gerðum
og því í ákveðnu uppáhaldi. Annars
hrúgum við öllum línunum á okkur,
blöndum öllu saman og skiptumst á
að nota allt enda henta allar línurnar
báðum kynjum. Orri hefur til dæm
is verið mikið með rakhnífshálsmen
úr Verkfæralínunni og Fléttuarm
böndin.
Hvert stefnið þið með vörumerk
ið ykkar? Að halda áfram að gera það
sem okkur langar, að fylgja innsæi
okkar og hafa gaman af vinnunni.
Hafið þið hlotið erlenda athygli?
Já, já, það var til dæmis mikið blogg
að um okkur af erlendu bloggurun
um og blaðamönnunum sem komu
á Hönnunarmars, erlend sjónvarps
stöð tók líka viðtal. Nýlega voru tvö
stykki eftir okkur valin á stóra alþjóð
lega samsýningu sem verður í París
í haust.
Eigið þið ykkur erlenda fyrir
mynd? Fyrirmyndir okkar eru
Nick Cave, Bob Dylan, Patti Smith,
Frida Kahlo og allir hinir hversdag
stöffararnir. Þau væru öll flott með
Orrifinnskart!
Hvar er hægt að nálgast skart-
gripi frá Orrifinn? Í Reykjavík fást
skartgripirnir okkar á verkstæðinu
okkar að Skólavörðustíg 17a, í Mýr
inni og Rhodium í Kringlunni,
í Kraum og My Concept Store í
miðbænum og í Baugar og bein í
Hafnarfirði. Utan höfuðborgarsvæð
isins fást þeir í Kaupmanninum á
Ísafirði og í Húsi handanna á Egils
stöðum. n
Skemmtileg vísun í forna tíma
Samkvæmt lýsingu á Scarab-skartgripalínunni dregur hún nafn sitt af forn-egypskum
verndargrip og líkja skartgripirnir eftir bjöllum úr Scarabaeidae-bjölluættinni. Forn-Eg-
yptar töldu bjöllurnar heilagar þar sem hegðun þeirra þótti hliðstæð hlutverki sólarguðs
þeirra. Líkt og sólarguðinn ýtir sólinni inn í sjóndeildarhringinn veltir Scarab-bjallan
moldarkúlu á undan sér en í henni geymir bjallan eggin sín. Bjallan er því tákn hringrásar-
innar og endurfæðingarinnar og heiðra skartgripir Scarab-línunnar þessi tákn.
Fallegir skartgripir Hver einasti
skartgripur í Scarab-línunni er með vísun í
bjölluna fornu.
Alltaf með akkerið Uppáhaldsskart-
gripur Helgu er akkerismenið sem hún tekur
nánast aldrei af sér.
Fyrir bæði kynin Orri ber sjálfur oftast
fléttuarmböndin.
Helga og Orri Hönnunarteyminu tókst að finna leið til að flétta málm í heila skartgripalínu sem inniheldur hálsmen, hringi, armbönd og eyrnalokka.
Hönn-
unar-
Horn
Kolfinna Von Arnardóttir
kolfinna@artikolo.is